Mál nr. 53/2013, úrskurður 16. ágúst 2013
Mál nr. 53/2013
Eiginnafn: Evían
Hinn 16. ágúst 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 53/2013 en erindið barst nefndinni 14. ágúst:
Eiginnafnið Evían (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Evíans, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Evían (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.