Mál nr. 79/2019 Úrskurður 6. september 2019
Mál nr. 79/2019 Eiginnafn: Marley
Hinn 6. september 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 79/2019 en erindið barst nefndinni 2. september.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Marley telst uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Marley er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.