Hoppa yfir valmynd

úrskurður 429/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 10. nóvember 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður 429/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16080033

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 14. september 2016, kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) þá ákvörðun Útlendingastofnunar, dags 29. ágúst 2016, að synja honum um hæli á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt hæli á Íslandi á grundvelli 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga eða viðbótarvernd skv. 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Til vara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f útlendingalaga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. útlendingalaga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um hæli hér á landi þann 22. ágúst 2016 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Viðtal var tekið við kæranda hjá Útlendingastofnun þann 25. ágúst s.á. að viðstöddum talsmanni hans. Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. ágúst 2016, um að synja kæranda um hæli og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla við landið, var birt honum þann 31. ágúst s.á. og óskaði kærandi samdægurs eftir frestun réttaráhrifa. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, dags. 1. september 2016, með þeim fyrirvara að kæra bærist kærunefnd útlendingamála innan 15 daga frá birtingu hinnar kærðu ákvörðunar. Kærandi kærði ákvörðunina þann 14. september 2016. Greinargerð vegna kæru barst kærunefnd útlendingamála þann 28. september s.á.

Kæra þessi er afgreidd á grundvelli 2. mgr. 3. gr. b laga nr. 96/2002 um útlendinga, sbr. lög nr. 38/2016. Gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um hæli á því að hann sé í hættu í [...] vegna ofbeldis af hálfu [...] og að honum sé lögregluvernd útilokuð sökum vináttutengsla [...] við starfsmenn yfirvalda. Þá kveðst kærandi ekki eiga í nein hús að venda og sé atvinnulaus. Útlendingastofnun telji framburð kæranda um ofbeldi af hendi [...] trúverðugan. Einnig byggi Útlendingastofnun á því að [...]. Hins vegar sé það mat Útlendingastofnunar að kærandi geti leitað ásjár yfirvalda vegna vandamála sinna.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var fjallað um aðstæður og ástand mannréttindamála í [...] og í því tilefni vísað til alþjóðlegra skýrslna. Í umfjöllun Útlendingastofnunar kom meðal annars fram að hótanir, manndráp og líkamsárásir séu refsiverðar í [...] og kveðið sé á um refsinæmi líkamsárása í almennum hegningarlögum landsins. Jafnframt beri fyrirliggjandi heimildir um heimaland kæranda með sér að eftirfylgni við hverslags brot gegn refsilöggjöf sé góð, íbúar landsins njóti almennra mannréttinda og í landinu sé til staðar kerfi sem þeir geti leitað til telji þeir á sér brotið. Einnig kemur fram að hægst hafi á hagvexti í [...] eftir alþjóðlega fjármálahrunið árið 2008. Samhliða hafi fátækt og atvinnuleysi aukist nokkuð í landinu. Það var mat Útlendingastofnunar að kærandi gæti leitað ásjár yfirvalda vegna efnahagslegra aðstæðna sinna í [...] og gæti fengið þá aðstoð sem honum væri nauðsynleg vegna þeirra. Enn fremur séu aðstæður í heimalandi kæranda almennt til þess fallnar að tryggja mannréttindi og öryggi.

Það var niðurstaða stofnunarinnar að kærandi ætti ekki á hættu ofsóknir eða meðferð sem jafnað yrði til ofsókna í heimalandi hans, sbr. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Þá var ekki talið að hann ætti á hættu að sæta illri meðferð, sbr. 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Enn fremur var það mat stofnunarinnar að kærandi ætti ekki rétt á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f útlendingalaga, sbr. einnig 8. mgr. 46. gr. sömu laga. Þá hafi kærandi ekki borið fyrir sig sérstök tengsl við Ísland og ekkert í málinu benti til slíkra tengsla. Kæranda var því einnig synjað um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland, sbr. 12. gr. f útlendingalaga. Ekki var talið að endursending kæranda til [...] bryti gegn 45. gr. útlendingalaga.

Að lokum var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. útlendingalaga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði ekki réttaráhrifum ákvörðunar hennar með vísan til c-liðar 1. mgr. 32. gr. útlendingalaga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi sótt um vernd hér á landi vegna ofbeldis sem hann hafi sætt af hendi [...] í heimalandi sínu, [...]. Þá sé honum ómögulegt að leita verndar lögreglu eða annarra yfirvalda þar í landi. Stafi það m.a. af tengslum [...] við lögregluna og þeirri staðreynd að lögreglan í [...] sé spillt og lögreglumenn ófáanlegir til að veita vernd í málum af þessum toga án þess að þeim séu boðnar mútugreiðslur. Kærandi segist óttast að verða fyrir miklum skaða af hendi [...] snúi hann til baka til [...]. Einnig kveður kærandi að hann eigi ekki í nein hús að venda og enga möguleika á vernd annarsstaðar í heimalandi sínu.

Kærandi bendir á að þrátt fyrir viðleitni til framfara á síðustu árum þá ríki mikil spilling í [...], ekki síst innan löggæslu og réttarkerfisins. Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins telji fyrrgreinda viðleitni duga skammt og að þörf sé á mun ákveðnari aðgerðum. Þá sé mikil spilling í dómskerfinu og sjálfstæði dómara og ákæruvalds ekki með öllu tryggt. Refsileysi og skortur á gagnsæi sé mikið vandamál auk þess sem spilling ríki innan [...] lögreglunnar. Spillingin birtist m.a. í lögregluofbeldi, misnotkun á valdi, mútuþægni og mismunun á málsmeðferð borgara í persónulegum eða pólitískum tilgangi.

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann telji að það ofbeldi sem hann hafi orðið fyrir megi telja endurteknar athafnir sem feli í sér brot á grundvallarmannréttindum og ómannúðlega og vanvirðandi meðferð. Jafnframt þrífist ofbeldið sem hann óttist í skjóli aðgerðaleysis og andstöðu opinberra aðila í [...]. Að því virtu telji kærandi að eðli athafna þeirra sem ofsóknir á hendur honum felist í og þeir aðilar sem valdir séu að þeim falli undir skilgreiningar ákvæða 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga og 44. gr. a sömu laga. Kærandi sé því flóttamaður í skilningi ákvæðanna og eigi rétt á hæli skv. 1. mgr. 46. gr. útlendingalaga. Enn fremur er farið fram á að framburður kæranda verði að fullu lagður til grundvallar þar sem að mati kæranda geti Útlendingastofnun ekki fullyrt og byggt á því að kærandi geti vandræðalaust leitað til [...] yfirvalda og hlotið þar vernd. Skýrslur alþjóðlegra stofnana bendi til þess að umfangsmikil opinber spilling ríki í [...] og að réttarkerfið og lögreglan veiti ekki fullnægjandi vernd.

Verði ekki fallist á aðalkröfu kæranda er gerð sú krafa til vara að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og er í greinargerð kæranda m.a. vísað til lögskýringagagna að baki ákvæðinu kröfunni til stuðnings.

Varðandi þrautavarakröfu kæranda um að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga kemur fram í greinargerð kæranda að hann telji skilyrðin uppfyllt og því beri að veita honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarjónarmiða. Þessi krafa sé sett fram með vísan til 45. gr. laga um útlendinga og samsvarandi grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu (non-refoulment).

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað [...] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé [...] ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í [...] m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

[...]

[...] hefur verið viðvarandi vandamál í [...] en [...] yfirvöld hafa á síðustu árum gert umtalsverðar ráðstafanir til að styrkja lagalega umgjörð [...]. [...] hegningarlögum var til að mynda breytt árið [...] á þá leið að þar er nú að finna sérstakt ákvæði um [...]. Brot á ákvæðinu varðar allt að fimm ára fangelsi. [...] Þá reka bæði [...] yfirvöld og frjáls félagasamtök [...].

Ákvæði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Krafa kæranda byggir á því að hann geti ekki fengið fullnægjandi vernd í heimalandi sínu gegn ofbeldi af hendi [...].

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta kæranda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu kæranda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimalandi. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að gildar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008)).

Sem fyrr segir er krafa kæranda byggð á því að hann sæti [...] í heimalandi sínu [...]. Ljóst er af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér að [...] er útbreitt í landinu og að mati kærunefndar er ekki ástæða til að draga frásögn kæranda í efa hvað varðar ofbeldi af hendi [...].

Þá byggir kærandi á því að hann geti ekki fengið fullnægjandi vernd eða aðstoð [...] yfirvalda vegna aðstæðna sinna.

Skýrslur og gögn um aðstæður í [...] sem kærunefnd hefur yfirfarið benda til þess að [...] sé útbreitt í landinu en stjórnvöld hafi unnið að því síðustu ár að breyta löggjöf og stuðla að breyttri stefnumótun sem ætlað sé að bregðast við vandamálinu og auka réttarvernd þolenda. Þrátt fyrir að enn sé þörf á úrbótum í þessu efni er það mat kærunefndar að almennt verði að telja að [...] stjórnvöld geti veitt kæranda vernd gegn ofbeldi því sem hann kveður að hann sæti af hálfu [...]. Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða áreiti af hendi [...] yfirvalda. Kærandi hefur auk þess ekki lagt fram nein gögn til stuðnings þeirri fullyrðingu sinni að honum sé útilokað að leita verndar yfirvalda í [...] vegna tengsla [...] við yfirvöld. Að mati kærunefndar styðja heimildir ekki við þá staðhæfingu kæranda að [...] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda fullnægjandi vernd gegn því ofbeldi sem hann nefnir, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir. Kærandi hefur ekki borið fyrir að hafa orðið fyrir ofbeldi á grundvelli þeirra ástæðna sem taldar eru upp í 1. mgr. 44. gr. svo sem á grundvelli kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana sinna. Að öllu framangreindu virtu telur kærunefnd því ljóst að hann uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga fyrir veitingu stöðu flóttamanns.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Í 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum teljist einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalandsins.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem fellur undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um bann við pyndingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki eru fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita fullnægjandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og frásögn kæranda verður að fá stuðning í öðrum gögnum, sbr. t.d. úrlausn Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N.M. og M.M. gegn Bretlandi (mál nr. 38851/09 og 39128/09) frá 25. janúar 2011.

Í þeim gögnum sem kærunefndin hefur yfirfarið kemur m.a. fram að stjórnvöld í [...] vinni að því að bæta réttarkerfi landsins og frelsi og öryggi almennings. Hefur allnokkur árangur náðst síðustu ár, þó að enn sé þörf á frekari umbótum. Þrátt fyrir að réttarkerfið í [...] sé haldið ákveðnum veikleikum hafa átt sér stað umbætur á liðnum árum og er það mat kærunefndar að kærandi hafi raunhæfan möguleika á að leita ásjár stjórnvalda. Heimildir styðja því ekki við þá staðhæfingu kæranda að [...] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda fullnægjandi vernd, óski hann eftir henni.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um [...] telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi muni sæta ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. gr. og 1. mgr. 45 gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 12. gr. f útlendingalaga

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum þess sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Kærunefnd telur með vísan til orðalags ákvæðisins um „rík mannúðarsjónarmið“ og „ríka þörf á vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi hefur greint frá erfiðum efnahagslegum aðstæðum sínum. Í greinargerð með frumvarpi því sem færði 2. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga í núverandi horf kemur fram að ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Við meðferð málsins hafa ekki komið fram gögn sem kalla á að vikið sé frá þeim meginsjónarmiðum sem fram koma í þeirri greinargerð.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar upplýsingar um heimaland kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í [...] séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f útlendingalaga.

Jafnframt telur kærunefndin kæranda ekki uppfylla skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Líkt og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á Íslandi í tengslum við hælisumsókn sína og þá aðeins í skamman tíma.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The Directorate of Immigration‘s decision is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Anna Tryggvadóttir Pétur Dam Leifsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta