Hoppa yfir valmynd

Nr. 335/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 15. október 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 335/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20090030

 

Beiðni […] um endurupptöku

 

I.               Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála í máli nr. KNU19110054, dags. 22. apríl 2020, staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar frá 7. nóvember 2019 um að taka ekki umsókn einstaklings er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisfangslaus (hér eftir nefndur kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu.

Kærandi lagði fram síðustu umsókn sína um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 18. september 2019. Niðurstaða kærunefndar í máli nr. KNU19110054 var birt kæranda þann 27. apríl 2020. Þann 28. apríl 2020 lagði kærandi fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar sem var synjað af kærunefnd þann 6. maí 2020. Þann 22. september 2020 óskaði kærandi eftir endurupptöku málsins. Með beiðni um endurupptöku fylgdi greinargerð.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans byggir á 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.                  Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda, dags. 22. september sl., er þess krafist að umsókn hans verði endurupptekin á grundvelli breyttra aðstæðna, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga, með vísan til þess að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því að hann sótti síðast um alþjóðlega vernd hér á landi. Kærandi eigi því rétt á að umsókn hans verði endurupptekin og tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

III.                Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Líkt og áður hefur komið fram sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi þann 18. september 2019 og hefur hann ekki enn yfirgefið landið. Því eru liðnir rúmlega 12 mánuðir frá því að umsókn kæranda barst fyrst íslenskum stjórnvöldum.

Þann 23. september 2020 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra um hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort þær væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Svar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra barst samdægurs þar sem fram kemur að kærandi hafi ekki tafið mál sitt. Svar frá Útlendingastofnun barst þann 24. september 2020 og var það mat stofnunarinnar að kærandi hafi ekki tafið mál sitt meðan það hafi verið til meðferðar hjá stofnuninni.

Af framangreindu má ráða að þær tafir sem hafi orðið á málinu hafi ekki verið af völdum kæranda. Að auki hefur kærunefnd farið yfir málsmeðferð í máli kæranda og er að mati kærunefndar ekkert sem bendir til þess að kærandi verði talin bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsóknar sinnar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls framangreinds og samfelldrar dvalar kæranda hér á landi síðan hann lagði síðast fram umsókn um alþjóðlega vernd þann 18. september 2019, er fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

 

 

Úrskurðarorð

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of his case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant‘s application for international protection in Iceland.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                       Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta