Hoppa yfir valmynd

Nr. 354/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 16. ágúst 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 354/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18060009

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 4. júní 2018 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. maí 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Grikklands.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar á Íslandi með vísan til 2. mgr. 36. gr. og 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 7. desember 2017. Kærandi mætti til viðtala hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 20. desember 2017 og 15. febrúar 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 14. maí 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Grikklands. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 22. maí 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 4. júní 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 18. júní 2018 ásamt fylgigögnum. Í greinargerð óskaði kærandi eftir því að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun sinni komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnislegrar meðferðar með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í málinu lægi fyrir að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og dvalarleyfi með gildistíma til 4. desember 2018.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var komist að þeirri niðurstöðu að 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur aftur til Grikklands. Útlendingastofnun mat aðstæður kæranda slíkar að hann væri í sérstaklega viðkvæmri stöðu vegna pyndinga sem hann hefði orðið fyrir í heimaríki skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Það var hins vegar mat stofnunarinnar að 2. mgr. 36. gr. sömu laga ætti ekki við í máli kæranda. Var umsókn kæranda um alþjóðlega vernd því synjað um efnismeðferð, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Þá frestaði kæra réttaráhrifum ákvörðunar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi komið til Grikklands árið 2011 þegar borgarastríðið í Sýrlandi hafi brotist út. Kærandi lýsir bágum aðstæðum sínum í Grikklandi og nefnir að hann hafi þurft að dvelja í Grikklandi án dvalarleyfis um tíma og hafi því verið settur í varðhald vegna ólögmætrar dvalar. Þá hafi kærandi verið vistaður í lokuðum flóttamannabúðum í þrjá og hálfan mánuð þar sem hann hafi sætt ofbeldi. Maturinn í búðunum hafi verið vondur og erfitt hafi reynst fyrir kæranda að nálgast lyf. Hafi kærandi eitt sinn óskað eftir því að fara til læknis en þá hafi hann verið handjárnaður og færður á spítala. Hafi umrædd reynsla haft mikil áhrif á andlega heilsu hans. Kærandi lýsir því hvernig hann hafi búið í yfirgefnu húsnæði í Grikklandi og að hann hafi safnað flöskum til að eiga fyrir daglegum þörfum. Hann hafi enga aðstoð fengið frá yfirvöldum í Grikklandi, ekki átt efni á að leigja íbúð og erfiðlega hafi reynst að fá atvinnu þar í landi.

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann sé með bakverki vegna hnúðs á bakinu sem reglulega fyllist af vökva. Þá sé kærandi með gífurlegan verk í fæti, hann eigi erfitt með að ganga mikið og verði fljótt þreyttur í fótunum. Þá glími kærandi við andlega vanheilsu og taki lyf við því. Kærandi kveður að hann hafi orðið fyrir pyndingum í fangelsi í heimaríki í þrjár vikur árið 2006. Lýsir kærandi pyndingunum á þá leið að tennur í honum hafi verið brotnar, hann hafi verið laminn með bareflum, járnstöng og rafmagnskapli. Þá hafi verið borað í fót hans með borvél. Eftir að hafa yfirgefið heimaríki fór kærandi til Sýrlands og dvaldist þar um tíma. Þar hafi andleg veikindi hans versnað til muna. Þá sé kærandi haldinn kviðverkjum sem hann telur að tengist andlegum veikindum sínum.

Kærandi byggir kröfu sína um að mál hans verði tekið til efnismeðferðar á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Telur kærandi að ákvæðið leggi þá skyldu á stjórnvöld að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef sérstakar ástæður mæli með því. Kærandi vísar til laga nr. 81/2017 sem breytt hafi lögum um útlendinga auk þess að vísa til nýlegra úrskurða kærunefndar útlendingamála þar sem fram komi að viðkvæm staða skuli hafa aukið vægi andspænis sjónarmiðum sem tengist m.a. skilvirkni við meðferð umsóknar og mikilvægis samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins. Þá telur kærandi að sjónarmið íslensks réttar um bann við afturvirkni íþyngjandi reglna girði fyrir að hægt sé að beita reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 eins og henni hafi verið breytt með reglugerð nr. 276/2018. Kærandi bendir auk þess á að reglugerðin mæli einungis fyrir um mat sem rúmast innan c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og gildi því ekki um a-lið sama ákvæðis. Þá vísar kærandi til þess að samkvæmt áralangri stjórnsýsluframkvæmd hafi íslensk stjórnvöld ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin) og beri heimildir með sér að staða einstaklinga með alþjóðlega vernd sé síður en svo skárri en staða umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi.

Kærandi telur að við mat á því hvort viðkvæm staða hans verði talin leiða til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki verði að skoða einstaklingsbundnar aðstæður hans með tilliti til andlegrar og líkamlegrar heilsu hans og frásagnar hans af því ofbeldi sem hann hafi orðið fyrir. Kærandi bendir í því sambandi á nýlega úrskurði kærunefndar útlendingamála máli sínu til stuðnings. Telur kærandi að úrskurðirnir beri með sér að heildstætt mat á viðkvæmri stöðu hans, aðstæðum hans og fyrirliggjandi gögnum muni leiða til þess að talið verði að sérstakar ástæður séu uppi í máli hans í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og af þeim sökum beri íslenskum stjórnvöldum skylda til þess að taka umsókn hans til efnismeðferðar. Endursending til Grikklands yrði kæranda afar þungbær enda megi vænta þess að staða hans verði verulega síðri en almennings í viðtökuríkinu vegna uppruna hans, þess ofbeldis sem hann hafi mátt þola og vegna erfiðleika við að komast á vinnumarkaðinn, afla heilbrigðisþjónustu og húsnæðis.

Þá er í greinargerð gerð grein fyrir ýmsum atriðum er varða aðstæður, aðbúnað og réttarstöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og er í því sambandi vísað til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka. Þar komi m.a. fram að vegna landfræðilegrar legu hafi Grikkland þurft að bera þungann af straumi flóttafólks frá Afríku og Mið-Austurlöndum síðastliðin ár, þrátt fyrir að vera það Evrópuríki sem hafi ef til vill verið einna síst í stakk búið til að taka á móti slíkum fjölda fólks vegna efnahags- og stjórnmálakreppu sem hafi haft mikil áhrif á landið. Í skýrslum komi meðal annars fram að fordómar og mismunun viðgangist gagnvart flóttamönnum í Grikklandi. Almenningsálit í málefnum innflytjenda hafi snúist til hins verra á undanförnum misserum og þá sé félagslegt húsnæði eða annar stuðningur ekki í boði fyrir flóttamenn þar í landi.

Af hálfu kæranda er einnig byggt á því að vegna aðbúnaðar og aðstæðna hans í Grikklandi myndi endursending hans þangað brjóta gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. einnig 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Með vísan til þess sem rakið hafi verið um aðstæður viðurkenndra flóttamanna í Grikklandi sé ljóst að aðstæður þeirra séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. sáttmálans.

Til stuðnings varakröfu kæranda, um að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju, vísar kærandi til þess að rannsókn málsins hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 þar sem rannsókn málsins og rökstuðningur fyrir niðurstöðu stofnunarinnar hafi verið verulega áfátt.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 13. nóvember 2015 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 4. desember 2018. Eru því skilyrði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi einstakling sem nýtur alþjóðlegrar verndar aftur til ríkisins sem hefur veitt honum slíka vernd, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, þar sem kveðið er á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Verður kærunefnd því að leggja mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við ákvæði 3. gr. mannréttindasáttmálans. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar. Þá þarf að líta til stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Meta verði fyrirsjáanlegar afleiðingar af því að vísa einstaklingi til móttökuríkis í ljósi almennra aðstæðna í ríkinu og persónulegra aðstæðna viðkomandi einstaklings.

Greining á hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […], einhleypur og barnlaus karlmaður. Í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun, dags. 20. desember 2017, kvaðst kærandi aðspurður um líkamlegt heilsufar sitt vera með verk í bakinu sökum hnúðs sem fyllist reglulega af vökva og tappa þurfi af. Í komunótum Göngudeildar sóttvarna, dags. 2. mars 2018, kemur fram að kærandi sé með kviðverki og að hann hafi verið greindur með bakflæði. Þá kvaðst kærandi, í viðbótarviðtali hjá Útlendingastofnun þann 15. febrúar 2018, hafa orðið fyrir pyndingum í heimaríki sem áhrif hefði á andlega heilsu sína. Í gögnum málsins kemur fram að kærandi hafi hitt sálfræðing Göngudeildar í tvígang og að honum hafi verið ávísað lyf. Segir í komunótu sálfræðings Göngudeildar sóttvarna, dags. 2. mars 2018, að kærandi hafi verið greindur með áfallastreituröskun og þrálátt þunglyndi í kjölfar áfalls og hrakninga.

Kærandi var metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Samkvæmt framansögðu þá liggja fyrir í málinu læknisfræðileg gögn sem varpa ljósi á heilsufar kæranda og ljóst að kærandi er haldinn áfallastreituröskun og þunglyndi. Með vísan til gagna málsins er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu slíkar að hann teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018);
  • 2017 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • Freedom in the World 2017 – Greece (Freedom House, 1. september 2017);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2016);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017) og
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016).

Af framangreindum gögnum má sjá að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Jafnframt eru til staðar frjáls félagasamtök sem aðstoða þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi við að kynna sér réttindi sín.

Þá eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í landinu.

Þá má sjá í framangreindum gögnum að einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi rétt á aðgengi að húsnæði. Fá gistiskýli eru þó í boði fyrir heimilislausa í Grikklandi auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst fyrir heimilislausa í Grikklandi að fá pláss í gistiskýlum fyrir heimilislausa þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem sendir hafa verið aftur frá öðrum Evrópuríkjum. Í janúar 2018 fengu um 3000 einstaklingar með alþjóðlega vernd húsnæði og um 6000 einstaklingar fjárhagsaðstoð.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegrar greiðslu. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, t.d. fyrir einstaklinga sem eru fórnarlömb pyndinga.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 20. apríl 2018 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að aðbúnaður í fangelsum og varðhaldsstöðvum sé víða ekki fullnægjandi. Klefar séu yfirfullir, óþrifnaður sé mikill og aðgengi að heilbrigðisþjónustu takmarkað.

Samkvæmt framangreindum gögnum fá einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi útgefið dvalarleyfi til þriggja ára. Handhafar dvalarleyfis skulu sækja um endurnýjun að minnsta kosti mánuði áður en það rennur út en venjulega tekur um tvo til sex mánuði að fá endurnýjun. Við endurnýjun dvalarleyfis fer fram skoðun á sakaskrá einstaklingsins auk þess sem lagt er mat á hvort breyting hafi orðið á stöðu hans. Ef dvalarleyfi rennur út á meðan einstaklingur bíður eftir endurnýjun á hann rétt á að fá útgefið vottorð sem gefur til kynna að hann hafi sótt um endurnýjun. Vottorðið veitir einstaklingnum sama rétt og gilt dvalarleyfi veitir en þess eru þó dæmi að handhafar slíks vottorðs hafi átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi eins og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera.

Samkvæmt dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er bann við meðferð sem fer gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu fortakslaust en meðferð verður þó að fullnægja lágmarkskröfu um alvarleika til að teljast brot gegn 3. gr. sáttmálans. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur lagt til grundvallar að þó svo að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki sáttmálans sé slíkt eitt og sér ekki fullnægjandi til að uppfylla grundvallarkröfu um þann alvarleika sem 3. gr. sáttmálans geri kröfu um, þ.e. þar sem ekki sé um að ræða sérstaklega sannfærandi mannúðaraðstæður sem mæli gegn flutningi einstaklings, sbr. ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar, þegar horft er til aðstæðna einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi og aðstæðna kæranda í heild sinni, að kærandi eigi ekki í yfirvofandi hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í Grikklandi í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu verði hann sendur þangað. Það er því niðurstaða kærunefndar að endursending kæranda til Grikklands feli ekki í sér brot á 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga, eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda, en kærandi kveður m.a. að líf hans í Grikklandi hafi verið mjög erfitt þar sem ómögulegt hafi verið að fá atvinnu, húsnæði og heilbrigðis- og félagsþjónustu við hæfi. Hann hafi upplifað kynþáttafordóma og annað misrétti þar í landi. Frásögn kæranda kemur að mestu leyti heim og saman við heimildir um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi sem kærunefnd hefur kynnt sér, þ.e. hvað varðar erfitt aðgengi að vinnumarkaðnum, félagslegu húsnæði og framfærslu frá yfirvöldum.

Samkvæmt gögnum málsins glímir kærandi m.a. við andleg veikindi sem þegar hefur verið greint frá. Það er þó mat kærunefndar, á grundvelli gagna málsins, að aðstæður kæranda teljist ekki til mikilla og alvarlegra veikinda sem meðferð sé aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi eiga þeir sem hefur verið veitt alþjóðleg vernd rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu sem getur þó verið í sumum tilvikum vandkvæðum bundið að sækja. Samkvæmt grískum lögum eiga þeir rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, lyfjum, rannsóknum á göngudeildum og aðgangi að sjúkrahúsi. Telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað aðstoðar vegna heilsufarsvandamála sinna þar í landi.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur aðgang að vinnumarkaði og sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar. Í framangreindum gögnum kemur jafnframt fram að stjórnvöld hafi gripið til aðgerða til að stemma stigu við fordómum í landinu, m.a. með því að grípa til hertra aðgerða til að sporna við brotum sem byggjast á kynþáttafordómum.

Svo sem fram hefur komið byggir kærandi m.a. á því í greinargerð sinni að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki. Vísar kærandi í því sambandi til nýlegra úrskurða kærunefndar frá 10. október 2017 og 29. maí 2018 í málum nr. 550/2017 og 242/2018 þar sem fallist var á kröfur kærenda, sem áður höfðu hlotið alþjóðlega vernd í Búlgaríu og á Ítalíu, um að taka umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í fyrrgreindum málum, m.a. í ljósi þess að ekki er um að ræða sama viðtökuríki.

Þá tekur kærunefnd ekki undir það sjónarmið kæranda að áralöng stjórnsýsluframkvæmd íslenskra stjórnvalda, um að heimila ekki endursendingar til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eigi við í máli kæranda. Ljóst er að kærandi er handhafi alþjóðlegrar verndar þar í landi og því komi slík endursending ekki til skoðunar í máli hans.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins og skýrslur og upplýsingar um aðstæður í Grikklandi. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 20. desember 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 7. desember 2017.

Reglur stjórnsýsluréttar

Í greinargerð kæranda er gerð athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi hvorki rannsakað né rökstutt mál kæranda með fullnægjandi hætti. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars sl. voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Að mati kærunefndar fól gildistaka reglugerðarinnar ekki í sér íþyngjandi breytingar á réttarstöðu kæranda. Þá koma sjónarmið um afturvirkni laga, að því marki sem þau kynnu að vera sambærileg varðandi setningu stjórnvaldsfyrirmæla, ekki til skoðunar í þessu máli.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 7. desember 2017. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

Anna Tryggvadóttir                                                                                        Þorbjörg Inga Jónsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta