Mál nr. 98/2021 Úrskurður 11. ágúst 2021
Mál nr. 98/2021 Eiginnafn: Eljar (kk.)
Hinn 11. ágúst 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 98/2021, en erindið barst nefndinni 16. júní.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Eljar (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Eljars, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Eljar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.