Mál nr. 14/2014, úrskurður 10. febrúar 2014
Mál nr. 14/2014
Eiginnafn: Íslilja
Hinn 10. febrúar 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 14/2014 en erindið barst nefndinni 7. febrúar:
Eiginnafnið Íslilja (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Íslilju, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Íslilja (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.