Hoppa yfir valmynd

Nr. 199/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 24. apríl 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 199/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18030021

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 15. mars 2018 kærði […], fd. […], ríkisborgari Jemen (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. febrúar 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Frakklands.

Gerð er krafa um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á Íslandi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 5. desember 2017. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann sama dag kom í ljós að fingraför hans höfðu hvergi verið skráð. Þar sem kærandi var með vegabréfsáritun til Frakklands var, þann 14. desember 2017, send beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd til yfirvalda í Frakklandi, sbr. 2. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 29. janúar 2018 barst svar frá frönskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 20. febrúar 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Frakklands. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 6. mars 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 15. mars 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 23. mars 2018, ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn frá kæranda þann 10. apríl 2018.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Frakklands. Flutningur kæranda til Frakklands fæli ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Frakklands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæra frestaði réttaráhrifum, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi fengið vegabréfsáritun til Frakklands, dags. 22. nóvember 2017, með gildistímann 1. desember 2017 til 1. mars 2018. Kærandi greinir frá því að hann sé eftirlýstur af hópi uppreisnarmanna í heimaríki, hann hafi verið hermaður í heimaríki og síðustu árin hafi hann starfað sem ráðgjafi varnarmálaráðherra þar í landi. Hann hafi því viljað komast langt í burtu frá heimaríki og þar sem hann telji að hann sé ekki öruggur á meginlandi Evrópu hafi hann ákveðið að koma hingað til lands. Kærandi lýsir miklum átökum sem hafi átt sér stað í heimaríki milli þeirra sem styðji hina alþjóðlega viðurkenndu ríkisstjórn landsins og þeirra sem styðja Al-Houthi uppreisnarmennina. Kærandi vísi til þess að margir ráðamenn hafi verið myrtir í heimaríki og að hann óttist um líf sitt vegna stöðu sinnar þar í landi. Handtökuskipun hafi verið gefin út á hendur sér og snúi hann aftur til heimaríkis verði hann tekinn af lífi. Kærandi finni fyrir svefnleysi og kvíða og finnist óþægilegt að hugsa til afdrifa fjölskyldu sinnar.

Í greinargerð kæranda er að finna almenna umfjöllun um hæliskerfið í Frakklandi. Í alþjóðlegum skýrslum komi m.a. fram að mikil aukning hafi verið á umsóknum um alþjóðlega vernd þar í landi, að hlutfall neikvæðra niðurstaðna umsókna hafi aukist auk þess sem það taki langan tíma fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd að komast inn í kerfið vegna tafa við skráningu umsókna. Þá fari biðin eftir úrræðum langt yfir veitta fresti. Búsetuúrræði fyrir umsækjendur séu í lamasessi og margir umsækjendur hafist við í hreysum. Sökum álags á kerfinu sé ekki hægt að útvega öllum búsetu sem á þurfi að halda og hafi umsækjendum verið komið fyrir í tímabundnum úrræðum s.s. miðstöðvum fyrir heimilislausa auk þess sem aðrir þurfi að sofa á götunni.

Þá vísar kærandi til skýrslna um ástand mannréttindamála og stefnu franskra stjórnvalda í innflytjendamálum. Kærandi bendi á að opinber aðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd sé af skornum skammti. Umsækjendur eigi almennt rétt á húsnæði, grunnframfærslu og heilbrigðisþjónustu, en þrátt fyrir það hafi frönsk stjórnvöld ekki getað séð öllum fyrir aðstoðinni. Frönsk stjórnvöld hafi gengið hart fram í því skyni að loka ólöglegum búsetuúrræðum og þekkist þess dæmi að svefnpokar, teppi og aðrar eigur umsækjenda um alþjóðlega vernd séu gerðar upptækar. Kærandi bendi á að umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi rétt á heilbrigðisþjónustu en í reynd geti slík þjónusta verið takmörkunum háð auk þess sem kærandi bendi á annmarka á veittri sálfræðiþjónustu. Þá glími innflytjendur við mismunun í Frakklandi sökum uppruna síns og þá hafi ofbeldi gegn innflytjendum, sérstaklega múslimum, aukist mikið í kjölfar nýlegra hryðjuverkaárása í Frakklandi.

