Mál nr. 69/2016 Úrskurður 16. september 2016
Mál nr. 69/2016 Eiginnafn: Hofdís
Hinn 16. september 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 69/2016 en erindið barst nefndinni 15. ágúst:
Eiginnafnið Hofdís (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Hofdísar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Hofdís (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.