Mál nr. 57/2022 Úrskurður 24. maí 2022
Mál nr. 57/2022 Eiginnafn: Ray (kk.)
Hinn 24. maí 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 57/2022 en erindið barst nefndinni 26. Apríl.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Ray (kk.) uppfyllir skilyrði nr. eitt, tvö og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu (Rays), telst ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði nr. þrjú. Nafnið er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem a og y standa í sama atkvæði í því. Þess vegna er aðeins unnt að fallast á ritháttinn Ray að hann teljist hafa unnið sér hefð.
Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:
- Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.
- Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
- Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
- Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði nafns sem þegar er á mannanafnaskrá. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z. Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera sjö einstaklingar nafnið Ray í þjóðskrá sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra. Sá elsti er fæddur árið 1979. Nafnið kemur þó ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Með vísan til fjölda þeirra sem nafnið bera og að um erlent tökunafn er að ræða telur mannanafnanefnd rét að leggja til grundvallar að ritháttur nafnsins teljist hefðaður jafnvel þó elsti nafnberinn sé aðeins fjörtíu og þriggja ára. Telur nefndin að samþykkja beri nafnið þegar með vísan til 1. gr. vinnulagsreglnanna.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ray (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.