Mál nr. 67/2022 Úrskurður 24. maí 2022
Mál nr. 67/2022 Millinafn: Skipstað
Hinn 24. maí 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 67/2022 en erindið barst nefndinni 17. maí.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:
- millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
- ·nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
- millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Millinafnið Skipstað er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn karla né kvenna. Nafnið er heldur ekki ættarnafn í skilningi 7. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn. Nafnið Skipstað uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Skipstað er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.