Hoppa yfir valmynd

Nr. 28/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 30. janúar 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 28/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU18120030

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 11. desember 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […], og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. nóvember 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 42. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 31. júlí 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Svíþjóð. Þann 9. ágúst 2018 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá sænskum stjórnvöldum, dags. 22. ágúst 2018, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 19. nóvember 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 27. nóvember 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 11. desember 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda ásamt fylgigögnum barst kærunefnd 21. desember 2018. Með tölvupósti til kæranda, dags. 8. janúar sl., óskaði nefndin eftir frekari upplýsingum frá kæranda og barst svar þann sama dag.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að sænsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Svíþjóðar ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Svíþjóðar.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda, sem og í viðtölum sem kærandi sótti hjá Útlendingastofnun, kemur m.a. fram að hann hafi áður sótt um alþjóðlega vernd í Svíþjóð. Nánar tiltekið hafi kærandi sótt um slíka vernd þar í landi í tvígang, þ.e. árin 2008 og 2015. Þeim umsóknum hafi báðum verið hafnað. Kærandi hafi dvalið í Svíþjóð í 10 ár. Hafi hann oft verið lagður inn á sjúkrahús þar í landi vegna andlegra eða líkamlegra kvilla. Eftir að hafa hlotið neikvæða niðurstöðu í máli sínu í Svíþjóð hafi kærandi ekki lengur átt rétt á fjárhagsstuðningi og hafi sjálfur þurft að greiða fyrir meðferð á sjúkrahúsi. Kærandi hafi átt erfitt að undanförnu vegna frétta frá heimaríki þess efnis að ráðist hafi verið á fjölskyldu hans. [...] kæranda sé látinn og þá sé […] hans í […]. Kærandi hafi ekki sofið vel síðustu daga og eigi stundum erfitt með að muna hvar hann eigi heima. Þá hafi kærandi verið við það að gera […]. Kærandi hafi verið […].

Kærandi byggir á því að umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi skuli tekin til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því samhengi fjallar kærandi um túlkun á 2. mgr. 36. gr. laganna, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum við ákvæðið, hugtakinu „sérstaklega viðkvæm staða“, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og fyrri úrskurða kærunefndar útlendingamála. Kærandi getur þess m.a. að hann hafi dvalið lengi í Svíþjóð, hlotið neikvæða lokaniðurstöðu þar í landi og hans bíði endursending til heimaríkis. Dvöl kæranda í Svíþjóð, sem hafi einkennst af ótta og öryggisleysi, hafi haft mikil áhrif á heilsu hans. Þá verði kærandi settur í varðhald við komuna til Svíþjóðar, sem muni hafa slæm áhrif á andlega heilsu hans, sem sé slæm fyrir. Til stuðnings sjónarmiðum sínum vísar kærandi til fyrri úrskurða kærunefndar útlendingamála, þ.e. nr. 582/2017 og 553/2017. Með vísan til framangreindra atriða, stefnu sænskra stjórnvalda í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna, og þess að kærandi hafi verið á flótta í 10 ár, séu skilyrði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Jafnframt byggir kærandi á því að ótækt sé að senda hann frá Íslandi til Svíþjóðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi njóti m.a. verndar 42. gr. laga um útlendinga og sambærilegrar grundvallarreglu þjóðaréttar sem leggi bann við beinni endursendingu einstaklings til ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu. Reglur af sams konar toga megi finna í öðrum alþjóðasamningum, t.d. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá vísar kærandi m.a. til greinargerðar innanríkisráðuneytisins frá árinu 2015 þar sem m.a. sé fjallað um svonefndar óbeinar endursendingar til þriðja ríkis. Við mat á því hvort öruggt sé að senda kæranda til Svíþjóðar beri m.a. að horfa til einstaklingsbundinna aðstæðna hans. Kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu vegna andlegs heilsufars og fyrri reynslu. Hann glími við mikla andlega vanlíðan og […]. Að mati kæranda feli ákvörðun sænska ríkisins um að endursenda sig til […] í sér brot gegn síðastnefndri grundvallarreglu þjóðaréttar. Kærandi telji að líf sitt sé í hættu í […]. Í ljósi framangreinds myndi ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að senda kæranda til Svíþjóðar brjóta í bága við 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Til viðbótar framangreindu gerir kærandi þrjár athugasemdir við hina kærðu ákvörðun. Í fyrsta lagi, að Útlendingastofnun hafi ekki fallist á að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Í því samhengi tekur kærandi m.a. fram að mat Útlendingastofnunar á heilsufari kæranda hafi ekki byggst á fullnægjandi gögnum. Hvað þetta varðar vísar kærandi til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í öðru lagi, að Útlendingastofnun hafi rökstutt endursendingu kæranda til Svíþjóðar með vísan til þess að enginn „kerfisbundinn galli“ væri á aðbúnaði og meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Gerir kærandi athugasemd við notkun Útlendingastofnunar á hugtakinu „kerfisbundinn galli“, rekur uppruna hugtaksins og fjallar um inntak þess með hliðsjón af innlendri og alþjóðlegri dómaframkvæmd. Í þriðja og síðasta lagi, að Útlendingastofnun hafi talið að skilyrði 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, þyrftu að vera uppfyllt svo sérstakar ástæður væru taldar vera fyrir hendi í máli kæranda. Tekur kærandi m.a. fram að viðmið 32. gr. a í reglugerðinni séu sett fram í dæmaskyni og ekki sé um tæmandi talningu að ræða sem geti komið í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Svíþjóðar á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja sænsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Einstaklingsbundnar aðstæður kærandaKærandi er rúmlega […] karlmaður sem á […] í heimaríki. Af gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. […], er ljóst að líkamlegt heilsufar kæranda sé með ágætum, en hann sé almennt hraustur og ekki með neina greinda sjúkdóma. […]. Í greinargerð kæranda er þess þá og getið að kærandi hafi átt bókaðan tíma hjá sálfræðingi þann 28. nóvember sl., sem hann hafi þó ekki mætt í. Með tölvupósti, dags. 8. janúar sl., upplýsti talsmaður kæranda kærunefnd um að engin ný gögn um heilsufar kæranda lægju fyrir.Kærunefnd telur ljóst af gögnum málsins að kærandi eigi sér nokkra geðsögu og hafi glímt við talsverða andlega erfiðleika. Gögn málsins gefa þó ekki til kynna að núverandi andlegt ástand kæranda, eða aðstæður hans að öðru leyti, séu þess eðlis að hann hafi t.d. sérþarfir sem taka þurfi tillit til. Að mati kærunefndar er kærandi ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Kærandi hefur m.a. greint frá því að aðstæður hans í Svíþjóð hafi verið erfiðar en hann hafi t.d. hlotið ófullnægjandi fjárstuðning frá sænska ríkinu. Í málinu liggur fyrir ákvörðun sænsku útlendingastofnunarinnar, dags. […], þess efnis að kæranda, sem hafi hlotið neikvæða niðurstöðu í máli sínu um alþjóðlega vernd, verði ekki veitt frekari aðstoð. Kveður kærandi að í Svíþjóð bíði hans varðhaldsvist og í kjölfarið endursending til heimaríkis. Aðstæður í SvíþjóðKærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Amnesty International Report 2017/18 (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Annual Report on the situation of Asylum in the European Union 2017 (European Asylum Support Office, 18. júní 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Sweden (European Council on Refugees and Exiles, 28. mars 2018);
  • Freedom in the World 2018 – Sweden (Freedom House, 28. maí 2018);
  • Good Advice for Asylum Seekers in Sweden (The Swedish Network of Refugee Support Group, janúar 2018);
  • Observations by the United Nations High Commissioner for Refugees Regional Representation for Northern Europe on the draft law proposal on restrictions of the possibility to obtain a residence permit in Sweden (The UN High Commissioner for Refugees, 10. mars 2016);
  • Sweden 2017 Human Rights Report (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • Upplýsingar af vefsíðu sænsku útlendingastofnunarinnar (www.migrationsverket.se).

Í framangreindum gögnum kemur fram að sænska útlendingastofnunin (s. Migrationsverket) tekur ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd. Umsækjandi um alþjóðlega vernd á þess kost að bera synjun útlendingastofnunarinnar á umsókn sinni undir stjórnsýsludómstól (s. Migrationsdomstolen) og þeim dómi er unnt að áfrýja til áfrýjunardómstóls (s. Migrationsöverdomstolen). Umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni hjá sænsku útlendingastofnuninni og framangreindum dómstólum, eiga þess kost að leggja fram viðbótarumsókn hjá sænsku útlendingastofnuninni, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef nýjar upplýsingar eða ný gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst verulega eða verulegir annmarkar hafa verið á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði fyrir viðbótarumsókn verið uppfyllt. Synjun sænsku útlendingastofnunarinnar um að taka viðbótarumsókn til skoðunar má kæra og engin takmörk eru á því hversu oft umsækjandi getur lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Umsækjendur eiga rétt á takmarkaðri félagslegri aðstoð á meðan viðbótarumsókn er til meðferðar. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Svíþjóð er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Samkvæmt framangreindum skýrslum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Svíþjóð eiga þeir rétt á húsnæði, mataraðstoð og vasapeningum, geti þeir ekki framfleytt sér sjálfir. Þá kemur fram á heimasíðu sænsku útlendingastofnunarinnar og í gagnagrunni Evrópuráðsins um flóttamenn og landflótta einstaklinga, Asylum Information Database, að umsækjendum um alþjóðlega vernd í Svíþjóð er tryggður aðgangur að grunnheilbrigðisþjónustu. Sveitarfélagið sem umsækjandi um alþjóðlega vernd dvelst í hefur milligöngu um að útvega umsækjanda lækni og aðra heilbrigðisþjónustu við hæfi. Þá er tekið tillit til þarfa einstaklinga sem teljast vera í viðkvæmri stöðu, þ. á m. að því er varðar sérfræðiaðstoð. Greiða þarf vægt komugjald vegna heimsóknar á heilsugæslu en innlögn á spítala er umsækjanda að kostnaðarlausu. Fari kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu fram úr ákveðinni upphæð er hægt að óska eftir fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Umsækjandi um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, sem fengið hefur neikvæða niðurstöðu í máli sínu hefur aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu fram að brottför en nýtur hins vegar ekki fjárhagsstuðnings til að greiða fyrir slíka þjónustu eða lyf.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er ljóst að sænsk stjórnvöld uppfylla skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd leggja fram umsókn um vernd í Svíþjóð í fyrsta skipti eiga þeir rétt á lögfræði- og túlkaþjónustu án endurgjalds þegar umsókn er til meðferðar hjá sænsku útlendingastofnuninni og á kærustigum málsins. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga hins vegar ekki rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds við að leggja fram viðbótarumsókn en þeir geta átt rétt á að fá tilnefndan lögmann ef sænska útlendingastofnunin samþykkir að taka viðbótarumsóknina til skoðunar. Endurgjaldslaus túlkaþjónusta er ekki í boði við framangreinda málsmeðferð. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geta einnig leitað til frjálsra félagasamtaka, t.d. ráðgjafarmiðstöðvar (s. Rådgivningsbyrån) sem veitir lögfræðiaðstoð og ráðgjöf.Samkvæmt framangreindri skýrslu gagnagrunns Evrópuráðsins um flóttamenn og landflótta einstaklinga eru ákvarðanir um varðhald umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð almennt teknar af sænsku útlendingastofnuninni, stjórnsýsludómstólunum eða af lögreglunni. Í 10. kafla sænsku útlendingalaganna eru talin upp skilyrði þess að setja megi einstaklinga í varðhald, þ.m.t. þá sem hafa verið umsækjendur um alþjóðlega vernd. Meðal annars má setja umsækjendur í varðhald ef þeim hefur verið vísað brott frá landinu á tilteknum grundvelli eða að líklegt sé að þeim verði synjað um inngöngu í landið. Slíkt er þó ekki gert nema á grundvelli almannaöryggis eða að hætta sé talin á að umsækjandi muni reyna að koma sér undan brottvísun.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstólinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, þ.m.t. möguleika umsækjenda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar hjá sænskum yfirvöldum. Sænsk yfirvöld eru bundin af sambærilegum reglum og Ísland um vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkis þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. IV. kafli sænskra laga um útlendinga (s. Utlänningslagen 2005:716). Að mati kærunefndar veitir málsmeðferð sænskra yfirvalda nægilega tryggingu fyrir því að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í því skyni að tryggja að enginn umsækjandi sé sendur þangað sem líf hans og frelsi er í hættu. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem benda til þess að meðferð á umsókn hans í Svíþjóð hafi verið óforsvaranleg. Samkvæmt framansögðu benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Svíþjóð, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst. Kærunefnd telur að aðstæður kæranda séu ekki þess eðlis að þær teljist sérstakar í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hans að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð verður ráðið að umsækjendur hafi aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og er það mat kærunefndar að kærandi komi til með að hafa aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki.

Nefndin áréttar þá að framangreindar landaupplýsingar um aðstæður í Svíþjóð benda til þess að kærandi geti lagt fram viðbótarumsókn, svo sem ef fram komi upplýsingar sem áhrif geti haft á mál hans eða ef fyrri málsmeðferð eða úrlausn hafi verið ófullnægjandi. Þá geti kærandi eftir atvikum leitað ásjár þarlends umboðsmanns (s. Riksdagens ombudsman). Í framangreindum upplýsingum um aðstæður í Svíþjóð, þ.e. hvað varðar viðbótarumsókn, er þess þó m.a. getið að umsækjendur njóti ekki endurgjaldslausrar lögfræðiaðstoðar við að leggja fram slíka umsókn og þá sé gjaldfrjáls aðstoð túlks ekki í boði við málsmeðferðina. Telur nefndin því ljóst að kærandi yrði að reka mál sitt sjálfur fyrir sænsku Útlendingastofnuninni, a.m.k. fyrst um sinn, en sé viðbótarumsókn samþykkt getur kærandi átt rétt á að fá tilnefndan lögmann. Að mati nefndarinnar benda gögn málsins ekki til þess að heilsufar kæranda eða aðstæður hans að öðru leyti séu þess eðlis að kærandi geti ekki sjálfur lagt fram og haldið uppi slíkri umsókn. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd t.d. leitað aðstoðar hjá frjálsum félagasamtökum, líkt og rakið er að ofan í umfjöllun um aðstæður í Svíþjóð.

Hvað varðar sjónarmið kæranda um að varðhald í Svíþjóð kunni að bíða hans við komuna þangað til lands áréttar kærunefnd það sem þegar hefur komið fram um varðhald þar í landi. Umsækjendum um alþjóðlega vernd sem hlotið hafa endanlega neikvæða niðurstöðu í Svíþjóð getur, eftir atvikum, verið gert að sæta varðhaldi í samræmi við skilyrði sænskra laga þar um og getur það t.d. átt við þegar einstaklingur á yfir höfði sér brottvísun og grunur leikur á um að hann muni koma sér undan slíkri ákvörðun. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ákvarðanir um varðhald útlendinga í Svíþjóð séu almennt teknar í samræmi við gildandi lög og grundvallarréttindi þar í landi og þá séu aðstæður og aðbúnaður í sænskum varðhaldsmiðstöðum almennt góðar og hafi ekki sætt alvarlegri gagnrýni af hálfu eftirlitsaðila. Með hliðsjón af framangreindu telur nefndin því ljóst að sá möguleiki að kærandi kunni að vera færður í varðhald leiði ekki til þess að kærandi teljist eiga erfitt uppdráttar í Svíþjóð eða að öðru leyti séu fyrir hendi sérstakar ástæður í máli hans af þeim sökum.

Í greinargerð kæranda er til rökstuðnings kröfum hans og sjónarmiðum vísað til fyrri úrskurða kærunefndar útlendingamála, einkum nr. 582/2017 og 553/2017, og m.a. bent á að atvik úr málunum svipi að einhverju leyti til málavaxta í máli kæranda. Kærunefnd telur rétt að taka m.a. fram að þrátt fyrir að bæði framangreind mál hafi varðað endursendingu til Svíþjóðar, líkt og í máli kæranda, þá voru aðstæður í þeim málum annars eðlis, en þau vörðuðu t.d. bæði kærendur sem voru ungir að árum og glímdu við andleg og líkamleg veikindi. Að mati kærunefndar geta þessir úrskurðir ekki haft fordæmisgildi í máli kæranda.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 10. október 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 31. júlí 2018.

Athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar

Í greinargerð kæranda er gerð athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar m.a. með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað mál kæranda með fullnægjandi hætti, t.d. hvað varðar öflun gagna um heilsufar kæranda og hugsanlegar afleiðingar endursendingar til Svíþjóðar. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemd við rannsókn málsins.

Þá gerir kærandi einnig athugasemd við mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og beitingu 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands þann 31. júlí 2018 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Svíþjóðar eigi síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa sænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Svíþjóðar með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Erna Kristín Blöndal                                                                                      Árni Helgason


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta