Mál nr. 70/2016 Úrskurður 16. september 2016
Mál nr. 70/2016 Eiginnafn: Eyjar
Hinn 16. september 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 70/2016 en erindið barst nefndinni 29. ágúst:
Eiginnafnið Eyjar (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Eyjars, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Eyjar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.