Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 83/2024 Úrskurður 3. september 2024

Mál nr. 83/2024                    Millinafn:       Baróns

Hinn 3. september 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 83/2024 en erindið barst nefndinni 25. júlí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • ·nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Baróns er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu, ekki unnið sér hefð sem eiginnafn og getur ekki orðið nafnbera til ama. Þá er nafnið ekki ættarnafn og uppfyllir því skilyrði 6. gr. laganna.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Baróns er samþykkt. 

Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta