Mál nr. 68/2016 úrskurður 16. september 2016
Mál nr. 68/2016 Eiginnafn: Eilíf
Hinn 16. september 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 68/2016 en erindið barst nefndinni 15. ágúst:
Eiginnafnið Eilíf (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Eilífar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Eilíf (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.