Mál nr. 72/2013, úrskurður 16. október 2013
Mál nr. 72/2013
Eiginnafn: Sigvalda
Hinn 16. október 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 72/2013 en erindið barst nefndinni 15. október:
Eiginnafnið Sigvalda (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Sigvöldu og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Sigvalda (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.