Mál nr. 58/2013, úrskurður 5. september 2013
Mál nr. 58/2013
Eiginnafn: Ásar
Hinn 5. september 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 58/2013 en erindið barst nefndinni 29. ágúst:
Eiginnafnið Ásar (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ásars, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ásar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.