Mál nr. 10/2013, úrskurður 7. febrúar 2013
Mál nr. 10/2013 Eiginnafn: Ófelía
Hinn 7. febrúar 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 10/2013 en erindið barst nefndinni 30. janúar:
Eiginnafnið Ófelía (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ófelíu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ófelía (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.