Hoppa yfir valmynd

Nr. 220/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 9. júní 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 220/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22040046

 

Beiðni [...] um endurupptöku

  1. Málsatvik

    Með úrskurði kærunefndar útlendingamála í máli nr. KNU21060036, dags. 21. október 2021, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. maí 2021, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa henni frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda hinn 8. nóvember 2021. Hinn 15. nóvember 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar og var þeirri beiðni synjað með úrskurði kærunefndar hinn 16. desember 2021. Hinn 24. janúar 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku á úrskurði nefndarinnar og var þeirri beiðni synjað með úrskurði kærunefndar hinn 24. febrúar 2022.

    Hinn 22. apríl 2022 barst kærunefnd öðru sinni beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun hinn 25. apríl 2022. Athugasemdir bárust frá kæranda dagana 18. og 20. maí 2022.

    Af greinargerð kæranda má ætla að beiðni hans um endurupptöku málsins byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

  2. Málsástæður og rök kæranda

    Beiðni kæranda um endurupptöku málsins byggir á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því að hún lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi, en tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á hennar ábyrgð. Með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skuli umsókn kæranda því tekin til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi vísar til þess að samkvæmt stjórnsýsluframkvæmd hafi afgreiðsla umsóknar í skilningi framangreinds ákvæðis miðast við umsóknardag annars vegar og hins vegar þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda sé framkvæmd með flutningi til viðtökuríkis. Þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir og kærandi sé enn á landinu telur hún að stjórnvöldum sé skylt að taka umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar hér á landi.

  3. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um endurupptöku stjórnsýslumáls

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi hinn 19. apríl 2021 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti hinn 19. apríl 2022. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hennar sjálfrar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í upplýsingum sem kærunefnd bárust frá Útlendingastofnun, dags. 25. apríl 2022, varðandi fyrirspurn um tafir á málsmeðferð og flutning kæranda, kemur fram að ekkert í gögnum Útlendingastofnunar gefi til kynna að umsækjandi hafi tafið mál sitt að einhverju leyti. Varðandi upplýsingar um fyrirhugaðan flutning umsækjanda úr landi og samvinnu við stoðdeild ríkislögreglustjóra beinir stofnunin kærunefnd að leita til stoðdeildar.

Í upplýsingum sem bárust frá stoðdeild ríkislögreglustjóra, dags. 25. apríl 2022, kemur fram að stoðdeild hafi borist verkbeiðni í máli kæranda hinn 16. desember 2021. Hinn 31. janúar 2021 hafi stoðdeild haft samband við kæranda símleiðis en hún hafi ekki svarað. Skömmu síðar hafi lögmaður hennar haft samband og honum tjáð að verið væri að boða kæranda í viðtal þar sem óskað væri eftir afstöðu hennar til þess að fara aftur til Grikklands. Lögmaður kæranda kvaðst ætla að hafa samband við kæranda og boða hana í viðtal að Bæjarhrauni 18 kl. 10:30, hinn 2. febrúar 2022. Þá kemur fram að kærandi hafi haft samband við stoðdeild hinn 1. febrúar 2022 og óskað eftir að fá heimilisfang sent í símann sinn. Kærandi hafi mætt í viðtalið hinn 2. febrúar 2022 og bæði talað og skilið ensku vel. Henni hafi verið kynnt Tilkynning um framkvæmd frávísunar frá Íslandi til Grikklands á ensku. Kærandi hafi skilið það sem lesið var fyrir hana en neitað að skrifa undir tilkynninguna án samráðs við lögmann sinn. Þá hafi hún neitað að merkja við svarreiti á tilkynningunni s.s. hvort hún ætlaði að sýna samstarfsvilja í tengslum við framkvæmd flutnings úr landi og hvort hún myndi framvísa Covid-19 bólusetningarvottorði til þess að liðka fyrir framkvæmd flutnings.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 17. maí 2022, var kærandi upplýst um afstöðu stoðdeildar og gefinn frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Andmæli kæranda bárust kærunefnd dagana 18. og 20. maí 2022. Í svari kæranda hinn 18. maí 2022 kemur m.a. fram að hún telji engan vafa á því að hún hafi ekki tafið mál sitt í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Sú háttsemi kæranda að nýta sér lögvarinn rétt sinn til samráðs við málsvarnarmann geti ekki talist til tafar í nokkrum skilningi orðsins. Því til stuðnings vísar kærandi til 13. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sem Ísland lögfesti með lögum nr. 10/1979, sem kveði á um rétt útlendings til að fá mál sitt tekið til endurskoðunar og hafa málsvarnarmann í því skyni. Sú túlkun væri ekki aðeins til þess fallin að Mannréttindasáttmáli Evrópu væri haldlaus í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd sem heyrðu undir 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, heldur yrði einnig brotið gegn 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944. Með vísan til þess að réttur til réttlátrar málsmeðferðar sé einn af hornsteinum réttarríkisins og að samkvæmt meginreglu beri íslenskum stjórnvöldum að taka umsóknir um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, leiki ekki vafi á því að kærandi hafi ekki tafið mál sitt. Þau orð kæranda að hún skrifi ekki undir án lögmanns verði ekki skilin á annan veg en að hún myndi skrifa undir væri lögmaður hennar viðstaddur. Í því felist ekki viðleitni til að tefja málið heldur yfirlýsing þess efnis að hún muni skrifa undir fái hún annan fund þar sem hún geti tekið lögmann með sér. Slíkur fundur hafi enn ekki farið fram. Lögreglan hafi haft fullt tækifæri og ráðrúm til að gera frekari ráðstafanir en hafi látið það ógert.

Hinn 20. maí 2022 bárust frekari andmæli kæranda þar sem m.a. kemur fram að hún telji að stoðdeild hafi augljóslega verið að kanna afstöðu hennar til fyrirhugaðs flutnings með almennum hætti. Kærandi vísar til þess að umrædd tilkynning hafi verið birt fyrir kæranda hinn 2. febrúar 2022, eða 105 dögum frá því kærunefnd úrskurðaði í máli hennar. Kærandi vísar til þess að engin gögn liggi fyrir um hvort stoðdeild hafi verið búin að undirbúa flutning með öðrum hætti, t.d. með því að bóka flugmiða eða útbúa ferðaskilríki. Að mati kæranda standist ekki skoðun að fresta framkvæmd ákvörðunar úr öllu hófi enda hafi það verið verulega íþyngjandi fyrir kæranda að bíða eftir skilaboðum frá lögreglu um framkvæmd og flutning. Þá sé ekkert í málinu sem gefi til kynna að kærandi hafi tafið mál sitt með nokkrum hætti. Kærandi hafi einungis tekið fram að hún hafi ekki ætlað að merkja við eða undirrita neitt án samráðs við lögmann sinn. Hún hafi t.a.m. aldrei tekið fram að hún muni ekki undirgangast Covid-19 sýnatöku. Af svari stoðdeildar megi ráða að ekki hafi verið gerðar frekari tilraunir af hálfu stoðdeildar að undirbúa flutning á kæranda og því sé framkvæmdin ómarkviss. Kærandi telur enn fremur að munnleg yfirlýsing hennar um að hún vilji ekki snúa aftur til Grikklands geti ekki talist töf á afgreiðslu málsins. Kærandi vísar til úrskurða kærunefndar í málum nr. KNU21080008, dags. 22. september 2021 og KNU21070020, dags. 26. ágúst 2021 máli sínu til stuðnings og telur aðstæður vera sambærilegar.

Líkt og komið hefur fram hitti stoðdeild kæranda hinn 2. febrúar 2022 til þess að kanna afstöðu hennar til flutnings til viðtökuríkis. Á umræddum fundi var kærandi m.a. spurð hvort hún myndi sýna samstarfsvilja í tengslum við framkvæmd flutnings úr landi og hvort hún myndi framvísa Covid-19 bólusetningarvottorði til þess að liðka fyrir framkvæmd flutnings. Kærandi neitaði að gefa upp afstöðu í tengslum við framangreint ásamt því að neita að undirrita tilkynninguna sem henni var kynnt á ensku, án samráðs við lögmann sinn. Af svari stoðdeildar má ráða að ekki hafi verið gerðar frekari tilraunir af hálfu stoðdeildar til að kanna afstöðu hennar til fyrirhugaðs flutnings. Þrátt fyrir að fyrir liggi að lögmaður kæranda hafi séð um að boða kæranda í umrætt viðtal og hafi því verið ljóst efni fundarins hefði stoðdeild verið í lófa lagið að bjóða henni að ráðfæra sig við lögmann sinn. Kærunefnd telur að framkvæmd stoðdeildar sé ómarkviss að þessu leyti og að sú yfirlýsing kæranda að neita að skrifa undir tilkynninguna án samráðs við lögmann sinn, geti ein og sér ekki talist töf á afgreiðslu málsins.

Með hliðsjón af framangreindu er því ekki grundvöllur fyrir kærunefnd til að ákvarða að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hennar ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er uppfyllt og ber að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Í ljósi framangreinds er því fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hún eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hennar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.


 

Úrskurðarorð:

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hennar.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                       Gunnar Páll Baldvinsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta