Hoppa yfir valmynd

Nr. 645/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 30. október 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 645/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23090026

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 4. september 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. ágúst 2023, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 11. ágúst 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir sex daga dvöl frá 30. ágúst 2023 til 3. september 2023. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. ágúst 2023. Hinn 4. september 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda ásamt fylgigögnum.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru vísar kærandi til ferðasjúkratryggingar sinnar og leggur fram viðhengi sem inniheldur vátryggingarskírteini, vátryggingarskilmála og skjal með stuttum útdrætti skilmálanna. Kærandi vísar til þess að hann hafi orðið sér út um trygginguna við framlagningu umsóknar um vegabréfsáritun.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Nígeríu þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauki 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reit 16 vegna synjunar á umsókn, þ.e. að ekki voru færðar sönnur á handhöfn viðeigandi og gildrar ferðasjúkratryggingar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt upplýsingum Útlendingastofnunar óskaði kærandi ekki eftir slíkum rökstuðningi.

Samkvæmt gögnum málsins fór meðferð umsóknarinnar fram hjá Utanríkisráðuneytinu, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga en hún var lögð inn hjá VFS skrifstofunni í Manchester, sem starfar í umboði íslenska sendiráðsins í Lundúnum, sbr. viðauka 10 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð umsóknar hans hjá utanríkisþjónustunni er rakin. Þar kemur fram að ferðasjúkratrygging kæranda væri ófullnægjandi en fyrirliggjandi gögn vísuðu ekki til fullnægjandi vátryggingarfjárhæðar. Með tölvubréfum dags. 16. og 21. ágúst 2023 var kæranda bent á þetta og honum veittur samtals sjö daga frestur til þess að bæta úr. Kærandi hafi ekki svarað fyrrgreindum tölvubréfum. Lagði fulltrúi utanríkisþjónustunnar því til að umsókn kæranda skyldi synjað. Samkvæmt gögnum málsins lá einungis vátryggingarskírteini kæranda fyrir við meðferð málsins hjá utanríkisþjónustunni. Líkt og þegar hefur komið fram lagði kærandi fram ný fylgigögn samhliða stjórnsýslukæru dags. 4. september 2023. Meðal nýrra fylgigagna eru vátryggingarskilmálar ásamt útdrætti yfir vátryggingaskilmála. Meðal efnis vátryggingarskilmálanna eru vátryggingarfjárhæðir (e. Table of Benefits).

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Í ljósi þess að nú liggja fyrir gögn í máli kæranda sem áhrif geta haft á niðurstöðu máls hans, er það mat kærunefndar að nauðsynlegt sé að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun þar sem lagt sé mat á þau nýju gögn sem nú hafa verið lögð fram.

Að framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

The decision of the Directorate of Immigration in the appellant’s case is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta