Mál nr. 74/2013, úrskurður 29. nóvember 2013
Mál nr. 74/2013
Eiginnafn: Varða
Hinn 29. nóvember 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 74/2013 en erindið barst nefndinni 24. október:
Eiginnafnið Varða (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Vörðu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Varða (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.