Hoppa yfir valmynd

Nr. 255/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 16. júlí 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 255/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20060034

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 19. júní 2020 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. júní 2020, um frávísun frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom til landsins þann 5. júní 2020 með flugi frá Bretlandi. Kærandi var þann 15. júní sl. handtekinn af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en hann hafði þá verið eftirlýstur af lögreglu vegna meintra brota gegn reglum nr. 443/2020 um sóttkví og einangrun vegna Covid-19, sbr. 9. gr. reglnanna og 18. gr., sbr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997. Var kærandi þann sama dag vistaður í sóttvarnarhúsi við Rauðarárstíg 37. Fór kærandi í skýrslutöku hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu þann 16. júní sl. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. júní 2020, var kæranda frávísað frá landinu og kærði kærandi ákvörðunina þann sama dag til kærunefndar útlendingamála. Þann 22. júní sl. var kæranda skipaður talsmaður í málinu og óskaði hann þann 23. júní sl. eftir frestun réttaráhrifa á ákvörðun Útlendingastofnunar á meðan málið væri til meðferðar hjá kærunefndinni, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þann sama dag féllst kærunefnd á þá beiðni. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 2. júlí sl. Frekari gögn bárust frá kæranda þann 10. júlí sl. Eftirfarandi rökstuðningur vegna ákvörðunar Útlendingastofnunar barst kærunefnd þann 14. júlí sl.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað til þess að samkvæmt mati lögreglunnar á Suðurnesjum teljist kærandi ógn við almannaheilsu og hafi honum verið gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri munnlega í skýrslutöku hjá lögreglu í samræmi við 12. gr. laga um útlendinga. Var kæranda vísað frá landi á grundvelli d-liðar 1. mgr. 94. gr. laga um útlendinga og honum m.a. leiðbeint um að hann gæti fengið ákvörðunina rökstudda frekar væri þess óskað innan 14 daga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð vísar kærandi til þess að hann hafi komið til landsins þann 5. júní sl. og við komuna til landsins hafi honum verið kynntar reglur sem gildi um sóttkví hérlendis. Hafi hann tilgreint að hann hygðist dvelja að Laugarvegi 143 á meðan sóttkví stæði. Þann 15. júní sl. hafi hann komið á lögreglustöð til þess að tilkynna um breyttan verustað sinn og verið þá umsvifalaust handtekinn. Hafi honum verið tilkynnt að hann hefði verið eftirlýstur vegna meintra brota á reglum um sóttkví. Hafi kærandi gefið skýrslu hjá lögreglu þar sem hann gerði grein fyrir ferðum sínum og stöðu og í framhaldinu hafi hann mátt sæta tilkynningarskyldu hjá lögreglu vegna ferða sinna.

Kærandi byggir á því skilyrði til frávísunar sé ekki fullnægt. Blað það sem hann hafi undirritað um borð í flugvél hafi verið á ensku en kunnátta hans sé afar takmörkuð og hann hafi ekki fengið aðstoð túlks. Þá hafi hann við komuna til landsins undirgengist próf fyrir Covid-19 og fengið síðan niðurstöðu um að hann væri ekki smitaður. Hafi hann mátt standa í þeirri trú að hann væri ekki smitberi. Eftir komuna á lögreglustöð hafi kærandi ásamt ferðafélögum sínum verið vísað yfir á sóttvarnahúsið við Rauðarárstíg í sóttkví og þar hafi hann dvalist um hríð. Tilgangur komu hafi verið sá að leita sér að vinnu. Með vísan til sjónarmiða um meðalhóf telur kærandi það fráleitt að vísa honum frá landinu þegar ljóst sé að hann sé ekki smitberi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í samræmi við 7. gr. EES-samningsins, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, hefur tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38 um rétt borgara Sambandsins og aðstandenda þeirra til frjálsar farar og dvalar á yfirráðasvæði aðildarríkjanna (sambandsborgaratilskipunin) verið tekin upp í íslenskan rétt, sbr. m.a. XI. kafla laga um útlendinga sem felur í sér sérreglur um útlendinga sem falla undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.

Í 94. gr. laga um útlendinga er fjallað um frávísun EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans. Samkvæmt d-lið 1. mgr. 94. gr. laganna er heimilt að vísa EES- eða EFTA-borgara og aðstandanda hans frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum eftir komu ef það er nauðsynlegt vegna allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis. Í 3. mgr. ákvæðisins segir að ef meðferð máls skv. 1. mgr. hefur ekki hafist innan sjö sólarhringa er heimilt að vísa EES- eða EFTA-borgara frá landi með ákvörðun Útlendingastofnunar samkvæmt ákvæðum b-, c- og d-liðar 1. mgr. innan þriggja mánaða frá komu til landsins.

Ákvæði 94. gr. laga um útlendinga á rætur sínar að rekja til 27. gr. sambandsborgaratilskipunarinnar. Hugtakið almannaheilbrigði er ekki útfært nánar í tilskipuninni en í 29. gr. er hins vegar vísað til þess að einu sjúkdómarnir sem réttlæti ráðstafanir sem takmarki frjálsa för séu sjúkdómar sem orðið geti að faraldri, eins og skilgreint sé í viðeigandi gerningum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, og aðrir smitsjúkdómar eða smitnæmir sníkilssjúkdómar falli þeir undir verndarákvæði sem gilda um ríkisborgara gistiaðildarríkisins.

