Mál nr. 74/2018 úrskurður 20. september 2018
Mál nr. 74/2018 Eiginnafn: Ernest (kk.)
Hinn 20. september 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 74/2018 en erindið barst nefndinni 14. september 2018.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
-
Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
-
Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
-
Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
-
Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
-
Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Ernest (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ernests, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ernest (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.