Mál nr. 10/2014, úrskurður 10. febrúar 2014
Mál nr. 10/2014
Eiginnafn: Andríana
Hinn 10. febrúar 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 10/2014 en erindið barst nefndinni 3. febrúrar.
Eiginnafnið Andríana (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Andríönu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Andríana (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.