Mál nr. 99/2018 Úrskurður 13. desember 2018
Mál nr. 99/2018 Millinafn: Lauritz
Hinn 13. desember 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 99/2018 en erindið barst nefndinni 10. desember.
Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:
- Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
- Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
- Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Nafnið Lauritz hefur unnið sér hefð í íslensku máli sem eiginnafn karla og er skráð sem slíkt á mannanafnaskrá. Þegar af þeirri ástæðu er ekki hægt að fallast á millinafnið Lauritz.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Lauritz er hafnað.