Mál nr. 43/2012, úrskurður 12. júlí 2012
Mál nr. 43/2012 Eiginnafn: Aría
Hinn 12. júlí 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 43/2012 en erindið barst nefndinni sama dag:
Eiginnafnið Aría (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Aríu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Aría (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.