Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 419/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 23. nóvember 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 419/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16070020

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 14. júlí 2016 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefnd kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 6. júlí 2016, um að synja henni um hæli á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og kæranda verði veitt staða flóttamanns með vísan til 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að kæranda verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um hæli hér á landi þann 22. febrúar 2016, ásamt eiginmanni sínum. Kærandi kom m.a. í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 20. júní 2016 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 6. júlí 2016, synjaði Útlendingastofnun kæranda um hæli ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 14. júlí 2016. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 18. ágúst 2016.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Hjá Útlendingastofnun bar kærandi því við að eiginmaður hennar eigi á hættu að verða myrtur vegna [...] í heimalandi þeirra.

Við mat á trúverðugleika frásagnar kæranda benti Útlendingastofnun m.a. á að ástand lögreglumála sé gott í […] og fari stöðugt batnandi. Eftirfylgni við hverslags brot gegn refsilöggjöf sé góð, íbúar landsins njóti allra helstu mannréttinda og í landinu sé til staðar kerfi sem þeir geti leitað til sem telja á sér brotið. Fjallaði Útlendingastofnun sérstaklega um [...] í […] og benti m.a. á að manndráp og hótanir á [...] séu refsiverð samkvæmt […] lögum. Auk þess leitist stjórnvöld við [...] fjölskyldur. Þó nokkrar [...] séu starfandi sem sinni þessu hlutverki og einnig hafi verið settar á stofn sérstakar deildir innan lögreglunnar sem sérhæfi sig í að vinna gegn refsiverðum brotum sem stafi af [...]. Yfirvöld í […] hafi sýnt aukna viðleitni til að veita aðilum [...] fullnægjandi vernd og á allra síðustu árum hafi verið lögð áhersla á að bregðast við [...], sérstaklega í þeim landshlutum sem kærandi komi frá. Hafi það verið gert bæði með betri leiðbeiningum til lögreglu og saksóknara og með því að þyngja refsingar við árásum í [...]. Allar upplýsingar gefi því tilefni til að ætla að kærandi eigi raunhæfan möguleika á að leita aðstoðar yfirvalda ef hún óttist [...]. Kærandi hafi kveðið að hún hafi leitað aðstoðar lögreglu og fengið símanúmer sem hún hafi átt að hringja í ef á þyrfti að halda. Ekkert sé því fram komið um að kærandi myndi ekki hljóta nægilega vernd yfirvalda í heimalandi sínu. Einnig verði að telja að hún hafi möguleika á að flytja sig um set í […].

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kærandi hafi ekki borið fyrir sig að eiga á hættu ofsóknir eða illa meðferð af hálfu […] yfirvalda og ekki verði ráðið af frásögn kæranda eða fyrirliggjandi upplýsingum að aðilinn sem hún kveður að eiginmaður sinn [...] við stjórni […] ríkinu eða svæðum innan þess. Ekkert í frásögn kæranda gefi ástæðu til að ætla að umkvörtunarefni kæranda fái ekki viðeigandi meðferð hjá […] yfirvöldum af ástæðum sem varða hana sjálfa. Synjaði því Útlendingastofnun kæranda um hæli skv. 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga.

Stofnunin taldi jafnframt ljóst að kærandi eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hún send aftur til heimalands síns. Kærandi eigi því ekki á hættu illa meðferð skv. 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga.

Varðandi kröfu kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f taldi Útlendingastofnun að kærandi ætti ekki rétt á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Auk þess hefði hún engin sérstök tengsl við landið. Einnig taldi stofnunin endursendingu kæranda ekki brjóta gegn ákvæði 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga.

Að lokum var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 56. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga. Með tilliti til atvika málsins ákvað stofnunin að kæra skyldi fresta framkvæmd ákvörðunar með vísan til 1. mgr. 32. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að ástæða flótta hennar frá heimaríki sé sú að […] hafi eiginmaður hennar orðið manni að bana í bílslysi. [...] Hún óttist um líf eiginmanns síns og telur lögregluna ekki í stakk búna til að veita þeim þá vernd sem þeim sé nauðsynleg.

Í greinargerð kæranda kemur fram að [...] séu vandamál á vissum stöðum í […], aðallega í […]. Gerir kærandi m.a. athugasemd við þá fullyrðingu Útlendingastofnunar að [...] séu fá og fari fækkandi í landinu. Bendir kærandi á að misræmi sé í tölfræði varðandi tíðni [...] í […] og vísar í alþjóðlegar skýrslur máli sínu til stuðnings. Skortur á tölfræði geri það að verkum að erfitt sé að staðfesta nákvæma tíðni slíkra [...] í landinu. Telur kærandi því óvarlegt að staðhæfa að [...] séu fátíðar í landinu.

Jafnframt telur kærandi að hún og eiginmaður hennar, sem aðilar að [...], falli undir „aðild að tilteknum þjóðfélagshópi“. Bendir kærandi á að samkvæmt leiðbeiningum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá 2006 um [...]geti fjölskylda talist vera sérstakur þjóðfélagshópur þegar líkur séu á því að meðlimir ákveðinnar fjölskyldu séu í hættu á að verða fyrir pyndingum eða vanvirðandi meðferð við endursendingu.

Auk þess bendir kærandi á að samkvæmt handbók um réttarstöðu flóttamanna sé ekki til að dreifa almennt viðurkenndri skilgreiningu á „ofsóknum“, en af 33. gr. flóttamannasamningsins megi draga þá ályktun að sé lífi eða frelsi ógnað vegna kynþáttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana eða fyrir að tilheyra ákveðnum þjóðfélagshópi, séu það ávallt ofsóknir. Önnur alvarleg brot á mannréttindum myndu einnig teljast ofsóknir af sömu ástæðum. [...]. Telur kærandi að með hliðsjón af þessu sé enginn vafi á því að skilyrðinu um „ofsóknir“, sbr. einnig 1. mgr. 44. gr. a laga um útlendinga, sé fullnægt þar sem lífi eiginmanns hennar hafi verið ógnað með þeim hætti sem lýst hafi verið.

Varðandi umfjöllun Útlendingastofnunar um [...]nefndir í […] bendir kærandi á að í skýrslunni frá […] segi að [...] þessar séu ekki viðurkenndar af stjórnvöldum og þær hafi því ekki lagalega heimild til að gefa út þau skírteini sem þær geri að [...] lokinni. Einu aðilarnir sem hafi heimild til þess séu skrifstofa saksóknara og dómstólar. Staðhæfing Útlendingastofnunar um að stjórnvöld í […] leitist við að [...] fjölskyldur sem [...] sé því ekki að fullu á rökum reist.

Í greinargerð sinni bendir kærandi auk þess á að það sé til lítils að ætlast til þess að hún geti leitað til […] yfirvalda og hlotið þar vernd, þegar það liggi fyrir í skýrslum alþjóðlegra stofnana að umfangsmikil opinber spilling ríki í […] og réttarkerfið þar sé óburðugt. Ekki sé hægt að ganga út frá því að yfirvöld séu fær um að veita þegnum sínum fullnægjandi vernd með vísan til þess að gefnar hafi verið út betri leiðbeiningar til lögreglu og saksóknara og með því að þyngja refsingar við árásum í [...]. Það eitt og sér segi ekkert til um hvernig framkvæmdin sé í raun og veru. Þvert á móti megi benda á að þrátt fyrir þungar refsingar þá eigi [...] sér ennþá stað að hluta til vegna tilhneigingar dómstóla til þess að dæma gerendur til lágra refsinga.

Helsta ástæða flótta kæranda sé vantraust á vilja og getu stjórnvalda til þess að veita henni og eiginmanni hennar vernd gagnvart þeim sem hafi staðið í líflátshótunum við hann. Í viðtali kæranda hafi komið fram að hún og eiginmaður hennar hafi leitað til lögreglu eftir aðstoð og lögreglan hafi látið þau fá símanúmer sem þau gætu hringt í. Önnur afskipti hafi lögreglan ekki haft af málinu. Afskiptaleysi lögreglunnar í máli þeirra endurspegli hversu illa réttar- og löggæslukerfi […] sé í stakk búið til að takast á við eða að veita þegnum sínum viðeigandi vernd. Það sé í raun óraunhæft að krefjast þess að kærandi geti leitað ásjár […] yfirvalda þegar heimildir bendi til þess að spilling og mútuþægni séu landlægt vandamál og traust til lögreglunnar afar bágborið. Telur kærandi að endursending hennar myndi brjóta í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga, 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamningsins.

Varðandi varakröfu kæranda er í greinargerð hennar fjallað um ákvæði 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga og samspil ákvæðisins við m.a. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 15. gr. tilskipunar Evrópubandalagsins nr. 2004/83/EB frá 29. apríl 2004. Tilskipunin hafi nú verið endurskoðuð með tilskipun nr. 2011/95/ESB. Í II. kafla tilskipunarinnar séu talin upp þau viðmið sem hafa beri til hliðsjónar við mat á þörf einstaklings fyrir alþjóðlegri vernd. Skuli slíkt mat fara fram á einstaklingsgrundvelli og verði m.a. að meta hvort hægt sé með sanngjörnum hætti að ætlast til þess að umsækjandi leiti verndar stjórnvalda í viðkomandi ríki.

Telur kærandi að ljóst sé að hún uppfylli öll skilyrði þess að hljóta viðbótarvernd þar sem hún sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð af hálfu [...] og sem hafi hótað að myrða hann.

Varðandi varakröfu kæranda kemur fram í greinargerð hans að í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 115/2010, um breytingu á lögum um útlendinga, komi fram í sérstökum athugasemdum að ekki sé um tæmandi talningu að ræða í 12. gr. f laganna á forsendum dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þar sem veita verði stjórnvöldum svigrúm við mat á því hvenær rétt sé að veita dvalarleyfi samkvæmt greininni. Taka verði mið af svipuðum sjónarmiðum og gert sé í málum skv. VII. kafla laganna s.s. almennra aðstæðna í heimalandi hælisleitanda, þ. á m. hvort grundvallarmannréttindi séu nægilega tryggð. Telur kærandi að skilyrði 12. gr. f laga um útlendinga séu uppfyllt þar sem stjórnvöld í […], fyrst og fremst lögreglan, annað hvort vilji ekki eða geti ekki veitt þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum af því tagi sem um ræði.

Bendir kærandi á að ekki sé mögulegt fyrir hana að búa annars staðar í […]. Landið sé lítið og því sé ekki sjálfgefið að unnt sé að láta sig hverfa og lifa lífi sínu í friði án afskipta þeirra sem maður óttist.

VI. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi framvísað […] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé […] ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í […]m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

Í ofangreindum gögnum kemur m.a. fram að […] stjórnvöld hafi tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og að […] hafi miðað áfram í málefnum er snerta réttarkerfið og frelsi og öryggi borgara landsins. […] stjórnvöld hafi tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna vegna [...], t.d. hafi verið gerðar ýmsar stefnubreytingar í þessum málum og sérstök ákvæði verið sett í refsilöggjöf landsins sem refsa fyrir [...], með þyngri refsiramma en morð almennt. Í kjölfarið hafi fjöldi morða og [...] farið fækkandi. Tilfellum [...] fari fækkandi og stjórnvöld fylgi þeim málum eftir með ákærumeðferð og aðstoði fjölskyldur og þolendur [...].

Ákvæði 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Kærandi ber fyrir sig að hún og eiginmaður hennar eigi í [...] í […] og hann óttist um líf sitt verði þeim gert að snúa aftur til […].

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimalandi. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að gildar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008)).

Kærunefnd fellst á það sjónarmið kæranda að meðlimir fjölskyldu sem [...] beinist að geti talist vera sérstakur þjóðfélagshópur í skilningi d-liðar 2. mgr. 44. gr. a. Sá skilningur er í samræmi við leiðbeiningar frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna [...]

Kærandi kveður að rekja megi [...]. Kærandi kveður eina helstu ástæðu flótta hennar vera vantraust á vilja yfirvalda til þess að veita henni og eiginmanni hennar vernd gagnvart þeim sem hafi staðið í líflátshótunum við hann.

Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað við meðferð málsins virðast lögregla og yfirvöld í […] hafa síðustu ár unnið að því að uppræta þann vanda sem fylgir [...] í landinu ásamt því að bæta aðstoð við fórnarlömb slíkra [...]. […]. Í fyrrnefndum skýrslum og öðrum gögnum sem kærunefndin hefur farið yfir kemur fram að mikil spilling hafi verið ríkjandi í réttarkerfi […], þ.e. innan lögreglu, ákæruvalds og dómstóla. Stjórnvöld hafi þó leitað ýmissa leiða til þess að uppræta þessa spillingu og hafi þó nokkuð áunnist í þeim málum.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða áreiti af hendi […] yfirvalda. Þá benda gögn ekki til þess að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir yfirvalda eða aðila á þeirra vegum. Með vísan til þess sem fram hefur komið telur kærunefnd að ekki hafi verið sýnt fram á að yfirvöld geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn hugsanlegum ofsóknum, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir [...]eða hótanir þar um, sbr. c-lið 3. mgr. 44. gr. a laga um útlendinga. Kærunefnd telur þvert á móti að yfirvöld hafi tekist á við þann vanda sem kann að hafa stafað, og að einhverju leyti stafar enn, [...]. Er það því mat kærunefndar að þó svo að fallist væri á að kærandi ætti í raunverulegri og [...] í heimalandi sínu þá hafi hún raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár stjórnvalda þar í landi. Að öllu framangreindu virtu telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga fyrir veitingu stöðu flóttamanns.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum teljist einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn komist að þeirri niðurstöðu að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki eru á vegum yfirvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og frásögn kæranda verður að fá stuðning í öðrum gögnum, sbr. t.d. úrlausn Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N.M. og M.M. gegn Bretlandi (mál nr. 38851/09 og 39128/09) frá 25. janúar 2011.

Í þeim gögnum sem kærunefndin hefur farið yfir kemur m.a. fram að stjórnvöld í […] vinni að því að bæta réttarkerfi landsins og frelsi og öryggi almennings. Hefur þó nokkur árangur náðst síðustu ár, þó að enn sé þörf á frekari umbótum. Þó að rétt sé að veikleikar séu á réttarkerfinu í […] þá hafa átt sér stað umbætur á liðnum árum og því er það mat kærunefndar að þó svo að kærandi ætti raunverulega á hættu að sæta ofbeldi í heimalandi sínu, af hálfu þeirra aðila sem hún hefur nefnt, þá hafi hún raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár stjórnvalda í heimalandi sínu. Heimildir styðja því ekki við þá staðhæfingu kæranda að […] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda viðeigandi vernd óski hún eftir henni við þau.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um […] telur kærunefnd að aðstæður kæranda í heimalandi hennar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefnd ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. gr. og 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 12. gr. f laga um útlendinga

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Kærunefnd telur með vísan til orðalags ákvæðisins um „rík mannúðarsjónarmið“ og „ríka þörf á vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar gögn málsins eru virt í heild sinni er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í […] séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f útlendingalaga.

Jafnframt telur kærunefndin kæranda ekki uppfylla skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á Íslandi í skamman tíma.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Anna Tryggvadóttir Pétur Dam Leifsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta