Mál nr. 82/2013, úrskurður 19. desember 2013
Mál nr. 82/2013
Eiginnafn: Benvý
Hinn 19. desember 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 82/2013 en erindið barst nefndinni 27. nóvember:
Eiginnafnið Benvý (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Benvýs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Benvý (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.