Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 382/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 17. október 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 382/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16070014

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 24. júlí 2016, kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) þá ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. júlí 2016, að synja honum um hæli á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002, um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og henni breytt á þann hátt að kæranda verði veitt réttarstaða flóttamanns skv. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann hátt að kæranda verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Til þrautavara er sú krafa gerð að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom hingað til lands þann 8. júní 2016 og sótti um hæli daginn eftir hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Kærandi mætti í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 5. júlí 2016 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. júlí 2016, um að synja kæranda um hæli og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla við landið, var birt honum þann 11. júlí 2016. Kærandi kærði ákvörðunina þann 24. júlí s.á til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð vegna kæru barst kærunefnd þann 9. ágúst 2016.

Kæra þessi er afgreidd á grundvelli 2. mgr. 3. gr. b laga nr. 96/2002 um útlendinga, sbr. lög nr. 38/2016. Gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggði umsókn sína um hæli á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna líflátshótana og árásar af hendi [...]. Kærandi kvaðst ekki hafa leitað til lögreglunnar vegna ótta síns þar sem ekki sé hægt að treysta störfum lögreglunnar. Útlendingastofnun taldi framburð kæranda um að hann hafi þurft að þola hótanir af hálfu [...] trúverðugan en taldi að lögregla og yfirvöld í heimalandi kæranda gætu veitt honum viðeigandi vernd.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var fjallað um aðstæður og ástand mannréttindamála í [...] og í því tilefni vísað til alþjóðlegra skýrslna. Í umfjöllun Útlendingastofnunar kom meðal annars fram að ekki væri að sjá af fyrirliggjandi landaupplýsingum að aðilar væru [...]. Þá taldi Útlendingastofnun ekki trúverðugt að hótanir gagnvart kæranda vegna [...] teldust réttlætanlegar af hálfu yfirvalda og samfélagsins. Útlendingastofnun fjallaði einnig um refsivörslukerfið í ákvörðun sinni og sagði, m.a. að eftirfylgni við brot gegn refsilöggjöf væri góð, miklu fjármagni hafi verið veitt í lögreglumál og lögreglumönnum fari fjölgandi ásamt því sem spilling fari minnkandi. Var það mat Útlendingastofnunar að með vísan til fyrirliggjandi gagna yrði að hafna fullyrðingum kæranda um að lögregla og yfirvöld í [...] geti ekki veitt honum viðeigandi aðstoð.

Þá kemur fram í ákvörðun Útlendingastofnunar að það sé ekkert sem bendi til þess að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem geti haft áhrif á niðurstöðu í máli hans.

Í niðurstöðu Útlendingastofnunar kemur fram að ekki verði ráðið af frásögn kæranda eða fyrirliggjandi upplýsingum um [...] að aðilarnir sem kærandi kveðst óttast stjórni [...] ríkinu eða svæðum innan þess. Ekkert bendi heldur til þess að [...] stjórnvöld og lögregla séu óviljug eða ófær um að rannsaka afbrot, sækja glæpamenn til saka og veita borgurum sínum viðeigandi aðstoð. Útlendingastofnun taldi að þau atvik sem kærandi lýsti næðu hvergi nærri þeim alvarleika að þeim verði jafnað til ofsókna í skilningi 1. mgr. 44. gr., sbr. 44. gr. a laga um útlendinga. Útlendingastofnun áréttaði einnig að aðstæður þær sem kærandi lýsti tengist á engan hátt kynþætti, trúarbrögðum eða þjóðerni kæranda, aðildar hans að tilteknum þjóðfélagshópi eða stjórnamálaskoðunar hans. Þegar af þeirri ástæðu taldi Útlendingastofnun að 1. mgr. 44. gr. gæti ekki átt við í málinu og að synja bæri kæranda um hæli á þeim grundvelli. Þá var það mat Útlendingastofnunar að þær aðstæður sem kærandi lýsti næðu ekki þeim alvarleika að þeim verði jafnað til illrar meðferðar í skilningi 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og því bæri jafnframt að synja kæranda um hæli á þeim grundvelli.

Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi ætti ekki rétt á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga. Kærandi bar ekki við sérstökum tengslum við landið og taldi Útlendingastofnun að ekkert í málinu benti til að kærandi hefði slík tengsl. Var kæranda því jafnframt synjað um dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við Ísland skv. 1. mgr. 12. gr. f. útlendingalaga.

Að lokum var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. útlendingalaga. Útlendingastofnun tilkynnti jafnframt kæranda að kæra frestaði ekki framkvæmd ákvörðunar hennar með vísan til c-liðar 1. mgr. 32. gr. útlendingalaga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kemur fram að ástæða flótta kæranda frá heimalandi séu atvik sem rekja megi aftur til þess er hann vann sem þjónn á veitingastað í eigu nafngreinds manns. Þar hafi hann [...]. Maðurinn hafi síðar komist á snoðir um [...] eða hann myndi skjóta kæranda. Kveður kærandi þessa afarkosti byggja á [...] í [...]. Kærandi kveðst ekki hafa viljað [...] og flúið þess í stað til Svíþjóðar þar sem hann hafi sótt um hæli. Honum hafi síðar verið tilkynnt um að málin hefðu róast í heimalandinu og að hann gæti snúið til baka, sem hann og hafi gert samhliða því að draga til baka umsókn sína um hæli í Svíþjóð. Nokkrum dögum eftir að hann sneri aftur til [...] hafi [...] hins vegar reynt að skjóta kæranda og því hafi hann ákveðið að flýja til Íslands. Kærandi kveður það gagnslaust að leita til lögreglu í [...] vegna mála af þessu tagi, auk þess sem maðurinn sem hann hræðist sé mjög ríkur og hafi lögregluna á sínu bandi.

Kærandi bendir á að samkvæmt hans heimildum tíðkist enn [...] og ofbeldisglæpir þeim tengdum í [...]. Í greinargerðinni kemur fram að [...]. Ekki sé hægt að gera kröfu um að kærandi sýni fram á [...] með gögnum að öðru leyti og hafi sænska Útlendingastofnunin m.a. gefið út að ekki sé hægt að ætlast til þess að [...] geti framvísað skriflegum sönnunum þess efnis. Kærandi telji að hægt sé að fella aðstæður kæranda undir ofsóknir vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi í skilningi 1. mgr. 44. gr. a útlendingalaga. Samkvæmt leiðbeiningum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um [...] talist sérstakur þjóðfélagshópur skv. flóttamannasamningnum þegar líkur séu á því að meðlimir ákveðinnar fjölskyldu séu í hættu á að verða fyrir pyndingum eða vanvirðandi meðferð við endursendingu.

Í greinargerð kæranda kemur fram að ástæða flótta kæranda frá heimalandi sínu sé sú að stjórnvöld þarlendis hafi hvorki vilja né getu til að veita honum þá nauðsynlegu vernd gagnvart [...] sem þeim ber. Kærandi hafi ekki leitað til lögreglu vegna málsins þar sem hann kveði að slíkt væri tilgangslaust þar sem yfirvöld í [...] geri ekkert til að aðstoða fólk í hans stöðu, auk þess sem maðurinn sem hann óttist hafi tengsl við lögregluyfirvöld.

Í greinargerð kemur fram að í [...] ríki mikil spilling, m.a. í réttarkerfinu. [...] standi höllum fæti, m.a. vegna vandamála varðandi sjálfstæði, gagnsæi og virkni. Skipulögð glæpastarfsemi sé mikil þar sem [...] hafi verið áberandi. Þá hafi sérstakri deild innan stjórnsýslunnar verið falið það verkefni að taka á skipulagðri glæpastarfsemi en án árangurs. Jafnframt segir í greinargerð að rannsóknir ríkislögreglunnar á spillingarmálum hafi einkennst af lekum á rannsóknargögnum, pólitískum þrýstingi og handahófskenndri tilfærslu verkefna innan kerfisins. Refsileysi og skortur á gagnsæi sé jafnframt mikið áhyggjuefni og þrátt fyrir að lög hafi verið samþykkt sem mæli fyrir um harðari refsingar við opinberri spillingu þá hafi lögin ekki verið innleidd á árangursríkan hátt og spilltir embættismenn komist því áfram undan refsingu. Spilling innan raða lögreglumanna sé jafnframt gríðarlegt vandamál. Að mati kæranda sé ljóst að kærandi geti ekki leitað til yfirvalda í [...] og fengið þar fullnægjandi vernd vegna [...] þar sem mikil spilling ríki í [...] og réttarkerfið standi höllum fæti. Vísað sé sérstaklega til spillingar innan [...] lögreglunnar. Með hliðsjón af framangreindu ítreki talsmaður þá kröfu sína að kæranda verði veitt staða flóttamanns á grundvelli 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga.

Verði ekki fallist á aðalkröfu kæranda er gerð sú krafa til vara að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og er í greinargerð kæranda m.a. vísað til lögskýringagagna að baki ákvæðinu kröfunni til stuðnings.

Varðandi þrautavarakröfu kæranda um að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga kemur fram í greinargerð kæranda að hann telji skilyrðin uppfyllt og því beri að veita honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarjónarmiða. Þessi krafa sé sett fram með vísan til 45. gr. laga um útlendinga og samsvarandi grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu (non-refoulment).

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað [...] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé [...] ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í [...] m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

[...]

[...].

Í ofangreindum gögnum kemur, m.a. fram að réttar- og löggæslukerfinu í [...] hafi verið ábótavant en á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu í löggæslunni og dómsvaldinu. Jafnframt kemur fram að [...] stjórnvöld hafi tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og að [...] hafi miðað áfram í málefnum er snerta réttarkerfið og frelsi og öryggi borgara landsins. Þá hafi laun lögreglumanna verið hækkuð og mikil endurnýjun hefur átt sér stað í lögregluliði landsins.

Krafa um hæli á grundvelli 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Kærandi byggir kröfu sína á að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna líflátshótana og árása [...].

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að einhverjar líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að gildar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna. (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008).

Kærunefndin fellst á það sjónarmið kæranda að [...] geti talist vera sérstakur þjóðfélagshópur í skilningi d-liðar 2. mgr. 44. gr. a. laga um útlendinga. Kærunefnd telur hins vegar ekkert í máli kæranda benda til þess að hann sé [...].

Kærandi byggir á því að líf sitt sé í hættu þurfi að hann að snúa aftur til heimalands þar sem [...] muni verða honum að aldurtila. Að hálfu kæranda er það staðhæft að [...] stjórnvöld hafi hvorki vilja né getu til að veita honum nauðsynlega vernd gagnvart þeirri þeirri hættu sem hann telur sig vera í. Kærandi hefur ekki lagt fram nein gögn sem styðja við frásögn hans af þeirri atburðarás sem hann hefur lýst. Þá hefur kærandi ekki leitað aðstoðar yfirvalda í [...]. Sú staðhæfing kæranda að enga aðstoð sé að fá frá lögreglu og yfirvöldum í [...] fær lítinn sem engan stuðning í þeim gögnum sem kærunefndin hefur skoðað við meðferð málsins.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða áreiti af hendi [...] yfirvalda. Þá benda gögn málsins ekki til slíkra ofsókna eða hættu á slíkum ofsóknum. Skýrslur og gögn sem kærunefnd hefur skoðað benda ekki til þess stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita honum vernd gegn ofsóknum, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir. Að öllu framangreindu virtu telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu stöðu flóttamanns.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Í 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki eru fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita fullnægjandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og frásögn kæranda verður að fá stuðning í öðrum gögnum, sbr. t.d. úrlausn Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N.M. og M.M. gegn Bretlandi (mál nr. 38851/09 og 39128/09) frá 25. janúar 2011.

Í þeim gögnum sem kærunefndin hefur farið yfir kemur m.a. fram að stjórnvöld í [...] vinni að því að bæta réttarkerfi landsins og frelsi og öryggi almennings. Hefur þó nokkur árangur náðst síðustu ár þó að enn sé þörf á frekari umbótum. Kærandi hefur ekki leitað aðstoðar lögreglu eða annarra yfirvalda í heimalandi sínu vegna þeirra hótana sem hann kveðst hafa orðið fyrir. Þó að rétt sé að veikleikar séu á réttarkerfinu í [...] þá hafa átt sér stað umbætur á liðnum árum og því er það mat kærunefndar að þó svo að kærandi ætti raunverulega á hættu að sæta ofbeldi í heimalandi sínu, af hálfu þess aðila sem hann hefur nefnt, þá hafi hann raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár stjórnvalda. Heimildir styðja því ekki þá staðhæfingu kæranda að [...] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda fullnægjandi vernd óski hann eftir henni við þau.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um [...] telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. og 1. mgr. 45 gr. laganna.

Ákvæði 12. gr. f útlendingalaga

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Kærunefnd telur með vísan til orðalags ákvæðisins um „rík mannúðarsjónarmið“ og „ríka þörf á vernd“ auk lögskýringagagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. til heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar framburður kæranda er virtur í heild sinni ásamt gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í [...] séu ekki með þeim hætti að rík mannúðarsjónarmið standi til þess að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna skv. 12. gr. f útlendingalaga.

Jafnframt telur kærunefndin kæranda ekki uppfylla skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á Íslandi í skamman tíma.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The Directorate of Immigration‘s decision is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Hjörtur Bragi Sverrisson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta