Mál nr. 71/2016 Úrskurður 16. september 2016
Mál nr. 71/2016 Eiginnafn: Angelína
Hinn 16. september 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 71/2016 en erindið barst nefndinni 30. ágúst:
Eiginnafnið Angelína (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Angelínu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Angelína (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.