Mál nr. 14/2013, úrskurður 7. febrúar 2013
Mál nr. 14/2013 Eiginnafn: Kraki
Hinn 7. febrúar 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 14/2013 en erindið barst nefndinni sama dag:
Eiginnafnið Kraki (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Kraka og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Kraki (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.