Mál nr. 43/2015 úrskurður 4. júní 2015
Mál nr. 43/2015 Eiginnafn: Aríana
Hinn 4. júní 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 43/2015 en erindið barst nefndinni 2. júní:
Eiginnafnið Aríana (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Aríönu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Aríana (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.