Mál nr. 39/2014, úrskurður 21. maí 2014
Mál nr. 39/2014
Eiginnafn: Eníta
Hinn 21. maí 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 39/2014 en erindið barst nefndinni 16. maí:
Eiginnafnið Eníta (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Enítu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Eníta (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.