Mál nr. 60/2013, úrskurður 5. september 2013
Mál nr. 60/2013
Eiginnafn: Eddi
Hinn 5. september 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 60/2013 en erindið barst nefndinni 3. september:
Eiginnafnið Eddi (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Edda, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Eddi (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.