Hoppa yfir valmynd

Nr. 445/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 25. október 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 445/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18090023

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 14. september 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Pakistan (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. ágúst 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnislegrar meðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 22. maí 2018. Þar sem kærandi hafði fengið útgefna vegabréfsáritun til Lettlands, með gildistíma frá 17. maí til 7. júní 2018, var þann 1. júní 2018 beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Lettlandi, sbr. 2. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 4. júlí 2018 barst svar frá lettneskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 30. ágúst 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 4. september 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 14. september 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda, ásamt fylgigögnum, barst kærunefnd 24. september 2018.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi fluttur til Lettlands. Flutningur kæranda til Lettlands fæli ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Var umsókn kæranda um alþjóðlega vernd því synjað um efnismeðferð, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og skyldi kærandi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Lettlands.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann mótmæli því að verða sendur til Lettlands, hann þekki ekki til landsins og vilji frekar fara aftur til heimaríkis. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi flúið heimaríki sitt vegna deilna og ofsókna á hendur honum sem yfirvöld í heimaríki hafi ekki getað eða viljað vernda hann fyrir. Þá hafi kærandi verið beittur ofbeldi í heimaríki. Kærandi kveður að þeir atburðir sem hann hafi gengið í gegnum hafi m.a. valdið honum mikilli streitu, hann hafi grennst og misst hárið og heilsuna.

Í greinargerð kæranda er gerð grein fyrir ýmsum atriðum er varða aðstæður, aðbúnað og réttarstöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd í Lettlandi og er í því sambandi vísað til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka. Kærandi bendi m.a. á að opinber aðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd sé mjög takmörkuð og dugi ekki fyrir helstu lífsnauðsynjum og beiting stjórnvalda á varðhaldi hafi verið gagnrýnd harðlega af ýmsum alþjóðlegum mannréttindastofnunum. Þá sé synjunarhlutfall stjórnvalda í Lettlandi á umsóknum ríkisborgara Pakistans um alþjóðlega vernd hátt. Kærandi gerir athugasemd við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar er varði umfjöllun stofnunarinnar um synjunarhlutfallið. Stofnunin hafi bent á að ekkert yrði ályktað út frá háu synjunarhlutfalli um það hvort málsmeðferð sé áfátt enda liggi ekkert fyrir um hvað liggi að baki þeim tölfræðiupplýsingum sem kærandi hafi borið fyrir sig. Kærandi telji framangreindri ályktun stofnunarinnar verulega áfátt með tilliti til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Kærandi byggir kröfu sína, um að taka skuli umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, á því að sérstakar ástæður standi til þess, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá bendir kærandi á að nýleg reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, brjóti gegn lögmætisreglunni, sérstaklega í ljósi þröngra skorða við setningu stjórnvaldsfyrirmæla sem lagaáskilnaðarregla í 2. málsl. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 setji stjórnvöldum. Í breytingarreglugerðinni megi finna skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem hafi ekki stoð í settum lögum og önnur skilyrði sem beinlínis gangi gegn ákvæðum laga um útlendinga. Skuli því horfa með öllu framhjá þeim efnisgreinum reglugerðarinnar sem skorti lagastoð. Þá vísar kærandi til laga nr. 81/2017 um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 og lögskýringargagna að baki breytingarlögunum varðandi túlkun hugtaksins sérstakar ástæður. Samkvæmt lögskýringargögnum hafi íslenskum stjórnvöldum með sérstökum ástæðum ávallt verið eftirlátið mat og þau hafi haft heimild til að taka mál til efnismeðferðar umfram það sem leiði af sérstökum reglum. Stjórnvöld hafi stuðst við túlkun Mannréttindadómstóls Evrópu og sett fram kröfur í anda þess dómstóls en þessar kröfur séu með öllu órökstuddar og ekki hægt að sjá hvernig þær samrýmist lögum. Stjórnvöldum sé eftirlátið mat og þau hafi heimild til að taka mál til efnismeðferðar umfram það sem leiði af sérstökum reglum. Þá hafi löggjafinn tiltekið að matið sé ekki jafn strangt og t.d. mat Mannréttindadómstóls Evrópu við túlkun hans á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann muni eiga erfitt uppdráttar í Lettlandi vegna mismununar og þar sem hann sé viðkvæmur einstaklingur. Sé íslenskum stjórnvöldum því skylt að taka umsókn hans til efnislegrar meðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.


 

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að lettnesk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Lettlands er byggt á því að kærandi hafi verið með gilda vegabréfsáritun til Lettlands. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Greining á hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu

Kærandi er […] ára gamall karlmaður, kvæntur og á son í heimaríki. Kærandi kvaðst í viðtölum hjá Útlendingastofnun vera við góða andlega og líkamlega heilsu. Aðspurður kvaðst hann hafa orðið fyrir ofbeldi í heimaríki og hann sé þolandi pyndinga sem hafi valdið honum streitu, hann fái höfuðverk og hafi misst líkamsþyngd og heilsuna í kjölfarið.

Að mati kærunefndar bera fyrirliggjandi gögn málsins, þ. á m. framburður kæranda og komunótur frá Göngudeild sóttvarna, ekki með sér að heilsufar kæranda eða aðrar aðstæður hans séu með þeim hætti að hann sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Lettlandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Lettlandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Nations in Transit 2018 – Latvia (Freedom House, 11. apríl 2018);
  • Latvia 2017 Human Rights Report (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • Amnesty International Report 2017/2018 – Latvia (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
  • Country Report Latvia 2018 (European Commission, 18. apríl 2017);
  • Policy Report on Migration and Asylum Situation in Latvia – 2015 (European Migration Network, apríl 2016);
  • Structure of the Migration and Asylum Policy in Latvia (European Migration Network, október 2016);
  • State of Health in the EU - Latvia - Country Health Profile (European Commission, 23. nóvember 2017);
  • Asylum Seekers in Latvia (Providus – Center for Public Policy, nóvember 2015);
  • Upplýsingar af vefsíðu lettnesku útlendingastofnunarinnar (www.pmlp.gov.lv), lettnesku útlendingalögin (www.vvc.gov.lv/export/sites/default/docs/LRTA/Citi/Asylum_Law.pdf) og vefsíður frjálsu félagasamtakanna Latvian Centre for Human Rights (www.cilvektiesibas.org.lv/en) og „Shelter „Safe House““ (http://www.patverums-dm.lv/en).

Í framangreindum gögnum kemur fram að lettneska útlendingastofnunin (l. Pilsonības un migrācijas lietu pārvalde) tekur ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd innan 15 mánaða frá því að slík umsókn er lögð fram. Umsækjandi um alþjóðlega vernd á þess kost að bera synjun útlendingastofnunarinnar á umsókn sinni undir stjórnsýsludómstóla (l. Latvijas Administratīvās Tiesas) en þeim dómi er ekki unnt að áfrýja frekar. Þá hefur umboðsmaður (l. Latvijas Republikas Tiesībsargs) eftirlit með mannréttindum og frelsi borgaranna í Lettlandi. Umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni hjá lettnesku útlendingastofnuninni og framangreindum dómstólum, eiga þess kost að leggja fram viðbótarumsókn hjá lettnesku útlendingastofnuninni, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef nýjar upplýsingar eða ný gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst verulega eða verulegir annmarkar hafa verið á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði fyrir viðbótarumsókn verið uppfyllt. Synjun lettnesku útlendingastofnunarinnar um að taka viðbótarumsókn til skoðunar má kæra og engin takmörk eru á því hversu oft umsækjandi getur lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Lettland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Samkvæmt framangreindum skýrslum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Lettlandi eiga þeir rétt á húsnæði, heilbrigðisþjónustu, túlkaþjónustu, mataraðstoð og vasapeningum. Umsækjendum er tryggður aðgangur að heilbrigðisþjónustu vegna líkamlegra eða andlegra vandamála. Þá er umsækjanda tryggður sérstakur stuðningur og hjálp vegna viðkvæmrar stöðu, t.d. sálfræðiþjónusta vegna andlegrar heilsu. Í ljósi innleiðingar tilskipunar Evrópusambandsins nr. 33/2013 vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd í lettnesk lög og setningu laga um útlendinga (l. Latvijas Vēstnesis) eru sérþarfir umsækjenda í umsóknarferlinu um alþjóðlega vernd greindar með aðstoð viðeigandi sérfræðinga. Fer því fram einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu og sé í þörf fyrir sérstakar ráðstafanir.               

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er ljóst að lettnesk stjórnvöld uppfylla skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Lettlandi geta fengið lögfræðiþjónustu ef umsókn þeirra um vernd hefur verið synjað af útlendingastofnun Lettlands. Umsækjendur eiga því aðeins rétt á lögfræðiaðstoð sér að kostnaðarlausu við meðferð máls á kærustigi. Lettnesk stjórnvöld tryggja aftur á móti ekki endurgjaldslausa aðstoð lögmanns vegna framlagningar viðbótarumsóknar. Þó eru til staðar frjáls félagasamtök sem veita umsækjendum um alþjóðlega vernd lögfræðilega aðstoð. Þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd leggja fram umsókn um vernd í Lettlandi eiga þeir rétt á túlkaþjónustu án endurgjalds bæði þegar umsókn er til meðferðar hjá lettnesku útlendingastofnuninni og á kærustigi.

Þeir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem settir eru í varðhald við komu til Lettlands eiga rétt á lögfræðiaðstoð án endurgjalds og eiga jafnframt rétt á því að skjóta ákvörðun um varðhaldsvist til dómstóla. Aðeins má beita varðhaldi á grundvelli skilyrða sem eru skilgreind í lettnesku útlendingalögunum, þ.e. ef skortur er á auðkennisgögnum, rökstuddur grunur er uppi um að útlendingur gefi upp rangar upplýsingar, útlendingur er ógn við almannaöryggi, ástæða er til að ætla að útlendingur muni reyna að komast hjá flutningi úr landi eða ef útlendingur virðir ekki reglur um inngöngu og dvöl í landinu. Þá kemur fram í ofangreindum gögnum að ákvörðun um beitingu varðhalds á umsækjendur um alþjóðlega vernd í Lettlandi er tekin af lögreglu ríkisins. Jafnframt eru aðstæður í varðhaldi með þeim hætti að útlendingur á rétt á túlki, aðgangi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og öllum helstu nauðsynjum.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Lettlandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Lettlandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Lettlands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Kærandi kveðst hafa orðið fyrir ofbeldi í heimaríki sem hafi valdið honum streitu. Það er þó mat kærunefndar, á grundvelli gagna málsins, að aðstæður kæranda teljist ekki til mikilla og alvarlegra veikinda sem meðferð sé aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Það er mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af þeim gögnum sem nefndin hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Lettlandi má ráða að umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og er það mat kærunefndar að kærandi komi til með að hafa aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi ber m.a. fyrir sig að synjunarhlutfall stjórnvalda í Lettlandi á umsóknum ríkisborgara Pakistans um alþjóðlega vernd sé hátt. Þá er í greinargerð kæranda byggt á því að ályktun Útlendingastofnunar út frá synjunarhlutfalli stjórnvalda í Lettlandi sé verulega áfátt með tilliti til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að málsmeðferð lettneskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur sé ekki á þeim brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Ekkert bendi til þess að pakistönskum umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Lettlandi eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana.

Kærandi hefur þá borið fyrir sig að hann verði fyrir mismunun í Lettlandi. Af framangreindum gögnum verður þó ráðið að lög í Lettlandi verndi einstaklinga fyrir mismunun m.a. á grundvelli þjóðernis og uppruna. Verði kærandi fyrir mismunun á grundvelli þjóðernis geti hann leitað ásjár lettneskra yfirvalda vegna þess, m.a. til umboðsmanns sem hefur eftirlit með mannréttindum og frelsi borgaranna í Lettlandi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 9. ágúst 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 22. maí 2018.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars 2018, voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Sem fyrr segir telur kærandi breytingarreglugerðina skorta lagastoð þar sem ákvæði hennar þrengi að þeim sjónarmiðum sem beri að líta til við túlkun 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Tilvitnuð ákvæði reglugerðar nr. 276/2018 eru sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem segir að ráðherra hafi heimild til að setja reglugerð um framkvæmd 36. gr. laganna. Löggjafinn hefur því framselt ráðherra vald til að útfæra framangreind ákvæði nánar og ljóst að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg eins og að framan hefur verið lýst. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þessar athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands þann 21. maí 2018 og sótti um alþjóðlega vernd þann 22. maí 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Lettlands eigi síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa lettnesk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Lettlands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                                                                             Árni Helgason

                                                                                             


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta