Mál nr. 73/2015 Úrskurður 30. september 2015
Mál nr. 73/2015 Eiginnafn: Brandís
Hinn 30. september 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 73/2015:
Mannanafnanefnd hefur borist ábending um að eiginnafnið Brandís (kvk.) sé ekki á mannanafnaskrá.
Eiginnafnið Brandís tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Brandísar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Eiginnafnið Brandís (kvk.) skal fært á mannanafnaskrá.