Hoppa yfir valmynd

Nr. 666/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 3. nóvember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 666/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23050164

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 26. maí 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. maí 2023, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 21. apríl 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 16 daga dvöl frá frá 11. til 26. ágúst 2023. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. maí 2023. Hinn 26. maí 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru vísar kærandi til fyrirliggjandi ákvörðunar, dags. 24. maí 2023, og þeirra skýringa sem liggja að baki ákvörðuninni. Kærandi kveðst hafa lagt fram öll nauðsynleg fylgigögn með umsókninni og að ákvörðun í máli hennar hafi valdið henni vonbrigðum. Kærandi reifar tilgang ferðar sinnar sem sé ferðamennska og að fagna afmæli eiginmanns síns en kærandi vísar til tiltekinna ferðamannastaða á Íslandi í því samhengi. Þar að auki vilji kærandi ferðast til Króatíu að lokinni ferð til Íslands og óski eftir vegabréfsáritun sem gildi fyrir margar komur (e. multi-entry visa). Kærandi kveður ferðaáætlun sína ítarlega en meðal fylgigagna málsins eru gisti- og flugbókanir sem sýna fram á dagsetningu komu og brottfarar. Þá kveðst kærandi hafa lagt fram gögn tengd fjármálum sínum sem sýni fram á fjárhagslega getu til framfærslu á meðan fyrirhuguðu ferðalagi stendur. Með vísan til framangreinds óskar kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði endurskoðuð.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauki 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu. 

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reit 2 vegna synjunar á umsókn, þ.e. að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá íslenska sendiráðinu í Lundúnum, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga en hún var lögð inn hjá VFS skrifstofunni í Manchester, sem starfar í umboði sendiráðsins, sbr. viðauka 10 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð umsóknar hennar hjá sendiráðinu er rakin. Samkvæmt málaskránni voru fylgigögn kæranda með umsókn ófullnægjandi. Vísað er til þess að dvalarheimild kæranda í Bretlandi muni ljúka innan þriggja mánaða frá brottför af Schengen-svæðinu. Samkvæmt gögnum málsins sendi fulltrúi utanríkisþjónustunnar kæranda tölvubréf, dags. 3., 10. og 19. maí 2023, þar sem henni var gerð grein fyrir framangreindu og veitt færi á að bæta úr. Kærandi bætti ekki úr þessum annmörkum, þrátt fyrir framangreindar áskoranir fulltrúa utanríkisþjónustunnar.

Kærandi hefur ekki lagt fram gögn á kærustigi sem hrinda framangreindu mati en málsástæður kæranda hafa einkum grundvallast á ferðaáætlun hennar og tilgangi ferðalagsins. Að mati kærunefndar eru framkomin gögn og málsástæður kæranda því ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hennar um vegabréfsáritun.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, sbr. ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hefur kærandi ekki fullnægt skilyrði b-liðar 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga um gilda dvalarheimild í Bretlandi sem gildir a.m.k. þrjá mánuði yfir gildistíma áritunar. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

Þá vekur kærunefnd athygli á því að samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun á Schengen-svæðið samkvæmt ákvörðun franskra stjórnvalda, dags. 23. Júní 2023, sem gildir í [...] á tímabilinu frá [...] til [...] 2023.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum