Hoppa yfir valmynd

Nr. 335/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 18. júlí 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 335/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19040099

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 17. apríl 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. mars 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á Íslandi með vísan til 2. mgr. 36. gr. og 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Til vara er gerð krafa um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun gert að taka málið til meðferðar að nýju.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi í fyrsta sinn þann 21. janúar 2018. Þann 15. maí 2018 tók Útlendingastofnun ákvörðun um að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og að hann skyldi fluttur til Möltu. Þann 9. ágúst 2018 staðfesti kærunefnd útlendingamála þá ákvörðun Útlendingastofnunar. Samkvæmt gögnum málsins fór kærandi frá Íslandi þann 4. desember 2018.

Kærandi lagði öðru sinni fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 13. febrúar 2019. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 14. febrúar 2019, kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Möltu. Þann 21. febrúar 2019 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda á Möltu á grundvelli 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá maltneskum yfirvöldum, dags. 5. mars 2019, kom fram að kæranda hefði verið veitt viðbótarvernd á Möltu þann 26. desember 2015 og að sú vernd væri enn í gildi. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 21. febrúar 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 27. mars 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 2. apríl 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 17. apríl 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 6. maí 2019. Þá bárust kærunefnd frekari gögn þann 12. júlí 2019.

Kærandi óskaði eftir því í greinargerð að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd á Möltu. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Möltu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Möltu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kemur fram að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því að við endursendingu hans til Möltu hafi hann gefið sig fram við lögregluna. Eftir nánari athugun á máli hans hafi maltneska lögreglan spurt hann hvers vegna hann væri á Möltu, hann væri með dvalarleyfi í Ungverjalandi og að hann yrði að fara þangað. Þá hafi kærandi greint frá því að honum hafi verið boðið að koma til maltnesku útlendingastofnunarinnar og að þar hafi honum verið tilkynnt að viðbótarvernd hans á Möltu hefði verið afturkölluð á þeim grundvelli að hann væri handhafi alþjóðlegrar verndar í Ungverjalandi. Kæranda hafi verið gefnir tveir valkostir, annars vegar að útvega peninga og kaupa flug til Ungverjalands strax og hins vegar að vera vistaður í fangelsi á meðan hann fyndi leið til að kaupa flugmiða. Þá hafi maltnesk stjórnvöld útbúið tímabundin ferðaskilríki sem hafi gert kæranda kleift að komast til Ungverjalands þann 18. desember 2018. Þegar kærandi hafi komið til Ungverjalands hafi hann fengið útgefið nýtt vegabréf og persónuskilríki sem staðfesti viðbótarvernd hans þar í landi. Þá kveði kærandi að hann hafi orðið fyrir árás fljótlega eftir komuna til Möltu og að hann sé enn með verk í baki í kjölfar árásarinnar auk þess sem hann kasti oft upp blóði á morgnanna. Hann óttist endursendingu til Möltu enda ljóst að hann muni verða áframsendur til Ungverjalands líkt og áður.

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi sé handhafi viðbótarverndar í Ungverjalandi. Kærandi hafi í Ungverjalandi fengið útgefin ferðaskilríki fyrir handhafa viðbótarverndar þann 22. janúar 2019 með gildistímann til 22. janúar 2020 og þá sé hann með gilt persónuskilríki útgefið af ungverskum stjórnvöldum. Þá hafi maltnesk stjórnvöld gefið út tímabundin ferðaskilríki til handa kæranda sem hafi gert honum kleift að ferðast frá Möltu til Ungverjalands. Þegar kærandi hafi gefið sig fram við lögreglu hér á landi hafi hann afhent frumrit framangreindra þriggja skjala. Í tölvupósti frá Útlendingastofnun hafi komið fram að lögreglan hefði ekki undir höndum frumrit umrædds tímabundins ferðaskilríkis. Kærandi standi þó alfarið við þá frásögn sína að hann hafi afhent lögreglunni ferðaskilríkið og sé tilbúinn að bera kennsl á þá lögreglumenn sem hafi tekið við skjalinu. Kærandi telji að raunveruleg hætta sé á því að verði hann fluttur til Möltu þá muni maltnesk yfirvöld vísa honum til Ungverjalands á grundvelli þess að hann sé handhafi viðbótarverndar þar í landi. Kveði kærandi að af þessum sökum beri að taka mál hans til efnismeðferðar hér á landi enda séu aðstæður flóttafólks í Ungverjalandi óboðlegar.

Þrátt fyrir að kærandi sé handhafi viðbótarverndar á Möltu telji hann að aðstæður hans þar í landi séu erfiðar. Hann fái engan stuðning frá stjórnvöldum þar í landi, hafi hvorki tækifæri til atvinnu né leigu á eigin húsnæði. Að öðru leyti vísi kærandi til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar hvað varðar aðstæður og aðbúnað flóttafólks á Möltu.

Kærandi telur að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Hann hafi m.a. verið þolandi pyndinga og glími við afleiðingar þeirrar erfiðu lífsreynslu. Hann hafi ítrekað óskað eftir því að fá úthlutaðan tíma hjá sálfræðingi til að fá aðstoð en án árangurs. Kærandi árétti þá skyldu íslenskra stjórnvalda að rannsaka mál og afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga við meðferð þess, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Kærandi kveði að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi hafi ekki aðgang að heilbrigðisþjónustu nema fyrir tilstuðlan Útlendingastofnunar auk þess sem kærandi hafi ekki tök á því að leita sjálfur sálfræðiaðstoðar sökum fjárskorts. Þá sé kærandi búsettur í Keflavík og hafi ekki aðgang að almenningssamgöngum nema með því að greiða fyrir þær úr eigin vasa. Ýmsar hindranir af hálfu Útlendingastofnunar hafi því staðið í vegi fyrir því að kærandi hafi getað leitað sér viðeigandi þjónustu og lagt fram gögn máli sínu til stuðnings.

Aðalkröfu kæranda um efnismeðferð byggir kærandi í fyrsta lagi á því að uppi séu sérstakar ástæður í máli hans í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í þeim efnum fjallar kærandi almennt um og gerir grein fyrir inntaki og túlkun á ákvæðinu, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum. Kærandi fjallar auk þess um reglugerð nr. 276/2018, sem breytti reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Þar sé að finna ákvæði sem gangi lengra en ákvæði laga um útlendinga og telji kærandi að gangi í sumum tilvikum gegn vilja löggjafans. Þá vísi kærandi til úrskurða kærunefndar útlendingamála nr. 393/2018 frá 27. september 2018 og nr. 110/2019 frá 26. mars 2019. Kærandi kveði að margt í frásögn hans gefi til kynna að hann falli í hóp sérstaklega viðkvæmra einstaklinga sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki. Þá muni hann verða fyrir alvarlegri mismunun við endursendingu til Möltu.

Þá byggir kærandi aðalkröfu sína um efnismeðferð í öðru lagi á því að ótækt sé að beita heimildinni í a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann njóti verndar 42. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, eða banni við endursendingu fólks þangað sem líf þess eða frelsi sé í hættu. Telji kærandi að aðstæður einstaklinga með viðbótarvernd á Möltu jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi ákvæðisins og samræmist skilgreiningunni á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins. Kærandi bendi á að hann hafi nú þegar verið sendur einu sinni til Möltu og stjórnvöld þar í landi hafi áframsent hann til Ungverjalands. Íslenskum stjórnvöldum beri að hafa í huga að meginreglan um non-refoulement gildi einnig um bann við endursendingu einstaklings til ríkis þar sem ótryggt sé hvort það muni áframsenda hann til annars ríkis þar sem hann muni eiga á hættu ofsóknir, vera í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Því beri að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Varakröfu kæranda um ógildingu á ákvörðun Útlendingastofnunar byggir kærandi á því að stofnunin hafi brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins sem lögfest sé í 10. gr. stjórnsýslulaga. Mikilvægt sé að stjórnvöld ræki skyldu sína til að tryggja að mál séu nægjanlega upplýst áður en ákvörðun sé tekin, einkum í þessu máli, vegna þeirrar óvissu sem uppi sé um stöðu kæranda á Möltu vegna viðbótarverndar hans í Ungverjalandi. Þá geri kærandi þá kröfu að hin kærða ákvörðun verði ógild vegna vanrækslu Útlendingastofnunar á rannsókn á heilsufari kæranda og einstaklingsbundnum aðstæðum hans.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd á Möltu þann 26. desember 2015. Við komu kæranda hingað til lands framvísaði hann ferðaskilríki fyrir einstakling með viðbótarvernd útgefnu af ungverskum stjórnvöldum með gildistíma frá 22. janúar 2019 til 22. janúar 2020. Þá framvísaði kærandi ungverskum persónuskilríkjum með gildistíma til 25. nóvember 2025. Hefur kærandi borið því við í viðtölum hjá Útlendingastofnun og í greinargerð sinni að hafa, við endurkomuna til Möltu, verið endursendur til Ungverjalands á þeim grundvelli að hann njóti þar viðbótarverndar. Við komuna til Íslands hafi hann þá framvísað skjali sem hann kveði að sé tímabundið ferðaskilríki útgefið af maltneskum stjórnvöldum, dags. 14. desember 2018, sem hann telji að sýni fram á að stjórnvöld á Möltu hafi endursent hann til Ungverjalands við komu hans þangað. Í svari maltneskra yfirvalda við upplýsingabeiðni íslenskra stjórnvalda, dags. 5. mars 2019, kemur fram að kærandi sé handhafi viðbótarverndar á Möltu og að vernd hans sé þar enn í gildi. Þá komi jafnframt fram að maltnesk stjórnvöld hafi ekki sent kæranda til Ungverjalands. Að mati kærunefndar, með vísan til þess sem að framan hefur verið rakið felur sú vernd sem kærandi nýtur á Möltu í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] einstæður og barnlaus karlmaður. Líkt og komið hefur fram hefur kærandi áður sótt um alþjóðlega vernd hér á landi, sbr. úrskurð kærunefndar nr. 343/2018 frá 9. ágúst 2018. Í því máli kom fram að kærandi hefði glímt við kviðverki vegna árásar sem hann hafi orðið fyrir í Grikklandi og að honum hafi verið ávísað lyfjum vegna þessa. Þá hafi gögn málsins bent til þess að kærandi hefði glímt við [...].

Í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun vegna núverandi umsóknar hans um alþjóðlega vernd, þann 21. febrúar 2019, kvað kærandi andlega heilsu sína góða en að líkamlegt heilsufar hans væri slæmt í kjölfar árásar sem hann hafi orðið fyrir við komuna til Möltu. Hafi hann hlotið sár í andliti, hálsi og á baki. Þá kasti kærandi stundum upp á morgnanna sem hann tengi við framangreinda árás. Í gögnum málsins liggja fyrir komunótur Göngudeildar sóttvarna þar sem fram komi fram að kærandi hafi tjáð lækni Göngudeildar að hann finni til í hálsi vegna framangreindrar árásar og að stundum komi blóð vegna særinda. Var kærandi skráður með greininguna hálsbólgu og ávísað lyfjum vegna þess. Þá kemur fram að kærandi hafi leitað á bráðamóttöku vegna bakverkja, særinda í hálsi og höfuðverks. Var það niðurstaða skoðunar að kærandi væri ekki bráðveikindalegur að sjá og skráður með greininguna bakverkur og ávísað lyfjum vegna þess. Þá kemur enn fremur fram í gögnum málsins að kærandi hafi heimsótt sálfræðing Göngudeildar sóttvarna. Í þessu máli hefur kærandi m.a. lagt fram komunótur Göngudeildar sóttvarna vegna síðari umsóknar hans um alþjóðlega vernd og byggist mat kærunefndar á framangreindum heilsufarsgögnum, viðtali hans hjá Útlendingastofnun og þeim gögnum sem lágu fyrir við fyrri úrskurð nefndarinnar.

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann óski eftir því að framkvæmt verði sálfræðimat á kæranda. Að mati kærunefndar gefa fyrirliggjandi gögn ekki ástæðu til að ætla að þörf sé á frekari gagnaöflun að því er varðar heilsufar kæranda enda sé mál hans nægilega upplýst að því leyti, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Það er mat kærunefndar að framangreind gögn beri ekki með sér að kærandi hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður á Möltu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Möltu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, Country Report: Malta (European Council on Refugees and Exiles, 11. mars 2019),
  • Malta 2018 Human Rights Report (United States Department of State, 13. mars 2019),
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report Universal Periodic Review: Malta (UN High Commissioner for Refugees (UNHCR), júlí 2018),
  • Freedom in the World 2019 – Malta (Freedom House, 2019),
  • Progress Report 2018: A Global Strategy to Support Governments to End the Detention of Asylum seekers & Refugees, 2014-2019 (UN High Commissioner for Refugees (UNCHR), febrúar 2019),
  • ECRI Report on Malta (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 15. maí 2018),
  • Amnesty International Report 2017/18 - Malta (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • National Report on Hate Speech and Hate Crime in Malta 2016 (E-More Project, nóvember 2016),
  • National Action Plan Against Racism and Xenophobia (Equality Research Consortium, 2010),
  • Upplýsingar af vefsíðum maltneskra yfirvalda: https://deputyprimeminister.gov.mt/en/cbhc/Pages/Entitlement/Health-Entitlement-to-RefugeesMigrants.aspx, www.socialsecurity.gov.mt, www.housingauthority.gov.mt, http://www.justiceservices.gov.mt/DownloadDocument.aspx?app=lom&itemid=10663&l=1,
  • Upplýsingar af vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna: http://www.unhcr.org.mt,• Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu,
  • Upplýsingar af vefsíðu félagasamtakanna Victim Support: victimsupport.org.mt,
  • Upplýsingar af vefsíðum Report Racism Malta og Reporting Hate: www.reportracism-malta.org og reportinghate.eu.

Í skýrslu Asylum Information Database kemur m.a. fram að einstaklingar með viðbótarvernd (e. subsidiary protection) á Möltu fái útgefin endurnýjanleg dvalarleyfi til þriggja ára í senn. Að framkominni beiðni sé að jafnaði fallist á endurnýjun slíkra dvalarleyfa. Í framkvæmd sé útgáfa og endurnýjun dvalarleyfa þó erfiðleikum bundin, m.a. vegna skorts á aðgengi að upplýsingum, tafa við vinnslu umsókna, íþyngjandi krafna og neikvæðra viðhorfa opinberra starfsmanna í garð einstaklinga með alþjóðlega vernd á Möltu. Upplýsingar séu ekki alltaf settar fram á tungumáli sem aðilar skilji og þá þurfi umsækjendur um endurnýjun dvalarleyfis m.a. að leggja fram sönnun um núverandi dvalarstað, s.s. leigusamning og afrit af persónuskilríkjum leigusala. Útgáfa varanlegra dvalarleyfa sætir ströngum skilyrðum á Möltu svo og veiting ríkisborgararéttar. Einstaklingar með viðbótarvernd á Möltu njóta almennt ferðafrelsis og fá útgefin vegabréf fyrir útlendinga (e. Alien‘s passport). Framangreind vegabréf eru þó ekki alþjóðlega viðurkennd ferðaskilríki.

Þá er flóttamönnum og einstaklingum með viðbótarvernd almennt heimilt að dvelja um eitt ár í móttökumiðstöðvum en í framkvæmd er þeim mögulegt að dvelja þar lengur að framlagðri beiðni. Beiðnirnar eru metnar í hverju tilviki fyrir sig af stofnun um velferð umsækjenda um alþjóðlega vernd (e. Agency for the Welfare of Asylum Seekers). Þegar réttur til dvalar í móttökumiðstöð hefur verið fullnýttur framkvæmir félagsráðgjafi mat á aðstæðum aðila og reynir að beina þeim inn í félagslega kerfið. Rannsóknir meðal innflytjenda á Möltu hafa þó leitt í ljós að margir þeirra standa frammi fyrir húsnæðisvanda.

Flóttamenn á Möltu hafa aðgang að vinnumarkaðnum undir sömu skilyrðum og maltneskir ríkisborgarar. Einstaklingar með viðbótarvernd á Möltu hafa einnig aðgang að vinnumarkaðnum en atvinnuþátttaka þeirra kann þó að sæta takmörkunum þegar kemur að tilteknum starfsgreinum, svo sem lögreglustörfum og störfum á vegum maltneska hersins. Þá eiga einstaklingar með viðbótarvernd á Möltu rétt á félagslegri aðstoð til grunnframfærslu en aðgangur þeirra að atvinnuleysistryggingum og lífeyri sætir takmörkunum að einhverju leyti. Handhafar viðbótarverndar njóta jafnframt grunnheilbrigðisþjónustu. Þá verður ráðið af fyrirliggjandi landaupplýsingum að sérhæfð meðferð fyrir þolendur pyndinga eða aðra viðkvæma einstaklinga sé almennt ekki í boði endurgjaldslaust.

Í framangreindri skýrslu European Commission against Racism and Intolerance frá árinu 2018 kemur m.a. fram að flóttamenn og innflytjendur sæti mismunun á Möltu, þ. á m. á vinnumarkaði. Árið 2010 gáfu maltnesk yfirvöld út aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju og útlendingahatri (e. National Action Plan Against Racism and Xenophobia). Telji einstaklingar á sér brotið geta þeir m.a. leitað til nefndar um opinbera þjónustu (e. Public Service Commission), jafnréttisnefndar (e. National Commission for the Promotion of Equality), umboðsmanns þingsins (e. Parliamentary ombudsman) og dómstóla. [...]. Ekki liggja fyrir aðgreind, opinber gögn um hatursglæpi á Möltu, s.s. um tíðni þeirra, kærufjölda, fjölda mála sem sæta ákæru o.s.frv. Hatursglæpir, þ. á m. á grundvelli kynþáttar, eru refsiverðir skv. maltneskum hegningarlögum. Samkvæmt ofangreindum heimildum skortir þó á eftirfylgni með löggjöfinni, fá mál eru kærð og lágt hlutfall kærumála sætir ákæruferli. Auk þess að leita til lögreglu geta þolendur hatursglæpa leitað til samtakanna Victim Support og jafnframt tilkynnt um hatursglæpi á þar til gerðum vefsíðum, www.reportracism-malta.org og reportinghate.eu. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar á Möltu sem séu þolendur afbrota og tali hvorki né skilji maltnesku geti lagt fram kæru til lögreglu á sínu móðurmáli og eigi rétt á nauðsynlegri aðstoð við það, s.s. túlkaþjónustu. Meðan á rannsókn standi eigi þeir jafnframt rétt á túlkaþjónustu en þurfi þá að greiða fyrir þjónustuna.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd hvorki undir þá málsástæðu kæranda að aðstæður flóttafólks á Möltu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð eða að þær samrýmist skilgreiningu á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Möltu er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar á Möltu telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda, en hann hefur m.a. borið fyrir sig að glíma við verki í kvið auk áverka á andliti í kjölfar líkamsárásar. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður á Möltu verður ráðið að kærandi eigi rétt á grunnheilbrigðisþjónustu. Í ljósi fyrirliggjandi gagna telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð á Möltu vegna heilsufarsvandamála sinna. Kærunefnd telur gögn málsins ekki benda til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Þá hefur kærandi greint frá því að aðstæður hans á Möltu hafi verið slæmar, m.a. með vísan til húsnæðis- og atvinnumála og réttinn til félagslegrar aðstoðar. Þrátt fyrir fullyrðingar kæranda um annað benda framangreindar skýrslur og gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér til þess að kærandi, sem handhafi viðbótarverndar á Möltu, hafi heimild til að stunda atvinnu á Möltu og eigi rétt á félagslegri aðstoð. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 393/2018 frá 27. september 2018 og nr. 110/2019 frá 26. mars 2019. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum, m.a. vegna þess að ekki er um að ræða sama viðtökuríki.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Af gögnum málsins, og með vísan til þeirra gagna sem lágu fyrir við fyrri umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi, verður ekki ráðið að kærandi hafi slík sérstök tengsl við Ísland þannig að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 13. febrúar 2019.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Í greinargerð kæranda eru gerðar athugasemdir við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi byggir m.a. á því að skort hafi að heildstætt mat færi fram á heilsufari hans, sbr. 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga auk þess sem að Útlendingastofnun hafi ekki aðhafst til að afla frekari upplýsinga um heilsufar kæranda. Þá hafi stofnunin ekki rannsakað nægjanlega þá viðbótarvernd sem kærandi kveði að hann njóti í Ungverjalandi.

Í 2. málslið 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skal Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda byggði stofnunin mat sitt á einstaklingsbundnum aðstæðum hans á viðtali hans hjá stofnuninni og gögnum um heilsufar kæranda vegna fyrri umsóknar um alþjóðlega vernd hér á landi. Það er mat kærunefndar að slík framkvæmd geti í einhverjum tilvikum verið forsvaranleg en að taka verði mið af atvikum hverju sinni, t.d. hvort nýjar upplýsingar í málinu gefi tilefni til að ætla að hagir umsækjanda hafi breyst að einhverju leyti. Í þessu máli liggur fyrir að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér landi í annað skiptið, þann 13. febrúar 2019, rúmum tveimur mánuðum eftir að hafa verið fluttur frá landinu. Í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun, þann 21. febrúar 2019, tjáði kærandi stofnuninni að hann hefði orðið fyrir árás við komuna til Möltu og að hann glími við afleiðingar hennar, m.a. með sárindum í hálsi og blóðugum uppköstum. Í gögnum málsins liggur einnig fyrir að kærandi sótti heilbrigðisþjónustu á Göngudeild sóttvarna fimm dögum áður en að ákvörðun í máli hans var tekin hjá Útlendingastofnun en þau gögn lágu ekki fyrir þegar ákvörðun var tekin í máli kæranda hjá Útlendingastofnun. Það er mat kærunefndar að það hefði verið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti að Útlendingastofnun gengi úr skugga um að fullnægjandi heilsufarsupplýsingar lægju fyrir áður en ákvörðun í máli kæranda hafi verið tekin, en kærunefnd telur í ljósi fyrrgreindrar frásagnar kæranda af líkamlegum kvillum og áverkum sem hann varð fyrir á Möltu, hafi gefið stofnuninni tilefni til þess að rannsaka málið frekar.

Kærunefnd bendir þó á að það er fyrst og fremst á ábyrgð kæranda og talsmanns að leggja fram þau gögn sem teljast nauðsynleg við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd og hafði kærandi tækifæri til þess að leggja fram gögn frá Göngudeild sóttvarna við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun, en eins og áður segir leitaði hann þangað 5 dögum fyrir töku ákvörðunar í máli hans hjá stofnuninni. Kæranda gafst kostur á að leggja fram ný gögn um heilsufar við meðferð málsins hjá kærunefnd og hefur kærunefnd lagt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda með hliðsjón af þeim heilsufarsgögnum og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Kærunefnd hefur því bætt úr þeim annmarka sem var á málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera frekari athugasemdir við hana. Þá er það einnig mat kærunefndar, með hliðsjón af því sem að framan hefur verið rakið um viðbótarvernd kæranda á Möltu og með hliðsjón af þeim gögnum sem liggi fyrir í málinu, að ekki hafi verið þörf á frekari rannsókn á aðstæðum kæranda í Ungverjalandi.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 13. febrúar 2019 og sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

Ívar Örn Ívarsson                                                                                 Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta