Hoppa yfir valmynd

Nr. 460/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 6. nóvember 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 460/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18090038

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 21. september 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. september 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn hans til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 27. mars 2018. Kærandi mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 29. maí 2018 og framhaldsviðtals þann 5. júní 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 3. september 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 11. september 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 21. september 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 2. október 2018 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun sinni komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnislegrar meðferðar með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í málinu lægi fyrir að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og dvalarleyfi með gildistíma til 18. október 2020.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var komist að þeirri niðurstöðu að 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur aftur til Grikklands. Útlendingastofnun mat aðstæður kæranda slíkar að hann væri ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Það var einnig mat stofnunarinnar að 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ætti ekki við í máli kæranda. Var umsókn kæranda um alþjóðlega vernd því synjað um efnismeðferð, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Þá frestaði kæra réttaráhrifum ákvörðunar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að honum hafi verið veitt staða flóttamanns þann [...] 2017. Hann kveði líkamlega heilsu sína vera góða en hann hafi þó átt í erfiðleikum með [...] í um einn og hálfan mánuð. Þá sé andleg heilsa hans ekki góð, hann finni fyrir miklum ótta og óöryggi og óttist um framtíð sína. Kærandi hafi verið handtekinn í [...] og verið í haldi í eina viku þar sem hann hafi verið yfirheyrður, honum neitað um mat og beittur ofbeldi. Þá hafi kærandi lýst miklu vonleysi og ofsóknum sem hann hafi upplifað á lífsleiðinni vegna uppruna síns. Kærandi kveði sig hafa verið í erfiðum aðstæðum í Grikklandi en hann hafi hvorki fengið húsaskjól né framfærslu frá þarlendum yfirvöldum. Hann óttist árásir rasistahópa í Grikklandi en hann hafi tvisvar orðið fyrir ofbeldi af hendi þeirra. Hann hafi ekki getað leitað sér læknisaðstoðar vegna afleiðinga ofbeldisins, heldur hafi hann þurft að reiða sig á aðstoð fólks í kringum sig eða Sameinuðu þjóðirnar, en sú aðstoð sé afar takmörkuð. Þá kveði kærandi að hann hafi ekki getað leitað til lögreglunnar vegna fjárskorts.

Kærandi gerir athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki metið hann í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Mikilvægt sé að taka til greina frásagnir hans af þeirri stöðugu ógn um líf sitt sem hafi gert það að verkum að hann hafi flúið frá heimalandi sínu, ofsóknum sem hann hafi sætt vegna uppruna síns og þeirri illu meðferð sem hann hafi sætt í Grikklandi og í heimaríki. Þá hafi hann jafnframt greint frá bágborinni andlegri heilsu sinni, en framlögð gögn gefi vísbendingu um að kærandi sé [...]. Kærandi hafi óskað eftir því við Útlendingastofnun að hitta sálfræðing, en hann hafi ekki enn fengið sálfræðitíma. Telji kærandi því að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærandi að Útlendingastofnun hafi litið framhjá tilteknum upplýsingum um aðstæður og réttindi þeirra sem hlotið hafi alþjóðlega vernd í Grikklandi. Í hinni kærðu ákvörðun hafi verið lagt til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi nyti í öllum megindráttum sömu réttinda og grískir ríkisborgarar til grunnþjónustu, en kærandi hafi greint frá því að hann hafi ekki fengið neina aðstoð frá grískum stjórnvöldum. Bendi kærandi á heimildir þess efnis að þótt grísk lög mæli fyrir um jafnan rétt þeirra sem njóti alþjóðlegrar verndar í landinu og grískra ríkisborgara til félagslegs stuðnings þá sé raunin allt önnur. Þá hafi aðgengi flóttafólks að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu verið settar skorður vegna efnahagskreppu þar í landi. Frjáls félagasamtök reyni að koma til móts við þarfir umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna en það sé erfitt því um stóran hóp fólks sé að ræða. Þá hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna vakið athygli á því að mikil þörf sé á að auka félagslega þjónustu við flóttafólk, en vegna takmarkaðrar þjónustu sé aðlögun að grísku samfélagi erfiðari en ella. Þá verði flóttafólk fyrir mismunun á húsnæðismarkaði. Telji kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki gert greinarmun á þeim réttindum sem umsækjendum um alþjóðlega vernd og flóttamönnum eru tryggð lögum samkvæmt og hvort réttindin séu í raun virt í framkvæmd.

Kærandi telur að skilyrði í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 varðandi sérstakar ástæður séu mun þrengri en kveðið sé á um í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 80/2016 um útlendinga. Þá veki kærandi athygli á því að í 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sé hvergi fjallað um aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd að heilbrigðisþjónustu og lögin geri það ekki að skilyrði að umsækjendur um alþjóðlega vernd séu haldnir skyndilegum, lífshættulegum sjúkdómi til þess að teljast til sérstaklega viðkvæmra einstaklinga. Þessar kröfur í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar eigi sér því ekki stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni. Komist kærunefnd að þeirri niðurstöðu, þrátt fyrir framangreint, að ákvæði reglugerðarinnar eigi við um kæranda, árétti kærandi túlkun kærunefndar um reglugerðarbreytinguna, sbr. ummæli kærunefndar í úrskurði nr. 199/2018 frá 24. apríl 2018. Telji kærandi að líta beri til sérstaklega viðkvæmrar stöðu hans ásamt þeirrar staðreyndar að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar í Grikklandi.

Krafa kæranda er sú að mál hans verði tekið til efnislegrar meðferðar með vísan til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi ekki fengið neinn stuðning frá grískum stjórnvöldum, hvorki fjárhagslegan stuðning né félagslega aðstoð. Samkvæmt áralangri stjórnsýsluframkvæmd hafi íslensk stjórnvöld ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 og beri heimildir með sér að staða einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi séu síður en svo betri en staða umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í greinargerð kæranda vísar hann til lögskýringargagna að baki ákvæðinu, svo og lögskýringargagna að baki lögum nr. 81/2017, um breytingu á lögum um útlendinga, og túlkunar kærunefndar á þeim. Telji kærandi ljóst, m.t.t. frásagnar hans og heimilda um aðstæður í Grikklandi, að hann muni standa frammi fyrir því að verða fyrir alvarlegri mismunun í Grikklandi. Um mat á því hvenær einstaklingur teljist eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vísi kærandi m.a. til úrskurða kærunefndar nr. 550/2017 og 552/2017 frá 10. október 2017 og úrskurða nr. 583/2017 og 586/2017 frá 24. október 2017 sem vörðuðu aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Búlgaríu annars vegar og Ungverjalandi hins vegar. Telji kærandi að þær aðstæður sem bíði hans í Grikklandi séu síður en svo betri en aðstæður sem biðu kærenda í fyrrgreindum málum.

Krafa kæranda er einnig reist á því að ekki megi senda hann til Grikklands vegna non-refoulement reglu þjóðaréttar. Kærandi telji sig standa frammi fyrir raunverulegri hættu á að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Grundvallarregla þessi sé jafnframt lögfest í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og telji kærandi því ótækt að beita a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga í þessu máli.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og ef hann var talinn flóttamaður fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins hefur kæranda verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 18. október 2020. Eru því skilyrði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi einstakling sem nýtur alþjóðlegrar verndar aftur til ríkisins sem hefur veitt honum slíka vernd, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, þar sem kveðið er á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Verður kærunefnd því að leggja mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við ákvæði 3. gr. mannréttindasáttmálans. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar. Þá þarf að líta til stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Meta verði fyrirsjáanlegar afleiðingar af því að vísa einstaklingi til móttökuríkis í ljósi almennra aðstæðna í ríkinu og persónulegra aðstæðna viðkomandi einstaklings.

Greining á hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] karlmaður frá [...], einhleypur og barnlaus. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi vera almennt við góða líkamlega heilsu en hafi átt við [...] að stríða. Hann kvað andlega heilsu sína ekki vera góða, hann sé hræddur um framtíð sína og óöruggur. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 11. apríl til 18. júní 2018, kemur fram að kærandi sé almennt heilbrigður karlmaður, sem kveði sig þó vera kvíðinn vegna breyttra aðstæðna og stöðu sinnar í dag.

Með vísan til gagna málsins, þ. á m. framburðar kæranda og framlagðra komunótna frá Göngudeild sóttvarna, er það mat kærunefndar að kærandi sé ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2017 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. apríl 2018),
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018),
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015),
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017),
  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018),
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015),
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017),
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017),
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017),
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016),
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014) og
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018).

Af framangreindum gögnum má sjá að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Jafnframt eru til staðar frjáls félagasamtök sem aðstoða þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi við að kynna sér réttindi sín.

Þá eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd lagalegan rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í landinu.