Þann 15. maí 2020 tóku gildi reglur nr. 443/2020 um sóttkví og einangrun vegna Covid-19 sem heilbrigðisráðherra setti á grundvelli 18. gr., sbr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997. Reglurnar giltu til 15. júní sl. en þá tók gildi reglugerð nr. 580/2020 um sóttkví, einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna Covid-19. Samkvæmt 1. gr. reglna nr. 443/2020 giltu reglurnar um alla þá einstaklinga sem sóttvarnalæknir skyldaði í sóttkví eða einangrun á grundvelli sóttvarnalaga, hvort sem það var gert með almennri ákvörðun eða ákvörðun sem beint var sérstaklega að viðkomandi. Í 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. reglnanna sagði að öllum þeim sem kæmu til Íslands og dvalið höfðu meira en sólarhring á síðastliðnum 14 dögum í löndum sem skilgreind væru af sóttvarnalækni sem hááhættusvæði væri skylt að fara í sóttkví í 14 daga frá komu til landsins. Í 9. gr. reglnanna var mælt fyrir um viðurlög en þar sagði að brot gegn reglunum varðaði sektum eða fangelsi skv. 19. gr. sóttvarnalaga eða 175. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Samhljóða ákvæði er nú að finna í reglugerð nr. 580/2020 um sóttkví, einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna Covid-19, með síðari breytingum, sem leysti fyrrgreindar reglur nr. 443/2020 af hólmi, að því undanskildu að valkvæð sýnataka býðst nú við landamæri Íslands, sbr. 4. gr. reglugerðarinnar, en neikvæð niðurstaða úr slíku prófi leiðir til þess að einstaklingi er ekki skylt að fara í sóttkví.

Ríkislögreglustjóri gaf út áhættumat vegna Covid-19 þann 20. apríl sl. en þar kemur m.a. fram að Covid-19 sé talin alvarleg ógn við lýðheilsu landsmanna og þar með þjóðaröryggi og allsherjarreglu. Embætti Landlæknis hefur birt reglulega á vefsíðu sinni uppfærðan lista um áhættusvæði vegna Covid-19. Frá 19. mars sl. hafa öll lönd og svæði heims verið skilgreind sem áhættusvæði m.t.t. Covid-19 en þann 14. maí sl. voru Færeyjar og Grænland tekin af listanum.

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 5. júní sl. með flugi frá Bretlandi. Af fyrirliggjandi gögnum má vera ljóst að kærandi hafi fyllt út þar til gert eyðublað frá Embætti Landlæknis á landamærunum en eyðublaðið ber heitið: „Quarantine is required for all passengers arriving in Iceland after stay in Covid-19 risk areas as defined by the Icelandic authorities, regardless af nationality, purpose of travel or duration of stay in Iceland. Information on your travels in the past 14 days and your place of residence for the next 14 days is therefore required by the Icelandic Public Health and Civil Protection Authorities for registration of quarantine“. Eyðublaðið er hins vegar ekki fyrirliggjandi í gögnum málsins og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni finnst eyðublaðið ekki en í skýrslutöku hjá lögreglu þann 15. júní sl. vísaði kærandi til þess að hann hefði fyllt út umrætt eyðublað. Kærandi var þann 15. júní sl. handtekinn af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en hann hafði þá verið eftirlýstur af lögreglu vegna meintra brota gegn reglum nr. 443/2020 um sóttkví og einangrun vegna Covid-19, sbr. 9. gr. reglnanna og 18. gr., sbr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997. Samkvæmt gögnum málsins dvelur kærandi í sérstöku úrræði á vegum íslenskra stjórnvalda á Hótel Lind við Rauðarárstíg. Af fyrirliggjandi gögnum verður jafnframt ekki annað ráðið en að kærandi sé ekki smitaður af Covid-19.

Líkt og áður hefur komið fram er ekki um það deilt í málinu að kærandi virti ekki reglur um sóttkví eftir komu til landsins. Hins vegar getur það eitt og sér ekki leitt til þess að kærandi teljist ógn við almannaheilbrigði í skilningi d-liðar 1. mgr. 94. gr. laga um útlendinga. Ljóst er að stjórnvöld hafa þegar gripið til ráðstafana í máli kæranda, með því að að handtaka hann og færa í sóttkví. Þá benda gögn málsins ekki til þess að kærandi sé með Covid-19, og er hann þar af leiðandi ekki smitberi fyrir sjúkdómnum, auk þess sem hann er þegar í sóttkví. Hníga að mati kærunefndar því ekki rök til þess að frávísa honum á grundvelli almannaheilbrigðis. Með hliðsjón af framangreindu er það mat kærunefndar að kærandi sé ekki ógn við almannaheilbrigði, allsherjarreglu eða almannaöryggi og eru skilyrði d-liðar 1. mgr. 94. gr. laga um útlendinga því ekki uppfyllt í málinu.

Í greinargerð byggir kærandi m.a. á því að hann hafi gengist undir skimunarpróf fyrir Covid-19 við komuna til landsins. Framangreind málsástæða er ekki í samræmi við gögn málsins enda hófu yfirvöld hér á landi ekki að skima fyrir Covid-19 á landamærunum fyrr en 15. júní sl., en kærandi kom líkt og áður greinir til landsins þann 5. júní sl. Að öðru leyti telur kærunefnd ekki tilefni til að fjalla um aðrar málsástæður kæranda.

Með vísan til alls framangreinds er ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated.

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Gunnar Páll Baldvinsson Daníel Isebarn Ágústsson  


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta