Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 138/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 21. júní 2016 er kveðinn upp svohljóðandi úrskurður

nr. 138/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU15100029

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 27. október 2015, kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) þá ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. október 2015, að synja honum um hæli á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002 um útlendinga.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann hátt að honum verði veitt hæli sem flóttamaður hér á landi með vísan til 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins er sú krafa gerð til vara að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og henni breytt á þann hátt að kæranda verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Verði hvorki fallist á aðal- né varakröfu kæranda er sú krafa gerð til þrautavara að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann hátt að honum verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom hingað til lands og sótti um hæli þann 23. ágúst 2015 hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Kærandi mætti í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 13. október s.á. ásamt talsmanni sínum. Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. október 2015, um að synja kæranda um hæli og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla við landið, var birt honum þann 27. október 2015 og kærði kærandi ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála við birtingu. Þá óskaði kærandi eftir frestun réttaráhrifa þann sama dag. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, dags. 28. október 2015. Greinargerð vegna kæru barst kærunefnd útlendingamála þann 26. janúar 2016. Þann 23. febrúar 2016 kom kærandi fyrir kærunefndina og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b laga um útlendinga. Viðstaddir voru talsmaður kæranda og túlkur.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggði umsókn sína um hæli á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna hótana frá fjölskyldumeðlimum sínum. Jafnframt kemur þar fram að ekki

verði séð að í […] sæti fólk kerfisbundum ofsóknum, ofbeldi eða mismunun. Þar séu borgaraleg og stjórnmálaleg mannréttindi í megindráttum virt og að staða annarra mannréttinda fari batnandi. […] yfirvöld hafi undanfarin ár innleitt umfangsmikla mannréttindavernd í landslög og […]. Í […] ríki trúfrelsi og það sé verndað í stjórnarskrá landsins ásamt landslögum. Eitthvað hafi þó borið á kvörtunum vegna þess að stjórnvöld hafi ekki gætt hlutleysis gagnvart þeim trúarbrögðum sem væru í minnihluta í landinu. Í ákvörðuninni kemur fram að í […]. Útlendingastofnun mat frásögn kæranda af hótunum sundurleita, ónákvæma og óstöðuga. Þó hafi ekki verið talin ástæða til að draga í efa frásögn kæranda af fjölskylduerjum hans. Stofnunin gerði þó þann fyrirvara við frásögnina að hann geti sótt viðeigandi aðstoð til yfirvalda en kærandi hafi ekki leitað til þeirra.

Þá kemur fram í ákvörðun Útlendingastofnunar að ekkert bendi til þess að […] yfirvöld og lögregla séu óviljug eða ófær um að rannsaka afbrot, sækja glæpamenn til saka og veita borgurum viðeigandi aðstoð þegar lög séu brotin. Taldi stofnunin að kærandi hafi á engan hátt gert líklegt að hann geti ekki leitað til lögreglu vegna hótana og geti ekki fengið aðstoð vegna þeirra. Ekki var talið að kærandi væri í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem gæti haft áhrif á niðurstöðu í máli hans.

Það var niðurstaða Útlendingastofnunar að aðstæður sem kærandi lýsti tengdust á engan hátt kynþætti, trúarbrögðum eða þjóðerni kæranda, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða stjórnmálaskoðunum. Þegar af þeirri ástæður gæti 1. mgr. 44. gr. ekki átt við í málinu. Þá var talið að atvik sem kærandi lýsti væru ekki svo alvarleg að þau gætu falið í sér ofsóknir, skv. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Þá var ekki talið að hann ætti á hættu illa meðferð, skv. 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Útlendingastofnun skoðaði í samræmi við 8. mgr. 46. gr. útlendingalaga hvort aðstæður kæranda féllu undir ákvæði 12. gr. f laganna. Það var mat stofnunarinnar að kærandi ætti ekki rétt á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þá hafi kærandi ekki borið fyrir sig að hann hefði sérstök tengsl við Ísland og ekkert í málinu benti til slíkra tengsla. Honum var því synjað um dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við Ísland, sbr. 12. gr. f útlendingalaga. Ekki var talið að endursending kæranda til […] bryti gegn 45. gr. útlendingalaga.

Með tilliti til atvika málsins var það niðurstaða Útlendingastofnunar að kæranda skyldi vísað frá landi í samræmi við 3. mgr. 90. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga. Með vísan til 2. mgr. 56. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga þótti rétt að beita frávísun á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. útlendingalaga. Þá var niðurstaða stofnunarinnar að kæra skyldi ekki fresta réttaráhrifum með vísan til c-liðs 1. mgr. 32. gr. útlendingalaga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi […]. Hann hafi sótt um hæli hérlendis vegna ofsókna og hótana af hendi þorpsbúa og meðlima úr móðurfjölskyldu sinni […]. Hann hafi lýst líkamlegu og andlegu ofbeldi af hálfu þessara einstaklinga sem hafi gert það að verkum að hann geti ekki lifað venjulegu lífi. Kæranda hafi margsinnis verið hótað lífláti og tilraun hans til að leita aðstoðar lögreglunnar hafi ekki borið árangur þar sem hann hafi neyðst til að draga kæruna til baka eftir líflátshótanir frá frænda sínum. Hann hafi því brugðið á það ráð að leita til hverfisstjóra í þorpinu sínu sem hafi skrifað bréf um aðstæður kæranda.

Í greinargerð kæranda er gerð athugasemd við staðhæfingu Útlendingastofnunar um að aðstæður sem kærandi lýsi tengist á engan hátt kynþætti, trúarbrögðum, þjóðerni eða aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða stjórnmálaskoðunum og af þeirri ástæðu geti 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga ekki átt

við í málinu. Ástæður flótta kæranda megi rekja til ofsókna sem hann hafi orðið fyrir og líkur standi til að hann muni verða fyrir af hálfu fjölskyldumeðlima og einstaklinga í þorpinu hans í […]. Kærandi bendir á 2. málsl. 2. mgr. 44. gr. a útlendingalaga, en þar segi að ekki skipti máli við mat skv. 1. mgr. 44. gr. hvort umsækjandi hafi þau einkenni eða skoðanir sem vísað sé til ef sá sem sé valdur að ofsóknum telji svo vera. Í leiðbeiningum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um umsóknir um vernd á grundvelli ofsókna vegna trúar segi að undir það falli meðal annars þau tilfelli þegar ofsækjandinn telji að einstaklingur sé [...].

Þá er gerð athugasemd við fullyrðingu í ákvörðun Útlendingastofnunar að kærandi hafi „á engan hátt lýst því að hann hafi þurft að þola ofsóknir.“ Þetta gangi þvert á þá túlkun sem leggja beri til grundvallar á hugtakinu ofsóknir samkvæmt athugasemdum með frumvarpi til útlendingalaga nr. 115/2010 og handbók Flóttamannastofnunar um réttarstöðu flóttamanna. Í greinargerðinni er bent á að við mat á óttanum sé mikilvægt að taka trúverðugleika kæranda til skoðunar. Útlendingastofnun hafi ekki dregið í efa frásögn kæranda af fjölskylduerjum hans. Þrátt fyrir það hafi stofnunin metið frásögn kæranda af hótunum gegn sér sundurleita, ónákvæma og óstöðuga. Kærandi geri athugasemd við þessa ályktun þar sem ekki sé rökstutt að hvaða leyti frásögn hans sé sundurleit, ónákvæm eða óstöðug og því ómögulegt að átta sig að því hvernig þetta gangi saman við fyrri staðhæfingu stofnunarinnar um að ekki sé ástæða til að draga trúverðugleika hans vegna fjölskylduerja í efa. Verði að telja þetta alvarlegan annmarka á ákvörðuninni.

Í greinargerðinni er fundið að því að í ákvörðun Útlendingastofnunar skuli einungis vera tæpt með almennum hætti á ástandi mannréttindamála í […] en lítið fjallað um einstaklingsbundna stöðu kæranda meðal annars út frá þeim ofsóknum sem hann hafi lýst og þeirri staðreynd að hann […]. Stofnunin líti framhjá því að grundvöllur ofsókna á hendur honum séu trúarlegs eðlis og virði að mestu að vettugi frásögn kæranda hvað það snerti. Því verði ekki séð að Útlendingastofnun hafi uppfyllt rannsóknarskyldur sínar samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1992 og 3. og 4. mgr. 50. gr. laga um útlendinga eða að mál kæranda hafi verið skoðað heildrænt og á einstaklingsgrundvelli út frá leiðbeiningum Flóttamannastofnunar. Jafnframt sé ljóst að kærandi geti ekki leitað ásjár yfirvalda í […] og óskað eftir vernd í ljósi þess að yfirvöld þar í landi hafi hvorki getu né vilja til að veita honum vernd.

Kærandi bendir á að samkvæmt skýrslum séu mannréttindi sniðgengin í […] í miklum mæli. Stjórnvöld landsins hafi mikil ítök í löggæslu- og dómskerfinu þar sem mikil spilling ríki. Sú staðhæfing Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki sótt aðstoð til yfirvalda sé röng þar sem kærandi hafi kært ofsóknirnar á hendur sér en neyðst til að draga kæruna til baka vegna líflátshótana. Þá hafi kærandi leitað til hverfisstjóra í þorpi sín sem starfi á vegum hins opinbera og formlegt bréf frá honum liggi fyrir um aðstæður kæranda.

Kærandi bendir á að þó svo að ríki sé skuldbundið að þjóðarétti til að virða mannréttindi endurspegli það ekki endilega raunverulega stöðu mannréttindamála í landinu. Mikil spilling ríki hjá stjórnvöldum og aðgerðir stjórnvalda gegn spillingu hafi skilað takmörkuðum árangri.

Þá er gerð athugasemd við þá staðhæfingu að engar heimildir séu fyrir því að aðilar séu ofsóttir á grundvelli trúar sinnar. […]. Kærandi sé þar af leiðandi í viðkvæmri stöðu í landi sem þekkt sé fyrir mikla spillingu og hlutdrægni.

Þá er bent á 1. mgr. 45. gr. útlendingalaga, sem mæli fyrir um bann við því að senda útlending til svæðis þar sem hann hafi ástæðu til að óttast ofsóknir sem geti leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður

eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skuli útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greini í flóttamannahugtakinu sé í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Að auki myndi slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 2. og 3. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu (MSE), 6. og 7. gr. Samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Verði ekki fallist á aðalkröfu kæranda er gerð sú krafa til vara að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann hátt að kæranda verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Kærandi hefur borið fyrir sig að hann hafi orðið fyrir ofsóknum og hótunum daglega af hendi þorpsbúa og meðlima úr móðurfjölskylda sinni. Hafi hann lýst bæði líkamlegu og andlegu ofbeldi af hálfu þessara einstaklinga. Ennfremur hafi hann greint frá því að honum hafi margsinnis verið hótað lífláti. Helsta ástæða flótta kæranda frá […] sé vantraust á vilja og getu stjórnvalda til þess að veita honum vernd gagnvart ofsækjendum sínum. Ekki sé raunhæft að hann geti raunverlega leitað ásjár yfirvalda þegar heimildir bendi til þess að spilling og mútuþægni séu landlægt vandamál sem veikt réttar- og löggæslukerfi landsins sé á engan hátt í stakk búið til að takast á við eða að veita þegnum sínum viðeigandi vernd gegn.

Verði ekki fallist á aðal- né varakröfu kæranda er gerð sú krafa til þrautavara að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann hátt að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f útlendingalaga. Í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 115/2010, um breytingu á útlendingalögum, komi fram að ekki sé um tæmandi talningu að ræða í 12. gr. f laganna, þar sem veita verði stjórnvöldum svigrúm við mat á því hvenær rétt sé að veita dvalarleyfi samkvæmt greininni. Þá komi fram að taka verði mið af svipuðum sjónarmiðum og gert sé í málum skv. VII. kafla laganna, s.s. almennra aðstæðna í heimalandi hælisleitanda, þ. á m. hvort grundvallarmannréttindi séu nægilega tryggð. Miðað sé við að heildarmat fari fram á öllum þáttum máls áður en leyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða sé veitt. Þá sé vikið að félagslegum aðstæðum og vísað til þess hvort útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimalandi og fari verndarþörf þjóðfélagshópa eftir aðstæðum í hverju máli. Ennfremur segi í frumvarpinu að með mjög íþyngjandi félagslegum aðstæðum að öðru leyti sé átt við alvarlegar aðstæður í heimaríki, t.d. viðvarandi mannréttindabrot eða þá aðstöðu að stjórnvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum.

Í greinargerðinni kemur fram að kærandi óttist um líf sitt og frelsi og telji yfirvöld í […] ófær um að veita honum þá vernd sem hann þarfnist. Með hliðsjón af þessu og því sem rakið hafi verið varðandi yfirvöld, lögreglu og réttarkerfið í […], ásamt þeirri spennu sem nú ríki gagnvart […], séu skilyrði 12. gr. f uppfyllt. Þá sé í ljósi þess að ríkið skorti vilja og getu til að vernda kæranda og flutningur innanlands ekki raunhæft úrræði. Þá sé […] og mikilvægt að hafa það atriði í huga þegar aðstæður kæranda séu metnar í tengslum við möguleika á flutningi innanlands.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði

mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað […] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé […] ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Lýðveldið […] er ríki með um […] íbúa og eru mannréttindi almennt virt af stjórnvöldum þar í landi. […]

Kærunefnd útlendingamála hefur m.a. skoðað eftirfarandi skýrslur um aðstæður í […]:

[…]Í ofangreindum gögnum kemur m.a. fram að spilling sé þó nokkur í […] stjórnkerfinu. […] hafi hins vegar gripið til ýmissa aðgerða til að sporna við spillingu með misgóðum árangri. […]. Gögnin benda til þess að trúfrelsi sé almennt virt í […] og að aðilar eigi að jafnaði ekki á hættu að vera ofsóttir vegna trúar sinnar.

Ákvæði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn

athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimalandi. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að gildar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008)).

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða áreiti af hendi […] yfirvalda. Kærandi kveðst hafa ætlað að leita til lögreglu en hætt við vegna hótana frá ættingja. Hann hafi þó lagt fram bréf frá hverfisstjóranum í þorpinu þar sem hótunum á hendur honum sé lýst. Skýrslur og gögn sem kærunefnd hefur skoðað benda ekki til þess stjórnvöld þar geti ekki eða vilji ekki veita honum vernd gegn ofsóknum, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir.

Þá er það mat kærunefndar, með vísan til gagna um aðstæður í […] sem kærunefnd hefur skoðað og frásagnar kæranda, að þær hótanir sem kærandi kveðst hafa orðið fyrir teljist ekki til ofsókna í skilningi 1. mgr. 44. gr. a laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 44. gr. a s.l.

Ennfremur er það mat kærunefndar að þó svo kærandi ætti raunverulega á hættu illa meðferð í heimalandi sínu, af hálfu þeirra aðila sem hann hefur nefnt, þá sé slík hætta staðbundin og að hann hafi raunhæfan möguleika á að flytja sig um set og leita ásjár stjórnvalda þar.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Kærandi krefst þess til vara að hinni kærðu ákvörðun verði breytt á þann veg að kæranda verði veitt viðbótarvernd hér á landi skv. 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga.

Í 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands.

Í ljósi þess sem að framan er rakið telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. og 1. mgr. 45 gr. laganna.

Ákvæði 12. gr. f útlendingalaga

Til þrautavara krefst kærandi þess að hinni kærðu ákvörðun verði breytt á þann veg að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f laga nr. 96/2002.

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar upplýsingar um heimaland kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í […] séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f útlendingalaga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The Directorate of Immigration‘s decision is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson Vigdís Þóra Sigfúsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta