Hoppa yfir valmynd

Nr. 205/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 11. júní 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 205/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20040032

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 28. apríl 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. apríl 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 14. janúar 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi. Þann 31. janúar 2020 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá þýskum yfirvöldum, dags. 10. febrúar 2020, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 14. apríl 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 14. apríl 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 28. apríl 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 15. maí 2020 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að þýsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Þýskalands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi í viðtölum hjá Útlendingastofnun m.a. greint frá því að vera kvalinn á líkama og […]. Hann sjái illa og þjáist af […]. Jafnframt hafi kærandi greint frá því að hann eigi erfitt með að muna hluti og hann þjáist á líkama og sál eftir að hafa verið beittur ofbeldi í […]. Hann hafi verið í varðhaldi í […] þar sem hann hafi þurft að þola ofbeldi og orðið vitni að því þegar vinir hans létu lífið. Varðandi aðstæður í Þýskalandi kvað kærandi sig ekki hafa haft annan kost en að flýja þaðan eftir að hafa fengið lokasynjun í máli sínu. Hann hafi upplifað mikla fordóma í samfélaginu en hann hafi orðið fyrir stöðugu aðkasti í Þýskalandi sökum […]. Þá kvaðst kærandi ekki hafa fengið tækifæri til þess að mennta sig eða vinna, fyrir utan fjóra mánuði í lok dvalar sinnar sem hann hafi fengið að vinna. Hann hafi þurft að búa í varðhaldsmiðstöð og eingöngu fengið að yfirgefa hana í samræmi við ströng skilyrði. Þá kvaðst kærandi ekki hafa fengið læknisþjónustu á meðan hann bjó í Þýskalandi.

Í greinargerð kæranda eru gerðar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi gerir m.a. athugasemd við rökstuðning og staðhæfingu Útlendingastofnunar þess efnis að ósamræmis hafi gætt í svörum kæranda í viðtali hjá stofnuninni. Þá gerir kærandi jafnframt athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að kærandi geti leitað á náðir yfirvalda í Þýskalandi telji hann sér ógnað með einhverjum hætti og að þýsk yfirvöld geti veitt honum fullnægjandi vernd. Vísar kærandi til þess að í skýrslu Amnesty International fyrir árin 2017-2018 sé mismunun og hatursglæpir gagnvart flóttafólki í Þýskalandi gert að umtalsefni. Kærandi hafi komið til Þýskalands árið 2016 þar sem hann hafi ítrekað orðið fyrir fordómum og áreiti vegna uppruna síns. Í fyrrnefndri skýrslu segi að þýsk stjórnvöld hafi brugðist hlutverki sínu að vernda flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Vísar kærandi jafnframt til þess að ekkert bendi til þess að aðstæður í Þýskalandi hafi batnað síðan skýrslan kom út heldur hafi viðhorf almennings til umsækjenda um alþjóðlega vernd farið versnandi.

Þá gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar um að hann sé ekki einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til þess að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi hann, aðspurður um andlega heilsu sína, sagt hana vera í lagi en hann sé gleyminn. Útlendingastofnun hafi hafnað beiðni kæranda um sálfræðimat vegna áðurnefnds svars. Telur kærandi varhugavert að byggja niðurstöðu mats á viðkvæmri stöðu hans á þessu eina svari en síðar í sama viðtali hafi hann lýst miklu og síendurteknu ofbeldi sem hann hafi orðið fyrir í varðhaldi í […]. Kærandi hafi tekið fram að margir af félögum hans hafi látist í þessu varðhaldi og að þessi lífsreynsla hafi haft afar slæm áhrif á hann. Þá gerir kærandi athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að ekkert bendi til þess að mál hans fái ekki vandaða og efnislega málsmeðferð verði hann endursendur til Þýskalands. Enn fremur gerir kærandi athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að engin gögn bendi til þess að slíkur kerfisbundinn galli sé á aðbúnaði og meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi sem leiði til þess að hann muni standa frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð þar í landi. Þessu mati stofnunarinnar mótmælir kærandi og vísar til þess að þeir sem sendir séu aftur til Þýskalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eftir að hafa fengið synjun um vernd þar í landi, eigi í hættu á að vera hnepptir í varðhald fram að flutningi til heimaríkis en slíkt varðhald geti dregist í marga mánuði.

Kröfu sína um efnismeðferð byggir kærandi á því að mál hans skuli tekið til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til þess að íslenskum stjórnvöldum beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður hans og þær afleiðingar sem endursending gæti haft í för með sér fyrir hann, líkamlegar og andlegar, auk þess að meta hvort kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 25. gr. sömu laga. Þá fjallar kærandi almennt um og gerir grein fyrir inntaki og túlkun á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum. Kærandi gerir athugasemd við beitingu reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, en hann telji reglugerðina skorta lagastoð. Auk þess bendir kærandi á að þau viðmið sem sett séu fram í ákvæði 32. gr. a reglugerðarinnar séu nefnd í dæmaskyni og því sé þar ekki að finna tæmandi talningu á þeim þáttum sem taki beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður séu til staðar. Varðandi mat á því hvenær einstaklingur teljist eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vísar kærandi til úrskurða kærunefndar í málum nr. 550/2017, 552/2017, 583/2017 og 586/2017. Tekur kærandi fram að í fyrrgreindum úrskurðum sé ekki um að ræða sama viðtökuríki en vísar kærandi til þeirra sjónarmiða sem kærunefnd lítur til við mat á því hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki. Telur kærandi með vísan til frásagnar hans af dvöl hans í Þýskalandi, lokasynjunar sem hann hafi hlotið á umsókn sinni um alþjóðlega vernd og aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi sé ljóst að hann muni verða fyrir alvarlegri mismunun þar í landi sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Í greinargerð kæranda er að lokum fjallað um sérstaklega viðkvæma stöðu hans. Vísar kærandi m.a. til þess að hann hafi greint frá erfiðri lífsreynslu, alvarlegu ofbeldi, miklum fordómum og aðkasti í Þýskalandi og andlegri og líkamlegri vanlíðan. Þá gerir kærandi, með vísan til rannsóknarskyldu stjórnvalda, frásagnar hans og framlagðra gagna, kröfu um að kærunefnd útlendingamála hlutist til um öflun sálfræðimats eða annarra upplýsinga um andlega líðan hans áður en ákvörðun verði tekin í málinu.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Þýskalands á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja þýsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Þýskalandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2019 Human Rights Report – Germany (United States Department of State, 11. mars 2020);
  • Amnesty International Report 2017/18 - Germany (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, 16. apríl 2019);
  • Asylum Information Database, Housing out of reach. The reception of refugees and asylum seekers in Europe (European Council on Refugees and Exiles, 29. maí 2019);
  • Conclusions on Germany (European Commission against Racism and Intolerance, 28. febrúar 2017);
  • Freedom in the World 2019 – Germany (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015);
  • Upplýsingar af heimasíðu þýsku útlendingastofnunarinnar (www.bamf.de) og
  • World Report 2020 – European Union (Human Rights Watch, 14. janúar 2020).

Í ofangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar skuli sækja um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge). Lögum samkvæmt eiga umsækjendur rétt á gistirými í móttökumiðstöðvum (þ. Aufnahmeeinrichtung) frá því að þeir leggja fram umsókn sína og þar til niðurstaða liggur fyrir. Í skýrslu Asylum Information Database kemur fram að árið 2018 hafi meðalmálsmeðferðartími útlendingastofnunar á umsóknum um alþjóðlega vernd verið um átta mánuðir. Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eiga rétt á viðtali með aðstoð túlks, áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra hjá þýsku útlendingastofnuninni. Umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge) geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls (þ. Verwaltungsgericht). Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn (þ. Folgeantrag) um alþjóðlega vernd hjá útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Umsækjendur geta borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Þýskaland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og mataraðstoð. Þó hafi þýsk yfirvöld sætt gagnrýni frjálsra félagasamtaka vegna yfirfullra móttökumiðstöðva og búsetuúrræða en vegna þess hve verulega hafi dregið úr umsóknum á síðustu árum hefur ástandið batnað til muna. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt dómaframkvæmd þýskra dómstóla felur orðalagið „nauðsynleg heilbrigðisþjónusta“ ekki einvörðungu í sér bráðaþjónustu. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd sem glíma við sálræn áföll fengið aðgang að þjónustu sérfræðilækna og annarra meðferðaraðila. Þó eru dæmi um að umsækjendur hafi átt í erfiðleikum með að nálgast slíka þjónustu, m.a. vegna fjarlægða milli búsetu- og meðferðarúrræða. Sérúrræði fyrir þolendur pyndinga og aðra viðkvæma einstaklinga eru fyrir hendi í nokkrum sérhæfðum stofnunum þar sem sérhæfðir læknar og meðferðaraðilar starfa. Pláss í slíkum úrræðum er þó ekki ávallt tryggt þar sem fjöldi plássa í slíku meðferðarúrræði er takmarkaður.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þýsk yfirvöld tryggja umsækjendum ekki lögfræðiaðstoð endurgjaldslaust við meðferð máls á fyrsta stjórnsýslustigi en frjáls félagasamtök veita almennt gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð á fyrsta stigi málsmeðferðar. Á kærustigi eiga umsækjendur kost á lögfræðiráðgjöf og fyrir dómstólum geta þeir sótt um aðstoð lögmanns á kostnað þýskra yfirvalda. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá ekki endurgjaldslausa aðstoð lögfræðings við að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða við að bera synjun á viðbótarrannsókn undir dómstóla.

Í framangreindum gögnum kemur fram að glæpum gegn innflytjendum í Þýskalandi hefur fækkað á undanförnum árum. Stjórnarskrá Þýskalands og annarri löggjöf sé ætlað að tryggja jafnræði meðal allra auk þess sem í þeim er að finna ákvæði sem leggja bann við mismunum á grundvelli uppruna, trúar og annarra ástæðna. Þá er í gildi í Þýskalandi aðgerðaráætlun gegn kynþáttafordómum sem hefur það m.a. að markmiði að vernda þolendur mismununar. Í Þýskalandi er einnig starfrækt stofnun gegn mismunun (e. Anti-Discrimination Agency) sem einstaklingar sem telja sig hafa orðið fyrir mismunun geta leitað til. Hlutverk stofnunarinnar er fyrst og fremst að veita þolendum mismununar leiðbeiningar og aðstoð um það í hvaða farveg sé best að leggja mál þeirra. Starfsemi stofnunarinnar hefur verið gagnrýnd vegna skorts á úrræðum til að veita þolendum mismununar frekari vernd. Til viðbótar við framangreint hafa þýsk stjórnvöld gripið til ýmissa aðgerða gegn kynþáttafordómum sl. ár. Í því sambandi má nefna að nýlega var þýskum hegningarlögum breytt á þann veg að metið skal til refsiþyngingar ef afbrot eru framin vegna kynþáttahaturs.

Samkvæmt skýrslu Asylum Information Database eru ákvarðanir um varðhald umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi teknar af dómstólum. Meðal annars má setja umsækjendur í varðhald ef þeim hefur verið vísað brott frá landinu á tilteknum grundvelli eða að líklegt sé að þeim verði synjað um inngöngu í landið. Ákvarðanir um varðhald eru endurskoðaðar reglulega af dómstólum og ekki sjaldnar en á fjögurra vikna fresti. Við meðferð slíka mála hjá dómstólum eiga einstaklingar rétt á tiltekinni aðstoð túlka og geta kallað til lögmann sér til aðstoðar gegn greiðslu.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] ára karlmaður. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að hann sjái ekki vel og sé með verki í líkamanum. Þá eigi hann í vandræðum með svefn, hann sé með slæmt minni, leiður og áhyggjufullur. Þá hafi kærandi greint frá því að hann hafi ítrekað verið beittur ofbeldi sem hafi haft áhrif á heilsu hans. Í framlögðum heilsufarsgögnum frá Göngudeild sóttvarna kemur m.a. fram að kærandi sé almennt heilbrigður en hann hafi þó greint frá því að hafa verið barinn í höfuðið fyrir nokkrum árum og síðan þá hafi hann þjáðst af höfuðverkjum, vandamálum í augum, svefnleysi og […]. Í samskiptaseðli Göngudeildar sóttvarna, dags. 12. febrúar 2020, kemur fram að kæranda hafi verið ávísað lyfjum vegna […] og svefnleysis. Þá sé hann með [...].

Í greinargerð kæranda er óskað eftir því að hann verði látinn undirgangast sálfræðimat. Við meðferð málsins hefur kærandi lagt fram gögn um heilsufar frá Göngudeild sóttvarna, dags. 4. til 12. febrúar 2020. Kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali hans var honum leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 29. janúar 2020, um rétt sinn til þess að óska eftir viðtali við sálfræðing. Þá hefur kærunefnd við meðferð málsins leiðbeint kæranda um framlagningu frekari heilsufarsgagna í málinu, sbr. tölvupóst kærunefndar dags. 25. maí 2020. Engin frekari gögn bárust og ekki var óskað eftir lengri fresti til að leggja fram gögn. Það er mat kærunefndar að mál kæranda sé nægjanlega upplýst er varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu í málinu. Að teknu tilliti til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 setur fram í dæmaskyni og heildarmats á einstaklingsbundum aðstæðum kæranda telur kærunefnd jafnframt að ekki sé þörf á að afla sálfræðimats.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Þá benda framangreind gögn til þess að kærandi komi til með að hafa fullnægjandi aðgang að heilbrigðisþjónustu í Þýskalandi.

Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að hann hafi upplifað mikla fordóma í Þýskalandi, hann hafi fengið lokasynjun í máli sínu og hann eigi á hættu að vera hnepptur í varðhald verði hann sendur aftur til Þýskalands. Kærunefnd áréttar að gögn beri með sér að málsmeðferð þýskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur þeirra sé ekki brotinn og að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður þeirra. Þá bendir kærunefnd á að samkvæmt þýskum lögum er einungis heimilt að beita varðhaldi að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og að ákvarðanir um varðhald séu endurskoðaðar reglulega af dómstólum. Þá telur kærunefnd gögn málsins ekki bera með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum í Þýskalandi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem nú eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Felast aðgerðirnar m.a. í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins lokað tímabundið fyrir endursendingar einstaklinga á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og liggur ekki fyrir hvenær endursendingar muni hefjast að nýju. Á þetta við um Ísland og ríkir því ákveðin óvissa hér á landi um það hvenær framkvæmd á endursendingum hefjist að nýju. Yfirvöld í Þýskalandi hafa jafnframt gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna við útbreiðslu veirunnar, m.a. með lokun landamæra, útgöngutakmörkunum, samkomubanni auk þess sem skólahald lagðist af. Þá hefur verklag varðandi móttöku og afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd verið aðlagað að smitvörnum en t.a.m. er einungis tekið við umsóknum skriflega og hefur einhver töf verið á framkvæmd viðtala. Kærunefnd hefur ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem við líði eru vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar. Aflétting vissra takmarkana er hafin í Þýskalandi og hafa þýsk stjórnvöld t.a.m. hafið vinnu við að opna landamæri sín í skrefum. Með fyrirvara um að ekki komi bakslag vegna Covid-19 faraldursins ætla þýsk stjórnvöld að leyfa ferðalög til og frá ríkjum innan Evrópusambandsins, ásamt Íslandi, Noregi, Sviss, Liechtenstein og Bretlandi þann 15. júní næstkomandi.

Af skýrslum er ljóst að viðtökuríkið býr við stöðuga stjórnarhætti og sterka innviði. Að mati kærunefndar er því ekkert sem bendir til þess að það tímabundna ástand sem nú ríki komi til með að hafa teljandi áhrif á getu eða vilja viðtökuríkisins til að taka á móti og afgreiða mál kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt og veita honum nauðsynlegan stuðning og viðeigandi aðbúnað á meðan mál hans er þar til meðferðar.

Í því sambandi er rétt að árétta að Dyflinnarreglugerðin gerir ráð fyrir því að samstarfsríkin hafi almennt sex mánuði frá því að lokaákvörðun er tekin um kæru umsækjanda um alþjóðlega vernd til að flytja umsækjanda til viðtökuríkis, sbr. 1. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar. Kærunefnd hefur ekki forsendur til að álykta að endursendingar til viðtökuríkisins verði ekki hafnar áður en umræddur frestur rennur út.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að skv. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Þýskalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti ekki, eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi hefur kærunefnd sérstaklega litið til sterkra innviða viðtökuríkisins og þess frests sem aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins hafa til að endursenda umsækjendur til viðtökuríkis og fjallað var um hér að framan.

Þá er það jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar í greinargerð kæranda til úrskurða kærunefndar í málum nr. 550/2017 og 552/2017 frá 10. október 2017, og úrskurða nr. 583/2017 og 586/2017 frá 24. október 2017, tekur kærunefnd fram að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda í þessu máli við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum enda sé ekki um sömu viðtökuríki að ræða auk þess sem aðstæður þeirra séu einnig ólíkar að öðru leyti.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2 mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 11. febrúar 2020 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 14. janúar 2020.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki slíkar að vegna stöðu hans sem umsækjanda um alþjóðlega vernd í viðtökuríki verði endursending hans þangað talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð. A

ð mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Þótt fyrir liggi að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Þýskalandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við beitingu og lagastoð reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð.

Vegna athugasemda kæranda í greinargerð um beitingu 32. gr. a reglugerðar um útlendinga tekur kærunefnd sérstaklega fram að hún telji ljóst að það leiði bæði af orðalaginu „viðmið“ og tilvísun í reglugerðinni um að þau séu í „dæmaskyni“ að ekki sé um að ræða tæmandi upptalningu á þeim sjónarmiðum sem komið geta til greina við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli. Kærunefnd áréttar í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.m.t. heilsufars hans og annarra þátta sem benda til viðkvæmrar stöðu einstaklingsins. Kærunefnd leggur því áherslu á að heildarmat sé lagt á atvik í hverju máli fyrir sig á grundvelli einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda að þessu leyti.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands þann 14. janúar 2020 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Þýskalands eins fljótt og unnt er, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og vera alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                                                                  Bjarnveig Eiríksdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta