Mál nr. 13/2013, úrskurður 7. febrúar 2013
Mál nr. 13/2013 Eiginnafn: Járngrímur
Hinn 7. febrúar 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 13/2013 en erindið barst nefndinni sama dag:
Eiginnafnið Járngrímur (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Járngríms, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Járngrímur (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.