Hoppa yfir valmynd

Nr. 327/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 26. mars 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 327/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24010001

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 25. desember 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Gambíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. desember 2023, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 11. nóvember 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 11 daga dvöl frá 23. desember 2023 til 2. janúar 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. desember 2023. Hinn 25. desember 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda. Frekari fylgigögn voru lögð fram með tölvubréfum, dags. 29. desember 2023 og 7. janúar 2024.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru vísar kærandi til fyrirliggjandi ákvörðunar Útlendingastofnunar. Hann kveðst vera ríkisborgari Gambíu og stundi nú háskólanám í Indlandi á grundvelli menntastyrks. Vísað er til fyrri dvalar- og ferðasögu kæranda, m.a. til Egyptalands og Tyrklands. Kærandi kveðst ávallt hafa gætt að hámarksdvalarheimild og hafi viðhaldið stöðu sinni í Indlandi sem námsmaður. Áhugi hans á Íslandi grundvallist einkum á náttúrufegurð en kærandi hafi viljað nýta tímann á milli missera í námi sínu til þess að ferðast. Kærandi kveðst skilja ákvörðun Útlendingastofnunar en geri þó athugasemdir við málsmeðferðina sem kærandi telji of langa m.t.t. ferðaáætlunar sinnar en hann hafi fengið ákvörðun Útlendingastofnunar sama dag og fyrirhugað var að ferðast til Íslands. Vegna síðbúinna afbókana hafi þetta verið kæranda afar kostnaðarsamt og þá er ómögulegt fyrir hann að gera breytingar á ferðaáætlun sinni m.t.t. kennsludagatals. Loks kveður kærandi synjunarástæðu Útlendingastofnunar ekki á rökum reista og telji sig hafa gætt að öllum leiðbeiningum sem hann hafi fengið. Í ljósi framangreinds óskar kærandi eftir endurskoðun kærunefndar á hinni kærðu ákvörðun.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Gambíu þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 2, 10, og 11, þ.e. að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar ásamt því að rökstudd ástæða væri til að draga í efa yfirlýsingar varðandi áreiðanleika ferðaáætlunar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að indversk skattframtöl hafi ekki verið lögð fram. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Samkvæmt gögnum málsins stundar kærandi nám í Indlandi, og fór meðferð umsóknar hans fram hjá íslenska sendiráðinu í Nýju Delí, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Líkt og fram kemur í hinni kærðu ákvörðun lagði kærandi ekki fram indversk skattframtöl við meðferð málsins. Þá kemur fram í málaskrá Útlendingastofnunar að sendiráðið hafi reynt alls sjö sinnum á 19 daga tímabili að hringja í kæranda, til þess að taka símaviðtal við hann en endurrit viðtalsins, dags. 19. desember 2023, er meðal gagna málsins. Meðal þess sem kemur fram í viðtalinu er misræmi í dagsetningum miðað við fyrirhugaða ferðaáætlun og upplýsingar þess efnis að kærandi ætli sér að ferðast hér á landi með lestum og leigubílum. Þá væri það mat fulltrúa sendiráðsins að ekki væri trúverðugt að kærandi ætli sér að ferðast til Íslands. Á kærustigi lagði kærandi fram ferðaáætlun, og viðeigandi bókanir en sömu gögn lágu einnig fyrir þegar Útlendingastofnun tók ákvörðun sína. Á kærustigi hefur kærandi ekki lagt fram gögn eða málsástæður sem hrinda forsendu Útlendingastofnunar varðandi skattframtöl kæranda. Því telur kærunefnd ekki tilefni til þess að fjalla um aðrar málsástæður kæranda. Þó bendir nefndin á að ákvörðun Útlendingastofnunar var tekin degi eftir að símaviðtal við kæranda fór fram. Áður hafði sendiráðið reynt að hringja í kæranda sjö sinnum á 19 daga tímabili. Telur kærunefnd því að tafir á málinu megi rekja til háttsemi kæranda sjálfs.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að ekki væru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sbr. ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum