Mál nr. 11/2013, úrskurður 7. febrúar 2013
Mál nr. 11/2013 Eiginnafn: Úlfey
Hinn 7. febrúar 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 11/2013 en erindið barst nefndinni 30. janúar:
Eiginnafnið Úlfey (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Úlfeyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Úlfey (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.