Mál nr. 40/2015 úrskurður 4. júní 2015
Mál nr. 40/2015 Eiginnafn: Þjóðar
Hinn 4. júní 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 40/2015 en erindið barst nefndinni 28. maí:
Eiginnafnið Þjóðar (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Þjóðars, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Þjóðar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.