Þá má sjá í framangreindum gögnum að einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi rétt á aðgengi að húsnæði. Fá gistiskýli eru þó í boði fyrir heimilislausa í Grikklandi auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst fyrir heimilislausa í Grikklandi að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem sendir hafa verið til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegrar greiðslu. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, t.d. fyrir einstaklinga sem eru þolendur pyndinga.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 20. apríl 2018 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi m.a. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að aðbúnaður í fangelsum og varðhaldsstöðvum sé víða ekki fullnægjandi. Klefar séu yfirfullir, óþrifnaður sé mikill og aðgengi að heilbrigðisþjónustu takmarkað. Þá kemur fram að stjórnarskrá Grikklands og lög landsins leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Þá segir að ofbeldisbrot í Grikklandi séu rannsökuð af lögreglu landsins og í þeim tilvikum þegar grunur leikur á því að lögreglan í Grikklandi eigi hlut að máli kemur það í hlutverk umboðsmannsins í Grikklandi að rannsaka hvort brot af hendi lögreglu hafi átt sér stað. Í Grikklandi fara sjálfstæðir dómstólar með það hlutverk að dæma í málum þar sem ákært hefur verið fyrir ofbeldisbrot. Þrátt fyrir að framangreind skýrsla bendi til þess að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins þá kemur fram að lög landsins og stjórnarskrá tryggi sjálfstæði dómstóla í framkvæmd og að réttur þeirra sem brotið hefur verið gegn og þeirra sem ákærðir eru sé tryggður.

Samkvæmt dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er bann við meðferð sem fer gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu fortakslaust en meðferð verður þó að fullnægja lágmarkskröfu um alvarleika til að teljast brot gegn 3. gr. sáttmálans. Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 fjallaði dómstóllinn um endursendingar einstaklinga til ríkja þar sem þeir hafa hlotið alþjóðlega vernd. Í ákvörðuninni kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við slíka endursendingu nái ekki alvarleikastigi 3. gr. sáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Kemur framangreind frásögn kæranda að mestu leyti heim og saman við heimildir um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi sem kærunefnd hefur kynnt sér, þ.e. hvað varðar erfitt aðgengi að vinnumarkaðnum, félagslegu húsnæði og framfærslu frá yfirvöldum.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur aðgang að vinnumarkaði og sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar. Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk stjórnvöld hafi gripið til aðgerða til að stemma stigu við fordómum í landinu, m.a. með því að grípa til hertra aðgerða til að sporna við brotum sem byggjast á kynþáttafordómum. Af framangreindum gögnum verður ráðið að verði kærandi fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi geti hann leitað ásjár grískra yfirvalda vegna þess.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins bendi ekki til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi eiga þeir sem hefur verið veitt alþjóðleg vernd rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu sem getur þó verið í sumum tilvikum vandkvæðum bundið að sækja. Þá eiga þeir einnig rétt á endurgjaldslausum lyfjum, rannsóknum á göngudeildum og aðgangi að sjúkrahúsi, auk þess sem þeir eiga rétt á nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað aðstoðar vegna heilsufarsvandamála sinna þar í landi.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 og 552/2017 frá 10. október 2017, og nr. 583/2017 og 586/2016. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í fyrrgreindum málum, m.a. í ljósi þess að ekki er um að ræða sama viðtökuríki, en að mati nefndarinnar verður aðstæðum í Grikklandi ekki jafnað til þeirra aðstæðna sem biðu kærenda í framangreindum málum í Búlgaríu og Ungverjalandi. Þá tekur kærunefnd ekki undir það sjónarmið kæranda að áralöng stjórnsýsluframkvæmd íslenskra stjórnvalda, um að heimila ekki endursendingu til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, eigi við í máli kæranda. Ljóst er að kærandi er handhafi alþjóðlegrar verndar þar í landi og verður aðstæðum við endursendingu hans því ekki jafnað til aðstæðna umsækjenda um alþjóðlega vernd sem sendir eru til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins og skýrslur og upplýsingar um aðstæður í Grikklandi. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 29. maí 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 27. mars 2018.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars 2018 voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Sem fyrr segir telur kærandi að skilyrði reglugerðarinnar varðandi sérstakar ástæður vera mun þrengri en kveðið sé á um í lögum og úrskurðum kærunefndar. Þá kveður kærandi að kærunefnd hafi gert vægari kröfur um alvarleika við mat á því hvort heilsufar teljist til sérstakra ástæðna, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Tilvitnuð ákvæði reglugerðar nr. 276/2018 eru sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem segir að ráðherra hafi heimild til að setja reglugerð um framkvæmd 36. gr. laganna. Löggjafinn hefur framselt ráðherra vald til að útfæra framangreind ákvæði nánar og ljóst að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg eins og að framan hefur verið lýst. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þessar athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 27. mars 2018 og sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Árni Helgason                                                                  Erna Kristín Blöndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta