Hoppa yfir valmynd

Nr. 650/2021 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 9. desember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 650/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21110025

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 3. nóvember 2021 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Gíneu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. október 2021, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt staða flóttamanns hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi hinn 16. júlí 2021. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. hinn 1. september 2021 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 18. október 2021, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála hinn 3. nóvember 2021. Kærunefnd barst greinargerð kæranda hinn 17. nóvember 2021. Í ljósi frásagnar kæranda og skýrslna um heimaríki taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna trúarbragða sinna og aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað til viðtala hans hjá Útlendingastofnun. Þar hafi kærandi greint frá því að hafa fæðst í bænum […] í Gíneu og að hann hafi bæði glímt við vandamál vegna fjölskyldu sinnar og þjóðernis. Þjóðernishópur hans væri á öndverðum meiði við þáverandi forseta landsins og því hafi hann þurft að yfirgefa landið. Kærandi hafi greint frá því að […] væri í skógarhéraðinu […], stutt frá stærstu borg þess sem einnig bæri nafnið […]. Hann hafi hins vegar búið í […] áður en hann hafi flúið frá Gíneu til Senegal. Kærandi hafi greint frá því að tilheyra þjóðernishópnum […] og vera kristinn, líkt og aðrir sem tilheyri […]. Af þeim sökum hafi hann upplifað ofsóknir og mismunun af hálfu þáverandi forseta landsins og samfélagsins sem sé að meirihluta múslimar. Kærandi hafi greint frá því umróti sem einkennt hafi stjórnmál í Gíneu og hvernig það hafi haft áhrif á almenning í landinu. Þá hafi fólk, einkum ungir einstaklingar, sem tilheyri […] upplifað ofsóknir eftir að Alpha Condé hafi tekið við forsetaembættinu þar sem mótframbjóðandi hans hafi tilheyrt […] þjóðernishópnum. Sumir hafi verið fangelsaðir, pyndaðir og jafnvel drepnir. Kærandi hafi greint frá því að Malinké þjóðernishópurinn hafi staðið fyrir ofsóknunum enda sé hann ráðandi í landinu. Sjálfur hafi kærandi orðið fyrir mismunun vegna uppruna síns og trúar, en nóg væri að heyra nafn hans til að tengja hann við þjóðernishópinn […]. Þá hafi kærandi greint frá því að hann hafi ekkert félagslegt stuðningsnet í heimaríki sínu. Hann eigi engan að sem geti stutt hann eða veitt honum aðstoð.

Í greinargerð kæranda er fjallað um aðstæður í Gíneu. Þar er m.a. gerð grein fyrir ástandi mannréttindamála í landinu með vísan til skýrslna alþjóðlegra stofnana og mannréttindasamtaka. Meðal þess sem fjallað er um er valdarán gíneska hersins hinn 5. september 2021 og þeirri óvissu sem því fylgi, spillingu innan stjórnvalda, stöðu þjóðernishópa í landinu, mannréttindabrot af hálfu stjórnvalda og stöðu heilbrigðiskerfisins og efnahags í landinu.

Kærandi gerir athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans, m.a. við trúverðugleikamat stofnunarinnar. Jafnframt telur kærandi stofnunina ofmeta mögulega getu og vilja lögreglunnar til að veita kæranda vernd í heimaríki hans. Þá gerir kærandi athugasemd við að Útlendingastofnun hafi talið hluta frásagnar hans ótrúverðuga með vísan til þess að frásögn hans hafi verið á reiki, en kærandi bendir á að túlkurinn í viðtalinu hafi greint frá því að umrætt misræmi kunni að hafa verið á hans ábyrgð.

Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi, skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Hann eigi á hættu ofsóknir vegna kynþáttar hans og þjóðernis, trúarbragða, aðildar hans að tilteknum þjóðfélagshópi og vegna samsafns athafna. Kærandi tilheyri minnihlutahópi í Gíneu, þjóðernisbrotinu […], og aðhyllist hann kristni og sé einnig í miklum minnihluta af þeirri ástæðu. Frásögn kæranda hafi verið skýr og trúverðug og fái stuðning í almennum heimildum. Þó kærandi sé ekki eftirlýstur persónulega telji hann ljóst að vegna framangreindra atriða muni hann standa frammi fyrir ofsóknum í formi ofbeldis, áreitis og langvarandi mismununar í Gíneu verði honum gert að snúa aftur. Þjóðernishópurinn […] sé í miklum minnihluta í Gíneu og átök milli þjóðernishópa séu algeng. Kærandi telur að líta beri svo á að yfirvöld í Gíneu standi að baki ofsóknum í garð mismunandi þjóðernis- og trúarhópa, auk þess sem yfirvöld hafi hvorki getu né vilja til að vernda kæranda gegn ofsóknum annarra.

Kærandi telur að með endursendingu hans til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi eigi á hættu að sæta dauðarefsingu eða annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Landið gangi í gegnum hvert valdaránið á fætur öðru og hafi óvissa um framtíð landsins ekki verið jafn mikil og nú. Þá séu engar vísbendingar um að honum standi til boða stuðningur eða aðstoð fjölskyldu í Gíneu en samkvæmt heimildum séu fjölskyldur grundvöllur félagslegs kerfis í landinu. Þegar ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga sé skoðað, þau lögskýringargögn sem að baki því standa, nýlegar landaupplýsingar og frásögn kæranda sé ljóst að hann uppfylli skilyrði þess að hljóta viðbótarvernd.

Til þrautavara krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu slíks dvalarleyfis þegar útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi ríka þörf fyrir vernd vegna erfiðra félagslegra aðstæðna. Í Gíneu nyti kærandi ekki stuðnings fjölskyldu þar sem móðir hans sé […] og fjölskyldan bláfátæk. Félagslegt kerfi landsins byggi á því að fólki standi til boða aðstoð fjölskyldu eða nærsamfélags. Ljóst sé að mikil mismunun ríki í landinu gagnvart minnihlutahópum, hvort sem er vegna uppruna eða trúar. Kærandi gæti því ekki valið sér búsetu hvar sem er. Rökstuðningi Útlendingastofnunar varðandi erfiðar félagslegar aðstæður kæranda hafi að hans mati verið ábótavant. Ekki hafi verið horft til þeirrar staðreyndar að félagslegt kerfi landsins byggi á aðstoð fjölskyldunnar. Þá séu almennar aðstæður í heimaríki kæranda alvarlegar, en spilling, mannréttindabrot og glæpir viðgangist, auk þess sem þjóðernis- og trúarátök séu algeng. Stjórnvöld í Gíneu hafi jafnframt sýnt fram á getuleysi til að vernda almenna borgara. Kærandi gagnrýnir að enga efnislega umfjöllun um almennar aðstæður í Gíneu sé að finna í ákvörðun Útlendingastofnunar. Þá verði að líta til þess hvaða áhrif Covid-19 faraldurinn, og það ástand sem hann hafi skapað, hafi á stöðu kæranda. Kærandi, sem einstaklingur á flótta, kunni að vera í hópi þeirra sem verði fyrir hvað verstum áhrifum vegna faraldursins.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn til að sanna á sér deili. Var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki sannað hver hann væri með fullnægjandi hætti og var því leyst úr auðkenni hans á grundvelli mats á trúverðugleika. Útlendingastofnun komst að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Gíneu. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé gíneskur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Gíneu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2020 Country Report on Human Rights Practices: Guinea (U.S. Department of State, 30. mars 2021);
  • 2020 Report on International Religious Freedom: Guinea (U.S. Department of State, 12. maí 2021);
  • Amnesty International Report 2020/21 – Guinea (Amnesty International, 7. apríl 2021);
  • […]
  • BTI 2020 Country Report – Guinea (Bertelsmann Stiftung, 2020);
  • Country Cooperation Strategy at a glance: Guinea (World Health Organization, maí 2015);
  • Freedom in the World 2021 – Guinea (Freedom House, 3. mars 2021);
  • Guinea 2020 Crime & Safety Report (OSAC, 13. mars 2020);
  • Guinea’s junta releases transition charter toward elections (https://apnews.com/article/africa-elections-west-africa-guinea-charters-57197a662dc6a769e45d24665cb6f967, 28. september 2021);
  • Guinea: Can Doumbouya lead the country in a peaceful transition? (https://www.theafricareport.com/129133/guinea-can-doumbouya-lead-the-country-in-a-peaceful-transition/, 22. september 2021);
  • Guinea – Covid-19 Overview (https://coronavirus.jhu.edu/region/guinea), skoðað 9. desember 2021);
  • Guinea: Violence During Referendum (https://www.hrw.org/news/2020/04/10/guinea-violence-during-referendum, 10. apríl 2020);
  • Human Rights in Africa: Review of 2019 – Guinea (Amnesty International, 8. apríl 2020);
  • Situation of human rights in Guinea (United Nations High Commissioner for Human Rights, 17. janúar 2017);
  • The World Factbook – Guinea (CIA, uppfært 16. nóvember 2021);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 9. desember 2021);
  • Violence in Nzérékoré During Guinea‘s Constitutional Referendum and Legislative Elections (https://www.hrw.org/report/2020/09/25/they-let-people-kill-each-other/violence-nzerekore-during-guineas-constitutional, 25. september 2020);
  • World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Guinea (Minority Rights Group International, uppfært í janúar 2018) og
  • World Report 2021: Guinea (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Gínea er stjórnarskrárbundið lýðveldi með um 13 milljónir íbúa. Árið 2010 komst ríkið undir borgaraleg yfirráð, í kjölfar valdaráns eftir áratugalöng völd einræðisstjórna að loknu nýlendutímabili Frakka, en Gínea varð sjálfstætt ríki árið 1958. Ríkið gerðist aðili að Sameinuðu þjóðunum hinn 12. desember 1958. Árið 1989 gerðist ríkið aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Þá gerðist ríkið aðili að alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2013.

Samkvæmt The World Factbook var breyting á stjórnarskrá Gíneu samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu í mars 2020. Sú breyting hafi lengt kjörtímabil forseta og gert sitjandi forseta, Alpha Condé, kleift að hefja kjörtímabil sín upp á nýtt. Síðar sama ár hafi Condé sigrað forsetakosningar í landinu og hafið sitt þriðja kjörtímabil. Sigur forsetans hafi verið mjög umdeildur og hinn 5. september 2021 hafi herforinginn Mamady Doumbouya leitt valdarán af hálfu hersins þar sem Condé hafi verið handtekinn. Þá hafi stjórnarskrá landsins jafnframt verið ógilt og ríkisstjórnin leyst upp. Hinn 17. september 2021 hafi Doumbouya verið lýstur forseti Gíneu. Í lok september 2021 hafi verið gefinn út stofnsáttmáli þar sem Doumbouya hafi verið gerður að bráðabirgðaforseta Gíneu um ótilgreindan tíma. Hinn 1. október 2021 hafi Doumbouya formlega svarið embættiseið. Samkvæmt fréttavefnum AP mælir stofnsáttmálinn m.a. fyrir um verkefni og skyldur bráðabirgðaríkisstjórnarinnar og er lagt bann við því að stjórnin er kom að valdaráninu geti tekið þátt í næstu kosningum og tekið sæti í nýrri ríkisstjórn. Jafnframt sé lagt bann við því að meðlimir fyrrum ríkisstjórnar Gíneu, þ. á m. Alpha Condé, bjóði sig fram í næstu kosningum. Þá sé mælt fyrir um bráðabirgðaráð sem muni þjóna sem þing. Ráðið verði skipað 81 fulltrúa, allt frá meðlimum stjórnmálaflokka til ungmennaleiðtoga, öryggissveita, verkalýðsfélaga, o.fl. Þá verði ráðinu einnig gert að tryggja að a.m.k. 30% fulltrúanna séu konur. Stofnsáttmálinn hafi verið skrifaður eftir nokkurra vikna fundarhöld við mismunandi aðila samfélagsins, m.a. trúar- og stjórnmálaleiðtoga og meðlimi sambandsins Economic Community of West African States (ECOWAS). ECOWAS hafi þó fordæmt valdaránið og kallað eftir því að Condé verði sleppt. Þá hafi sambandið jafnframt beitt refsiaðgerðum gagnvart aðilunum sem staðið hafi að baki valdaráninu og fjölskyldum þeirra. Herforinginn Doumbouya og aðrir meðlimir hersins sem stóðu að baki valdaráninu hafi lýst því yfir, samkvæmt fréttavefnum BBC, að herinn hafi ekki átt annarra kosta völ en að fremja valdarán vegna hömlulausrar spillingar, efnahagslegrar óstjórnar og mannréttindabrota í tíð Condé. Þá hafi Doumbouya lýst því yfir að markmið bráðabirgðaríkisstjórnarinnar væri m.a. að koma aftur á lýðræði í ríkinu og tryggja mannréttindi íbúa Gíneu.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020, um ástand mannréttindamála í Gíneu, kemur m.a. fram að helstu mannréttindabrot í ríkinu sé handahófskennd morð af hálfu yfirvalda, pyndingar til að ná fram játningum, handahófskenndar handtökur og spilling á öllum stigum ríkisvalds. Enn fremur takmarkanir á fjölmiðla- og fundafrelsi, ofbeldi gegn konum og stúlkum, refsivæðing samkynhneigðar og barnaþrælkun. Refsileysi meðal opinberra starfsmanna sé vandamál en yfirvöld hafi gripið til lágmarksaðgerða í þeim tilgangi að lögsækja og sakfella embættismenn sem brotið hafi af sér. Þá kemur fram í framangreindri skýrslu að varnarmálaráðuneyti Gíneu hafi eftirlit með liði herþjálfaðra lögreglumanna (e. gendarmerie) en öryggismálaráðuneyti ríkisins hafi eftirlit með ríkislögreglunni. Bæði lögregluembættin fari með það hlutverk að tryggja almennt öryggi innanlands en einungis geti lið herþjálfaðra lögreglumanna handtekið her- og lögreglumenn. Her landsins beri ábyrgð á öryggi ríkisins út á við en fari jafnframt með ákveðnar skyldur innanlands.

Samkvæmt framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins mælir stjórnarskrá Gíneu fyrir um sjálfstæði dómstóla. Þó sé mikil spilling innan dómsvaldsins sem einkennist helst af frændhygli sem takmarki skilvirkni dómsvaldsins. Þá sé skortur á hæfum lögfræðingum, auk þess sem refsilöggjöf ríkisins sé úrelt. Oft hafi dómsúrskurðum jafnframt ekki verið framfylgt af yfirvöldum. Íbúar treysti margir hverjir á óformlegt menningartengt dómskerfi innan síns þorps eða hverfis. Skilin á milli hins formlega og óformlega dómsvalds í ríkinu séu óljós og í sumum tilvikum hafi yfirvöld vísað málum frá hinu formlega dómsvaldi til hins óformlega dómskerfis. Að sama skapi geti málsaðilar leitað réttar síns innan formlega dómsvaldsins sé mál þeirra ekki leyst innan hins óformlega dómskerfis.

Í skýrslu BTI frá árinu 2020 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi frá 2021, kemur fram að meginþorri landsmanna í Gíneu séu múslimar, eða um 85% þjóðarinnar. Múslimar séu í miklum meirihluta í öllum fjórum héruðum (e. region) landsins. Kristnir séu um 8% af þjóðinni og búi aðallega í stórum borgum, þ. á m. Conakry, höfuðborg landsins. Um 7% íbúa landsins aðhyllist hefðbundin afrísk trúarbrögð. Í skýrslu BTI kemur fram að veraldarhyggja sé almennt viðurkennd af yfirvöldum og samfélaginu í Gíneu. Trúarbrögð hafi einungis lítil áhrif á réttarskipan og pólitískar stofnanir í landinu. Stjórnarskrá Gíneu leggi bann við mismunun á grundvelli trúarbragða og kveði á um að þegnum landsins sé frjálst að ákveða hverrar trúar þeir séu. Þá kveði landslög á um að skrifstofa trúmála (e. The Secretariat General of Religious Affairs – SRA) skuli samþykkja umsóknir allra trúarhópa sem hafi verið greitt fyrir og séu rétt útfylltar.

Samkvæmt vefsíðu Minority Rights Group International um minnihlutahópa og frumbyggja kemur m.a. fram að 6% íbúa Gíneu tilheyri […] þjóðarbrotinu, en einungis séu tvö þjóðarbrot minni en […]. Þjóðarbrotið kallist öðrum nöfnum, m.a. […], en á frönsku sé það kallað […]. Í Gíneu skiptist stærstu fjögur landfræðilegu svæði landsins jafnan eftir þjóðarbrotum. […] samfélagið haldi sig til innan skóglendis í suðausturhluta Gíneu, einkum í umdæminu […]. Þar dvelji þó fleiri þjóðarbrot sem hafi flúið þangað til að komast undan yfirráðum Malinké þjóðarbrotsins. Fram kemur á vefsíðu Institute for Security Studies að frá árinu 1990 hafi ítrekað komið til átaka milli þjóðarbrotsins Konianké og annarra hópa, þ. m.t. […]. Ástæður átakanna séu m.a. deilur um landfræðileg svæði og trúarbrögð, en þeir sem tilheyri Konianké séu múslimar en […] samanstandi af kristnum einstaklingum. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kom til átaka í bænum Nzérékoré milli þjóðarbrotanna […] og Konianké í marsmánuði 2020. Átökin hafi m.a. mátt rekja til deilna hópanna um ríkisstjórn landsins og atkvæðagreiðslu um stjórnarskrárbreytingar. Meðlimir […] hafi verið mótfallnir framlengingu á kjörtímabili Alpha Condé en meðlimir Konianké hafi stutt það. Að minnsta kosti 32 hafi látið lífið og 90 manns særst í átökunum. Þá hafi jafnframt verið kveikt í heimilum, búðum og kirkjum. Yfirvöld hafi ekki hafið rannsókn á átökunum.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðsambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann eigi á hættu ofsóknir í heimaríki sínu, m.a. vegna kynþáttar síns og þjóðernis, trúarbragða og aðildar hans að tilteknum þjóðfélagshópi. Kærandi tilheyri minnihlutahópi í Gíneu, þjóðarbrotinu […], og aðhyllist hann trúarbragðið kristni sem einnig sé í miklum minnihluta. Átök milli þjóðernishópa séu algeng í Gíneu, auk þess sem almennt ástand í ríkinu hafi farið versnandi í kjölfar nýlegs valdaráns af hálfu hersins.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda. Kærunefnd telur ekki ástæðu til annars en að leggja til grundvallar að kærandi sé frá […] og tilheyri þjóðarbrotinu […] í Gíneu.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda í Gíneu sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu.

Í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa fæðst og alist upp í þorpinu […] í […] héraði í Gíneu. Kærandi kvaðst hafa búið í borginni […] þar sem hann hafi stundað nám í bifvélavirkjun. Kærandi hafi hins vegar ekki náð að klára verklega hlutann í náminu þar sem hann hafi gengið í iðnskóla sem hafi verið rekinn af […]. Þeir hafi verið múslimar og hafi útilokað kæranda frá náminu því hann væri kristinn.

Frásögn kæranda um deilur og átök milli […] þjóðarbrotsins, sem kærandi kveðst tilheyra, og Konianké þjóðarbrotsins, fær stoð í þeim heimildum sem kærunefnd hefur skoðað. Þá kemur fram í heimildum að þjóðarbrotið […] og kristnir einstaklingar heyri til mikils minnihluta í Gíneu. Þrátt fyrir það benda heimildir hins vegar ekki til þess að einstaklingar sem tilheyri […] séu útsettari en önnur þjóðarbrot fyrir mismunun og ofbeldi eða að […] sæti kerfisbundnum ofsóknum í Gíneu. Líkt og áður greinir kvaðst kærandi hafa verið útilokaður frá því að ljúka verklegum hluta náms síns við iðnskóla í borginni […] í kjölfar valdaráns Alpa Condé árið 2010. Frásögn kæranda hvað varð þess valdandi að hann gat ekki lokið þessum hluta námsins var ekki skýr. Kvað kærandi fyrst í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun, dags. 1. september 2021, að hann hafi lokið grunnskóla og síðan hafið iðnnám sem hann hafi lokið bóklega árið 2013. Hann hafi byrjað strax í verklega hlutanum en hafi ekki getað klárað vegna ofsókna og hafi farið til Senegal einhvern tímann á tímabilinu 2014-2015. Kvað hann samnemendur sína sem væru múslímar hafa komið í veg fyrir að hann gæti klárað námið þar sem þeir hafi komist að því að hann væri kristinn. Síðar í sama viðtali kvaðst kærandi ekki hafa getað klárað verklega námið vegna valdaráns Alpha Condé og þeirra ofsókna sem hafi fylgt í kjölfarið gegn […] þjóðarbrotinu. Kærandi kvaðst ekki hafa persónulega sætt einhvers konar mismunun eða ofbeldi sem talist gæti til ofsókna í öðrum tilfellum á grundvelli trúar sinnar eða þjóðarbrots. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga í efa frásögn kæranda um að hann og meðlimir […] hafi upplifað mismunun og áreiti í Gíneu. Það er þó mat nefndarinnar að staða kæranda og annarra meðlima […] sé ekki slík að hún geti talist ná því alvarleikastigi sem 1. mgr. 37. gr. gerir kröfu um. Þá bera heimildir með sér að átök milli meðlima […] og Konianké hafi einkum tengst kosningum í landinu og þá sérstaklega endurkjöri Alpha Condé sem nú hefur verið steypt af stóli. Ekkert bendir til þess í þeim heimildum sem kærunefnd hefur skoðað að átök milli framangreindra hópa hafi aukist í kjölfar valdaránsins eða að ofbeldi gegn […] sé útbreitt. Þá horfir kærunefnd til þess að trúfrelsi sé verndað af stjórnarskrá Gíneu þar sem lagt sé bann við mismunun á grundvelli trúarbragða. Þá sé veraldarhyggja almennt viðurkennd af yfirvöldum og samfélaginu í Gíneu. Kærunefnd telur því, með hliðsjón af framburði kæranda og heimildum um heimaríki hans, að kærandi hafi ekki sýnt fram á með nægilega skýrum hætti að hans bíði ofsóknir í heimaríki á grundvelli trúarbragða hans, kynþáttar, þjóðarbrots, aðildar hans að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna samsafns afhafna tengdum stöðu hans í heimaríki. Að mati kærunefndar verður heldur ekki séð að kærandi hafi sætt ofsóknum af öðrum ástæðum samkvæmt 1. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða eigi á hættu að verða fyrir slíku.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Kærandi byggir aðallega á því að hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í heimaríki sínu vegna aðstæðna þar í landi. Þá tilheyri hann þjóðarbrotinu […] og aðhyllist kristni sem bæði sé í miklum minnihluta í Gíneu.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Þau gögn sem kærunefnd hefur skoðað benda ekki til þess að útbreidd átök eigi sér stað í Gíneu, þrátt fyrir nýlegt valdarán af hálfu hersins. Samkvæmt gögnum ACLED (The Armed Conflict Location & Event Data Project) hafa óeirðir, átök og ofbeldi gegn borgurum í Gíneu farið talsvert dvínandi á síðasta ársfjórðungi 2021 samanborið við annan ársfjórðung sama árs og hefur dauðsföllum fækkað í samræmi við það. Það sem af er ári 2021 hafa verið skráðir 14 bardagar, 117 óeirðir, 5 tilvik um ofbeldi gegn almennum borgurum og 27 dauðsföll samkvæmt heimildum ACLED. Að virtum framburði kæranda, gögnum málsins og landaupplýsingum er það mat kærunefndar að kærandi eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

 

 

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi byggir kröfu sína um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða á því að hann sjái fram á erfiðar félagslegar aðstæður í heimaríki þar sem hann hafi búið við mikla fátækt. Kærandi njóti ekki stuðnings fjölskyldu, en móðir hans sé blind og fjölskylda hans mjög fátæk. Félagslegt kerfi landsins byggi á því að fólki standi til boða aðstoð fjölskyldu. Þá séu þjóðernis- og trúarátök algeng, sem og mannréttindabrot og glæpir. Þá verði að líta til áhrifa Covid-19 faraldursins og þess ástands sem hann hafi skapað á stöðu kæranda, en þeir sem minna megi sín séu ætíð líklegri til að verða fyrir neikvæðum áhrifum en aðrir þegar slíkt neyðarástand skapist.

Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Við meðferð málsins hafa ekki komið fram gögn sem kalla á að vikið sé frá þeim meginsjónarmiðum sem fram koma í þessum athugasemdum. Ekki verður annað ráðið af frásögn kæranda og gögnum málsins en að kærandi sé almennt heilsuhraustur og vinnufær. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðabankans hefur atvinnuleysi í Gíneu verið undir 5% síðan árið 1991 og mældist það um 4,35% árið 2020. Kærandi kvaðst hafa lokið meirihluta náms í bifvélavirkjun og starfað við það í Gíneu. Þá kvaðst kærandi eiga móður, systur og son í heimaríki sínu.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Þá segir í athugasemdunum að með erfiðum almennum aðstæðum að öðru leyti sé einnig vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir að ótryggt ástand ríki að einhverju leyti í heimaríki kæranda þá verði ekki talið að um viðvarandi mannréttindabrot sé að ræða eða að yfirvöld geti ekki veitt þegnum sínum vernd. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og mats á trúverðugleika hans er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að félagslegar eða almennar aðstæður sem bíða kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd hefur jafnframt litið til þeirra tímabundnu erfiðleika sem heimaríki kæranda kann að þurfa að glíma við vegna Covid-19 faraldursins. Kærunefnd telur þá erfiðleika ekki vera þess eðlis að þeir leiði til þess, einir sér eða í samhengi við önnur gögn málsins, að heimilt sé veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi kveðst vera ungur að aldri og hefur verið boðin bólusetning við Covid-19 hér á landi. Þá benda gögn málsins ekki til annars en að kærandi sé almennt hraustur.

Athugasemdir kæranda við málsmeðferð Útlendingastofnunar

Kærandi gerði í greinargerð sinni athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans. Kærunefnd hefur að framan tekið afstöðu til þeirra að því leyti sem þær kunna að hafa áhrif á niðurstöðu þessa máls og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands hinn 8. júlí 2021 og sótti um alþjóðlega vernd hinn 16. júlí 2021. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga og þegar litið er til ferðatakmarkana vegna Covid-19 faraldursins teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Í ljósi Covid-19 faraldursins er athygli kæranda vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu. 

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 15 days to leave the country voluntarily.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Sindri M. Stephensen                                                                     Þorbjörg I. Jónsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta