Mál nr. 3/2014, úrskurður 10. febrúar 2014
Mál nr. 3/2014
Eiginnafn: Daría
Hinn 10. febrúar 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 3/2014 en erindið barst nefndinni 31. janúar:
Eiginnafnið Daría (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Daríu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Daría (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.