Mál nr. 98/2023 Úrskurður 2. október 2023
Mál nr. 98/2023 Millinafn: Árland
Hinn 2. október 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 98/2023 en erindið barst nefndinni 27. september.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:
- millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
- nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
- millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Millinafnið Árland er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki unnið sé hefð sem eiginafn og getu ekki orðið nafnbera til ama. Þá er nafnið ekki ættarnafn og uppfyllir því skilyrði 6. gr. laganna.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Árland er samþykkt.