Krafa kæranda er byggð á því að uppi séu sérstakar ástæður í máli hans í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísar hann til lögskýringargagna að baki ákvæðinu máli sínu til stuðnings. Kærandi bendi á meginreglu íslensks réttar um bann við afturvirkni laga varðandi nýlegar breytingar á reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, og telji að almennt beri að ráða málum til lykta á grundvelli reglna í nýjum lögum og reglum, svo fremi að ekki sé um að ræða íþyngjandi breytingu, enda þótt atvik sem ráða beitingu reglu hafi átt sér stað að einhverju leyti fyrir gildistöku hennar. Kærandi hafi lagt fram umsókn sína um alþjóðlega vernd þann 5. desember sl. og telji þannig að ákvæðum hinnar nýju reglugerðar skuli ekki beitt í málinu enda leggi hún þrengri skorður við réttindum sínum en áður. Telji kærandi að með reglugerðarbreytingunni hafi verið horfið frá þeirri þróun að gefa sérstaklega viðkvæmri stöðu einstaklings aukið vægi við mat á sérstökum ástæðum og þess í stað hafi verið lögð megináhersla á mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins og skilvirkni umsóknarferilsins. Heildstætt mat þurfi að fara fram á aðstæðum kæranda með tilliti til upplýsinga um alvarlega vankanta í viðtökuríki enda gefa þær til kynna að hann muni eiga erfitt uppdráttar í Frakklandi þurfi hann að sækja um alþjóðlega vernd þar í landi.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að frönsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Frakklands er byggt á því að kærandi sé með gilda vegabréfsáritun til Frakklands. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi var ekki talinn vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans hjá Útlendingastofnun. Í gögnum um heilsufar kæranda, þ. á m. viðtölum við kæranda hjá Útlendingastofnun, kemur fram að kærandi sé við góða líkamlega heilsu en kveði andlegt heilsufar sitt ekki vera gott auk þess sem hann sé mjög þreyttur. Telji kærandi það hafa haft slæm áhrif á andlegt heilsufar sitt að hafa orðið vitni að því þegar samstarfsmenn hans hafi verið drepnir auk þeirrar vitneskju að fjölskyldumeðlimir hans hafi verið teknir af lífi. Í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun var honum tjáð að leiti hann sér aðstoðar hjá heilbrigðisstofnun, s.s. hjá sálfræðingi, vegna kvilla sem hann telji hafa þýðingu í málinu skyldi hann fá skriflegar upplýsingar um heilsufar sitt og leggja fram hjá stofnuninni. Með tölvupósti til kæranda þann 9. apríl 2018 óskaði kærunefnd eftir gögnum sem veitt gætu nánari upplýsingar um heilsufar hans. Meðfylgjandi svari kæranda, dags. 10. apríl 2018, voru komunótur frá Göngudeild sóttvarna þar sem fram kemur að kærandi hafi farið í almenna heilsufarsskoðun þann 15. desember 2017 þar sem fram hafi komið að kærandi væri almennt heilbrigður. Þá kom fram í svari kæranda að ekki væru fyrir hendi frekari gögn um heilsufar hans.

Að mati kærunefndar er kærandi ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi, enda fær kærunefnd ekki séð að aðstæður hans séu þess eðlis að hann hafi sérstakar þarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls hér eða að hann geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Frakklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Frakklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2016 Country Reports on Human Rights Practices – France (United States Department of State, 3. mars 2017),

  • 4th quarterly activity report 2016 by Nils Muižnieks, Council of Europe Commissioner for Human Rights (1 October to 31 December 2016) (Council of Europe, 22. febrúar 2017),
  • Amnesty International Report 2017/18 – France (22. febrúar 2018),
  • Annual Report 2016 – Paris (International Committee of the Red Cross (ICRC), 23. maí 2017),

  • Asylum Information Database, Country Report – France (European Council on Refugees and Exiles, 13. febrúar 2018),
  • Dublin II Regulation & Asylum in France – Guide for Asylum Seekers – 2012 (Forum réfugiés, European Refugee Fund, 2012),
  • First Steps for Demanding Asylum (Dom‘Asile, nóvember 2015),
  • Freedom in the World 2017 – France (Freedom House, 15. apríl 2017),

  • Guide for Asylum Seekers in France (Ministry of the Interior, General Directorate for Foreign Nationals in France, 1. nóvember 2015),
  • Stjórnarskrá Frakklands (aðgengileg á ensku á vefsíðu stjórnlagaráðs Frakklands, http://www.conseil-constitutionnel.fr/),
  • Universal Periodic Review. National report submitted in accordance with paragraph 5 of the annex to Human Rights Council resolution 16/21 – France (United Nations Human Rights Council, 13. nóvember 2017),

  • Vefsíða innanríkisráðuneytis Frakklands (https://www.police-nationale.interieur.gouv.fr) og
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018).

Í framangreindum gögnum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar fær umsókn þeirra hefðbundna meðferð í hæliskerfi landsins. Umsækjendur geti sótt um alþjóðlega vernd hjá stjórnsýslustofnun (f. Préfecture) eða þar til bærum undirstofnunum. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á viðtali hjá sérstakri stofnun (f. Office français de l’immigration et de l’intégration (OFII)) þar sem fram fer greining á því hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu eða hafi sérstakar þarfir. Önnur stjórnsýslustofnun, OFPRA (f. Office français de protection des réfugiés et des apatrides), tekur svo efnisákvörðun í málinu.

Umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni hjá OFPRA geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls (f. Cour nationale du droit d’asile (CNDA)). Kæra til dómstólsins frestar almennt réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar, en dómstóllinn endurskoðar bæði málsástæður og lagarök í hverju máli. Niðurstöðu CNDA er hægt að áfrýja til héraðsdómstóls (f. Conseil d’Etat) þar sem fram fer formleg endurskoðun. Þeir umsækjendur sem synjað hefur verið um alþjóðlega vernd eiga möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli kæranda geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Þá eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga almennt ekki rétt á lögfræðiaðstoð við að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd. Þegar umsókn hefur verið lögð fram eiga umsækjendur rétt á gistiplássi í móttökumiðstöð en í framangreindum skýrslum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga möguleika á því að fá annaðhvort húsaskjól í hefðbundnum móttökumiðstöðvum eða í tímabundnum gistiskýlum á vegum stjórnvalda á meðan þeir eru á biðlista eftir plássi í móttökumiðstöð. Þeir sem endursendir eru til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geta leitað til CAO (f. Centre d’accueil et d’orientation) eða PRAHDA (f. d’accueil et d’hébergement des demandeurs d’asile) móttökumiðstöðvanna. Auk þess standa þeim til boða önnur tímabundin neyðarúrræði á meðan beðið er eftir plássi í móttökumiðstöðvum. Í CAO móttökumiðstöðvunum fá umsækjendur aðstoð félagsráðgjafa í tengslum við umsókn sína um alþjóðlega vernd. Fái þeir ekki pláss í slíkum miðstöðvum geta umsækjendur leitað til frjálsra félagasamtaka sem bjóða meðal annars upp á lögfræðiaðstoð í tengslum við umsóknir um alþjóðlega vernd. Þá mega umsækjendur hafa lögfræðing eða annan fulltrúa frá frjálsum félagasamtökum með sér í viðtölum hjá OPII og OFPRA. Þegar umsækjendur kæra neikvæða niðurstöðu til CNDA stjórnsýsludómstólsins eigi þeir rétt á lögfræðiaðstoð sem í mörgum tilvikum er gjaldfrjáls.

Í fyrrgreindum skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Frakklandi kemur fram að umsækjendum um alþjóðlega vernd þar í landi er tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu samkvæmt frönskum lögum. Umsækjendur sem sæta hefðbundinni málsmeðferð hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu á grundvelli sjúkratryggingakerfisins þar í landi (f. Protection Universelle Maladie (PUMA)) en þeir þurfa þó að sækja um aðgang að kerfinu. Jafnvel þótt umsækjendur séu ekki komnir með aðgang að sjúkratryggingakerfinu geti þeir engu að síður leitað til opinberra heilsugæslustöðva (f. Permanence d’accès aux soins de santé (PASS)) sem séu til staðar á öllum opinberum spítölum og fengið þar aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.

Þá benda framangreind gögn jafnframt til þess að löggæsluyfirvöld í Frakklandi veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð og vernd gegn einstaklingum sem þeir óttist.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Frakklandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af framangreindum gögnum um aðstæður í Frakklandi verður jafnframt ráðið að verði kærandi fyrir ofbeldi eða hótunum um ofbeldi þar í landi geti hann leitað ásjár franskra yfirvalda vegna þeirra. Einnig telur kærunefnd að af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi megi ráða að umsækjendur hafi aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og er það mat kærunefndar að kærandi komi til með að hafa aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi.

Í ljósi framangreindra landaupplýsinga um aðstæður í Frakklandi og að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi slíkar sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 18. desember 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 5. desember 2017.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars 2018 voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Að mati kærunefndar fól gildistaka reglugerðarinnar ekki í sér íþyngjandi breytingar á réttarstöðu kæranda. Koma því sjónarmið um afturvirkni laga, að því marki sem þau kynnu að vera sambærileg varðandi setningu stjórnvaldsfyrirmæla, ekki til skoðunar í þessu máli.

Þá verður ekki litið svo á að setning reglugerðarinnar gangi gegn almennri túlkun og skýringu á lögum um útlendinga að því er varðar aukna áherslu á mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins enda sé ljóst að vilji löggjafans hafi staðið til þess að slíkt samstarf hefði vægi við beitingu 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá tekur kærunefnd ekki undir það sjónarmið kæranda að með reglugerðarbreytingunni hafi verið horfið frá þeirri þróun að gefa sérstaklega viðkvæmri stöðu einstaklinga aukið vægi við mat á sérstökum ástæðum í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa frönsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Frakklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Anna Tryggvadóttir

 

 

Erna Kristín Blöndal                                                                                       Þorbjörg Inga Jónsdóttir

                                                                                           

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta