Mál nr. 64/2013, úrskurður 16. október 2013
Mál nr. 64/2013
Eiginnafn: Eyborg
Hinn 16. október 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 64/2013 en erindið barst nefndinni 12. september:
Eiginnafnið Eyborg (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Eyborgar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Eyborg (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.