Mál nr. 78/2013, úrskurður 29. nóvember 2013
Mál nr. 78/2013
Eiginnafn: Akira
Hinn 29. nóvember 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 78/2013 en erindið barst nefndinni 8. nóvember:
Eiginnafnið Akira (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Akiru, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Akira (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.